09
Jul 11

Þá er heimasíðan komin í lag aftur, ég ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra hvað var að henni, en það var allavega ekkert lítið. Mikið er búið að gerast á þeim tíma sem hún hefur legið niðri, meðal annars heilt landsmót, heimsmeistaramótsúrtaka og margt fleira.Við höfum frá heilmiklu að segja og margar skemmtilegar myndir til að birta og það mun ég reyna að gera í rólegheitunum.

Birti hér nokkrar myndir af henni Grýlu frá Stangarholti, en hún er orðin tuttugu og eins vetra gömul og getur bara verið nokkuð ánægð með sitt framlag til hrossaræktarinnar. Þessi litla skjótta hryssa sem hún átti hér um daginn er undan Dug frá Þúfu.

 img_3484Grýla  img_3476  F. 7/7

              Myndir: Gangmyllan