15
Nov 17

Þau eru ansi lík feðginin á meðfylgjandi myndum. Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og dóttir hans Alfa fra Havnås fædd 2017. Móðir er Sæl frá Blesastöðum 1A.

Álfaklettur er fæddur 2013 undan Álfadís frá Selfossi og Stála frá Kjarri. Aðaleinkunn Álfakletts er 8,30 með 8,48 fyrir byggingu, þar af 9,0 fyrir samræmi og höfuðog 8,5 fyrir háls herðar og bóga, hófa og réttleika. Hæfileika einkunn er 8,17 þar af 8,5 fyrir tölt, fet, stökk og vilja/geðslag, 8,0 fyrir skeið, hægt stökk, hægt tölt og fegurð í reið. Við berum væntingar til þessa fola.

{gallery}AlfakletturBreeding2017{/gallery}