06
Feb 11

Bergur var að keppa á Vakari á Ingólfhvoli á fyrsta móti hjá meistaradeildinni, en fyrsta mótið var 4 gangur, en Bergur er í Toppreiter/Ármót/66° norður  liðinu. Aldrei þessu vant tók ég ekki með mér myndavélina  og setti þar af leiðandi ekki neina frétt. En þá var Fjölnir Þorgeirsson svo elskulegur að leyfa okkur að nota sínar myndir.

Þess vegna, og betra seint en aldrei, set ég stutta frétt. Þeir foru beint í A úrslit, með einkunnina 7,07 og héldu sínu sæti í úrslitum, enduðu í fimmta sætið með einkunnina 7,30. Okkur finnst það bara vera góður árangur á lítið þekktum hesti að ná þessu í þessum félagsskap, enda margir af bestu fjórgöngurum landsins að taka þátt.

 

Myndir: Fjölnir Þorgeirsson

vakar_meistarad._2011_001vakar_meistarad._2011_002