14
Jul 18

Síðastliðinn mánudag vorum við með opið hús á Syðri-Gegnishólum og buðum gestum Landsmóts og öllum sem vildu að koma og hitta okkur, Gangmyllu teymið og hrossin okkar. Skoða aðstöðuna á staðnum, eiga orðastað við okkur og fá sér ögn að borða og drekka. Það var ótrúlegt hve margir gáfu sér tíma til að koma til að heimsækja okkur, bæði gestir að utan og íslendingar.

Við þökkum ykkur kærlega fyrir komuna, ykkar vegna var dagurinn frábær. Hér eru nokkrar myndir frá ýmsum myndasmiðum þar sem við reynum að sýna þá frábæru stemmingu sem myndaðist og varði allan daginn.

{gallery}Open house at Sydri-Gegnisholar{/gallery}