19
Nov 10

Vorum að endavið að halda námskeið með Julio Borba, en hann er frá Portogal og hefur verið að kenna okkur um nokkura ára skeið. Eins og vanalega var hann með tvo hópa og í hverjum hóp eru átta manns og fær hver og einn klukkutíma kennslu á dag en mega svo fylgjast með þegar verið er að kenna hinum. Vegna pestarinnar höfum víð þurft að afbóka nokkur námskeið þannig að nú var gott að komast í gang aftur. Í þetta sinn tókum við okkur nokkur saman og vildum fá innsýn í það hverning hann frumtemur og var það bæði fróðlegt og gaman. Við þóttumst nú vera búin að undirbúa hestanna vel og vorum það líka samsvæmt okkar mælikvarða en það var nú aldeilis ekki í hans augum. Unnið var með hestanna í taumhring og var allt sem hann gerði þaulhugsað og hnitmiðað. Komst maður að því að margt sem við höfum lært í þessu hefur villandi og takmarkað notkunnargildi. Að venju var hann mjög beittur og það var ekkert sem engu máli skipti eða var látið liggja á milli hluta.  Meira að segja var tekinn töluverðan tíma í það hverning ætti að nota piskinn, hvar hann á að vera þegar hann er ekki notaður, hvað hver staða pisksins þýðir og svo sýndi hann okkur hverning hann var látin æfa sig. Eftirá fóru menn að æfa sig með misjafnan árangur mörgum til mikillar skemmtunnar. Bara svo að þið vitið,þá verður maður að geta hvatt  ytri hlið hestsins og auðvitað fyrir aftan. Bara eitt i lokin, snúrumúlarnir fara á áramótabrennuna og hringgerðið í Hringrás með fyrstu ferð     ( :

 borba_nov10_011  Alltaf að stoppa á sporaslóð  borba_nov10_010Hesturinn alltaf fyrstur af stað
 borba_nov10_003 Látin vinna á litlum hring   borba_nov10_012svo stækka eða beinar linur
 borba_nov10_008 Aftur í vinnu á litlum hring   borba_nov10_004Undirbúa að fara á bak 
         borba_nov10_018Svona á að gera  borba_nov10_014Verið að kenna undirstöðuatriði
 borba_nov10_015       Einar alveg að ná því  borba_nov10_020        Aldrei langt í húmórin
 borba_nov10_017               Max og Ása       "borba_nov10_022I tell you only once"
 borba_nov10_023        Aldrei slaki á taumin  borba_nov10_026
 borba_nov10_029         Athygli og virðing  borba_nov10_001           Góð mæting
            borba_nov10_028Þetta er málið

Folarnir eru 3 vetra, sá brúnskjótti er Álffinnur, undan Álfadísi og Orra og sá rauðskjótti undan Grýlu og Orra.