15
Feb 19

Það er erfitt að ná í myndir úr Meistaradeldinni svona strax á eftir keppni, aftur verð ég að nota mynd sem ég tók á sjónvarpinu en sem sagt manneskjan í hægra horninu á stærð við mýflugu er hún Elín Holst sem endaði í deildu 5 sæti í T2 Slaktaumatölti í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Held að við verðum bara að vera nokkuð sátt með tvo hesta úr okkar ræktun í topp 10. Bergur og Goði hlutu 7,10 og höfnuðu í deildu 9 sæti. Innilega til hamingju þið öll en mikið var af frábærum hestum og sýningum og voru það smáatriðin sem vógu mikið í þetta sinn.

{gallery}T2 in Masters league 2019{/gallery}