29
May 11

 gryla1

Grýla og sonur hennar Strokkur undan Orra, hann er  orðinn 4 vetra  gamall og kemur  væntanlega í dóm á Hellu.

Grýla er undan Spurningu frá Kleifum og Kolfinni frá Kjarnholtum og er orðin 21vetra gömul.

Hún er auðvitað frægust fyrir að vera móðir Álfadísar frá Selfossi en í dag var önnur dóttir hennar að gera það gott,

 en það er hún Aðaldís frá Syðri Gegnishólum. Aðaldís sem er 5 vetra gömul er undan Aðli frá Nýja Bæ sem er Adamssonur frá Meðalfelli þannig að hún og Álfadís eru meira en hálfsystur. Dóttursynir hennar þeir Álfasteinn og Álfur eru með fullt af góðum afkvæmum í Hafnarfirði. Barnabarnið hennar hann Gandálfur  fór í flottan dóm og stendur eins og er í 8,44 Aðaldís hlaut í aðaleinkunn 8,27, þ.a 8,04 fyrir sköpulag og 8,42 fyrir kosti.

img 1363182055 461 img 1363182056 304

              Myndir : Gangmyllan