04
Jun 11

Þá er fyrsta vikan búin á Hellu og við sýndum sjö hesta. Gramur, Bylgja, Lilja Dís og Álöf breyttust ekki neitt. Védís hækkaði viljan upp í níu en það fékk hún líka þegar hún var fjögurra vetra. Svo hækkaði hún úr 9,0 í 9,5 fyrir hægt stökk en það var tala sem ég ætlaði henni strax í fyrsta dóm þegar hún var fjögurra vetra eins og Vestri bróðir hennar gerði. Eins og við vitum fer ekki alltaf allt eftir áætlun en það er nauðsynlegt að hafa markmið.

Védís er því komin með 8,06 í aðaleinkunn, 7,94 fyrir sköpulag og 8,16 fyrir kosti sem skipast svona, 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, stökk, fegurð í reið og vilji, 7,0 fyrir fet, 8,5 fyrir brokk og 9,5 fyrir hægt stökk.

 Védís er dóttir Álfasteins og Vöku frá Hellubæ. Margir muna eftir Vöku, en hún kom fram aðeins fjögurra vetra gömul og fékk þá 8,48 fyrir kosti sem er örugglega hæfileikametið hjá fjögurra vetra klárhryssu, enda fékk hún þrisvar 9,5, fyrir brokk, stökk og hægt stökk og þrjár niur, fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Ég var svo heppin að Gíslína eigandi hennar bauð mér að halda Vöku, sem er ekkert smá höfðinglegt boð og úr því fékk ég Védísi.

Bergur reið Ylvu frá Efri Gegnishólum í yfirlitinu og hysjaði upp um mig, hækkaði hana upp í átta fyrir tölt og upp í 6,0 fyrir skeið. Svo tók Elín sig til og reið Hátign á yfrlitinu og hysjaði upp um Bergi og hækkaði hana upp í 8,5 fyrir stökk. Þannig að við látum Elínu sýna Frama í næstu viku. 

Stemning undan Sveini Hervari og Væntingu í eigu Sissel Tveten, reyndist hölt, þegar átti að fara að ríða henni í hæfileikadóm en hún hefði verið nánelgd og verður að bíða fram í næstu viku. 

 kynbtasyning_lf_hella_3_jni11_053_4         Álöf 4 v. með 7,87  kynbtasyning_hella_3_jni11_001      Bylgja 5 vetra með 7,96
 hella_kynbs.vor_11_008    Lilja Dís 5 vetra með 8,09  hella_kynbs.vor_11_044     Gramur 5 vetra með 7,82
 vds   Védís 5 vetra með 8,06  kynbtasyning_ylfa_hella_3_jni11_018_3        Ylfa 5 vetra með 7,67
 kynbtasyning_hella_3_jni11_041  kynbtasyning_ylfa_hella_3_jni11_018
 kynbtasyning_hella_3_jni11_045  kynbtasyning_htign_hella_3_jni11_023 Hátign 5 vetra með 7,82