02
Jun 11

Hér er mikið að gera og ekki mikill tími til að skrifa fréttir í bili. Kynbótasýningarnar ganga á stanslaust og nánast engin tími til að gera annað en að hugsa um það. Þegar búið er að sýna meirihluta dags bíða hestarnir óþjalfaðir eftir okkur heima.

En ýmislegt er nú svo sem að frétta, eins og að Gandálfur endaði með 8. 69 fyrir hæfileika  sem er nákvæmlega  sama talan og hinir tveir  synir Álfadísar eru með, þeir Álfasteinn og Álfur. Enda höfum við alltaf sagt að hann gefur þeim ekkert eftir, hinir eru bara eðlis sterkari og vóru því fyrr til. 

Annars gengur þetta nú ekkert sérstaklega vel og hefur oft gengið betur en svona er þetta nú bara og ekkert hægt  að gera nema að halda áfram að gera sitt besta.

Ég sýndi Védís aftur á Hellu en hún er fimm vetra undan Vöku frá Hellubæ og Álfasteini og er í minni eigu, fékk að halda Vöku og hélt henni undir Álfastein. Hún fékk 8,o2 í aðaleikunn í þetta sinn þ.a 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, stökk, hægt stökk og fegurð í reið. Hinsvegar lækkaði hún niður í 7,0 fyrir fet og spurning hvort  ég get ekki lagað það eitthvað. 

Hún er allavega glæsileg klárhryssa sem ég ætla að eiga og setja í ræktun.

Svo synda Bergur sameignin okkar Hafliða Halldórssonar og Ylvu Hagander í 8,09, en hún er fimm vetra gömul undan Álfasteini og Lilju frá Litla Kambi. Álöf sem er 4,v undan Hefð og Álfi fékk 7,87 og er mikið efnistryppi.

 Bylgja er með 7,96 eins og staðan er í dag, en hún tekur sig til og töltir þegar hún á að skeiða en hún er vökur, en virðist fipast þegar inn á völlin er komið. Ég sýndi Gram en hann leystist einhverveginn upp í upphitun og varð miklu síðri en ella, svo fékk hann líka töluvært lægra fyrir byggingu en sérfræðingarnir bjuggust við , þannig að hann endaði í 7,82 . Hann fékk t.d bara 8,0 fyrir tölt og brokk og átti ekki meira, en maður verður bara að hlýja sér á tölur eins og 9,0 fyrir hægt tölt og fet og 8,5 fyrir hægt stökk, stökk, vilja og fegurð í reið.

Við erum í fríi frá Hellu á morgun en á föstudaginn er yfirlitssýning og þá getur ýmislegt gerst. Svo er Hella alla næstu viku, þannig að það er ekkert frí í sjónmáli á næstunni.

 hella_kynbs.vor_11_074      Álöf frá Ketilsstöðum  hella_kynbs.vor_11_017            Lilja Dís frá Fosshofi

 hella_kynbs.vor_11_041  Gramur frá Syðri Gegnishólum

 hella_kynbs.vor_11_093            Védís frá Hellubæ

                Myndir: Gangmyllan