29
Jul 18

Þetta merfolald fæddist í gærmorgun og eru þessar myndir teknar af því nýfæddu. Móðirin er Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum og faðirinn er hinn leirljósi gæðingur Spaði frá Stuðlum. Getur verið að þetta folald sé glóbrúnt?

Ég fékk þennan skemmtilega vefpóst frá Páli Ímsland og birti hann hér af því að mér finnst hann afar fræðandi:
Blessuð Olil.
Ef þú hefur verið að vonast eftir muskóttu (mórauðu, glóbrúnu) folaldi undan Álfhildi er ég hræddur um að ég valdi vonbrigðum. Ég kom við undir kvöld og við Elín gengum að skoða.
Það er ekki annað að sjá en folaldið sé venjulega brúnt. Það sést einkum á húðinni, augnhvörmunum, í nösunum og á kynfærunum. Húðin er þar svört, sem er einkenni á brúnu og flestum öðrum litum nema þeim sem bera leirgenið. Hjá þeim er húðin bleik, móbleik eða súkkulaðibrún og gjarnan aðeins dröfnótt (hálfpartinn eins og freknótt). Á muskóttu er dæmigerður húðlitur súkkulaðibrúnn eða kaffibrúnn (með rjómadreitli). Það sést ekki á þessaari drottningardóttur. Grái liturinn á augunum sem Kr. Hug. var að tala um á smettiskinnu, er svokallaður folaldagrámi, sem einkennir augu nýfæddra folalda og endist yfirleitt í nokkrar vikur en dofnar á þeim tíma um leið og litarefni í augunum framkalla venjulegan augnlit. Fósturþroskanum er varla lokið í augunum og birtan sem folöldin fá eftir fæðingu hefur áhrif á lokaþáttinn. Þá hverfur gráminn og augun verða gulbrún, móbrún eða tinnusvört.
Bið kærlega að heilsa frændum mínum Austfirðingum.
Kveðjur Páll

{gallery}Globrunt{/gallery}