10
Jul 11
 

Fyrst af öllu verð ég að birta myndir af ræktunarbúsýningunni okkar á Landsmótinu. Eins og flestir vita voru ræktunarbúsýningar á Landsmótinu og í ár tóku 11 bú þátt, enda er það skemmtileg leið til að sýna hrossin sín og ekki síður skemmtilegt fyrir áhorfendur að fá innsýn í hestakost viðkomandi bús, sem er mun auðveldara svona heldur en að sjá einn og einn hest í hverjum flokki fyrir sig.

Við notuðum sex hesta sem allir voru með eitthver önnur hlutverk á Landsmótinu fyrir. Til liðs við okkur fengum við þá Jakob Sigurðsson, Þórð Þorgeirsson og Daníel Jónsson en það eru menn sem hafa aðstoðað okkur við að sýna hesta ef við höfum þurft á því að halda. Síðan riðum við Bergur sitt hvorn hestinn og Elín Holst, sem er í vinnu hjá okkur reið einnig með okkur. Gaman er að segja frá því að þeir Daníel og Jakob voru báðir í vinnu á Ketilsstöðum á sínum tíma og tömdu og sýndu mæður hestanna sem þeir riðu í sýningunni.

Þetta var mjög skemmtilegt, hestarnir vel undirbúnir og mannskapurinn í stuði. Menn voru hugmyndaríkir, jákvæðir og metnaðafullir og ekki var að finna á neinum þeirra þá áreynslu sem þeir höfðu verið undir síðastliðna daga, sýnt m.a tugi hesta, undir meðfylgjandi álagi. Þegar ljóst varð að það yrði úrslitakeppni á laugardagskvöldinu kom kapp í mannskapinn og nýjum atriðum bætt við. Ekki sakaði að hafa smá lán með sér þannig að erfiðustu atriðin gengu upp eins og í sögu. Jakob, Þórður og Daníel takk kærlega fyrir, það eru forréttindi að eiga ykkur að.

 landsmt11_157   Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar  landsmt11_538                   Skæri á skeiði
           landsmt11_507Elín og Simbi  landsmt11_539                Svona gerist það
 landsmt11_635           Daníel og Flugnir  landsmt11_540 . . . . . .og svona á að gera það
 landsmt11_142  Olil og Kraflar  landsmt11_541    Wow, það var vígalegt að sjá
 landsmt11_149      Fjórir hlið við hlið á skeiði  landsmt11_542                    Ekki málið
 landsmt11_488    Þórður og Brimnir  landsmt11_495  Bergur og Gandálfur
 landsmt11_548  landsmt11_493           Jakob og Ljóni
 landsmt11_491  landsmt11_504
 landsmt11_171 "Showtime"  landsmt11_154
 landsmt11_591-1      Klárhestarnir í hópnum  landsmt11_784
 landsmt11_716         landsmt11_729
           landsmt11_836Sigrinum fagnað  landsmt11_842                                      Guðbrandur Stígur hannaði búninga og merkingar

            Myndir: Gangmyllan