12
Jul 11
 

Á Landsmótinu sýndum við þrjár 5 vetra hryssur, þær Lilju Dís frá Fosshofi, Védísi frá Hellubæ og Aðaldísi frá Syðri Gegnishólum. Við sýndum líka eina 4 vetra hryssu og það var hún Álöf frá Ketilsstöðum, í heildina má segja að það hafi gengið ágætlega því allar hækkuðu þær sig frá kynbótasýningunum í vor. Nema Védís en hún lækkaði, en ekki svo mikið miðað við skellinn sem margir þurftu að taka.

Fyrsta hryssan sem ég ætla að fjalla um er Lilja Dís frá Fosshofi, en hún er dóttir Lilju frá Litla Kambi og Álfasteins frá Selfossi og er í eigu Ylvu Hagander, Hafliða Halldórssonar og Olil Amble. Lilja Dís hækkaði frá því í vor og var rétt utan við verðlaunasæti á LM. Hún hlaut fyrir byggingu 8, 01 og hæfileika 8, 39, aðaleinkunn 8,23.

Margir muna örugglega eftir Lilju móðir hennar, en hún var í úrslitum í A-flokki á LM 2000 með Sigga Matt á bakinu, en það var hins vegar Vignir Jónasson sem þjálfaði og sýndi Lilju. Lilja var líklega hve flottust þegar hún og Keilir frá Miðsitju komu fram saman aðeins 5 vetra gömul.

Lilja var undan Bylgju frá Sturlureykjum 2 sem var dóttir Hrafns frá Holtsmúla og Dags frá Kjarnholtum, sem var sonur Kolfinns frá Kjarnholtum.

Ættir Álfasteins ætla ég ekki að rekja núna, en ég tel hann vera nægilega kynntan í bili. 

Lilja Dís verður í þjálfun næsta vetur og stefnt með hana á Landsmót aftur að ári.

 

 

Sköpulag: 7,0  8,5  7,5  8,0  8,0  8,5  8,0  7,0  Samtals 8,01

Hæfileikar:8,0  7,5  9,0  8,5  9,0  8,5  8,0  Samtals 8,38

Hægt tölt 8,5  Hægt stökk  7,5  Aðaleikunn 8,23

 

 032  
   042
 040  

             Myndir: Gangmyllan