25
Nov 10

Þá er komið vídeó á heimasíðuna okkar, það eru reyndar nokkrir dagar síðan að það var sett inn. Vídeóið er að finna undir ræktun, stóðhestar og eins og er, er komið vídeó af Brimni,Flugni, Gandálfi, Hug, Kraflari, Ljóna,Natan og Vakari.

Við höfum verið frekar dugleg í gegnum tíðina að taka upp á vídeó og eigum flestallar kynbótasýningar,  af okkar hrossum, enda er það bæði fróðlegt og gaman að geta skoðað þetta eftirá. Við höfum líka oft notað þetta okkur til leiðréttingar, þegar óánægja hefur verið með dómstörf eða vafaatriði hafa komið upp. Það hefur verið nausýnlegt að geta velt þessu fyrir sér því eins og við vitum er ekki allt sem sýnist alltaf. Nú er svo komið að við getum notað þetta á heimasiðuna líka vonandi ykkur til fróðleiks og skemtunar.

        vetur_25_nov._2010_007Silvana og Martina  vetur_25_nov._2010_006        Syðri Gegnishólar
 vetur_25_nov._2010_004             vetur_25_nov._2010_003Grýla og sonur
 vetur_25_nov._2010_001  vetur_25_nov._2010_005                 Álfadís
 vetur_25_nov._2010_002        Ljónslöpp og sonur             vetur_25_nov.10_001Mirra og dóttir

Þessar fallegu vetrarmyndir tók ég fyrir hádegið á þriðjudag,

 en þá var elveg einstaklega falleg birta.