13
May 13

Var að fá sendar þessar fínu myndir af Álfasteini, en hann er búinn að vera staddur í Þýskalandi í rúm tvö ár á Töltmyllunni hjá Dennis og Ninu Engel. Þau hafa leigt hann til þriggja ára og notað hann mikið sjálf á sínar hryssur enda eru þau með umtalsverða ræktun. Jafnhliða því sem hann hefur sinnt hryssum, hefur hann verið þjálfaður af Dennis. Að sjá á myndunum virðist hann vera í flottu formi enda á besta aldri, aðeins 12 vetra gamall.

Hryssan með honum á myndinni er Hetta frá Ketilsstöðum, dóttir hans og Hlínar frá Ketilsstöðum. Til gamans má geta að þýska meistaramótið verður haldið á þessum stað í ár sömu helgi og Íslandsmótið. 

IMG 3101 1 IMG 3114 1 fb2 - Kopie Foto 1 

Myndir: Nina Engel