10
Feb 11

Eins og þið kanski hafið orðið vör við höfum við heldur betur tekið okkur á í markaðsmálum, höfum haldið okkur frammi og auglýst  ræktunina og starfsemina töluvert mikið. Það er hann Guðbrandur Stígur Ágústsson og hans fólk sem stýrir þessu hjá okkur, enda er hann  ákaflega hugmyndaríkur og afkastamikill, þannig að það er mjög gaman að taka þátt í þessu með honum. Nú síðast var það bændablaðið og kom hann og tók nokkrar myndir af okkur,  með það í huga. Það þarf oft að taka töluvert margar myndir til að ná einni góðri. Hér birti ég í gamni, nokkrar sem voru teknar í röð, en Bergur tók smá sjów svona rétt til að ná upp réttri stemningu. 

 bndabl.11_001
 bndabl.11_002
 bndabl.11_003