26
May 11

Núna stendur yfir kynbótasýning í Hafnarfirði eins og flestir vita og höfum við sýnt tólf hross þar. Það hefur nú gengið á ýmsu, Hugur heldur áfram að lækka, virðist vera orðinn ómögulegur, alltaf verið að smá naga af honum í byggingu og svo lækkaði hann á tölti og skeiði svona án þess að okkur finnist hann eiga það skilið.

Fimm vetra hryssurnar Aðaldís og Bylgja skeiðuðu ekki, en þær eiga að skeiða nokkuð vel þannig að staða þeirra ætti að geta breyst. Védís frá Hellubæ stendur í 7,98 og á töluvert inni en sýndist bara ekki betur, hún er frábær en fipaðist í brautinni. Drift var eins og ég gat átt von á, hún er mjög hæfileikarík en er mjög stór og hefur hvorki krafta né einbeitni til að fylgja þessu eftir í bili, en hún getur líka alveg dottið inn og gert góða hluti. 

Margar aðstæður geta verið fyrir þegar ekki nógu vel gengur, en eitt er víst að vikur brautirnar eru ekkert grín og hrossin geta komið manni töluvert á óvart vegna virkni þeirra.

En það er líka ástæða til að vera kátur,Gandálfur var feikna góður  og sýndi sig eins og við þekkjum hann, hann er af eðlisfari léttbyggður og hefur þurft tíma til að styrkja sig en nú er það komið og hann er bara flottur ( :

Brimnir var mjög góður, stóð við sitt en lækkaði um einn og hálfan fyrir fet, leiðinlegt það því hann er með mjög gott fet, enda fékk hann 9,0 fyrir það þegar hann var fjögurra vetra. Allavega lækkaði hann um sex kommur í aðaleinkunn vegna fetsins og stendur núna í 8,39.

Greipur frá Lönguhlíð, 6 vetra Keilissonur, hækkaði sig flott frá því í fyrra og endaði í 8,33 með m.a níu fyrir skeið en hann er litli bróðir glæsi klárhryssunnar Sædísar frá Stóra Sandfelli 2 og er hann fjórða afkvæmi Glódísar, móðir þeirra, til að fara í fyrstu verðlaun. Hann gæti verið góður kostur fyrir þá sem sakna Keilis. 

Eitt er víst að það eru spennandi tímar framundan, yfirlitssýningin á laugardag  og sunnudag og þar getur ýmislegt gerst.

                      aalds_ma11_031Aðaldís  brimnir_ma11_095_2                   Brimnir
                     gandlfur_9Gandálfur  vds                     Védís
 greipur_6                     Greipur  hugur_ma11_090_5                     Hugur
                    Myndir: Gangmyllan