15
Jul 11

Við vorum bara með eina hryssu í 4 vetra flokki á Landsmótinu í þetta sinn en það var hún Álöf frá Ketilsstöðum. Hún er undan Hefð frá Ketilsstöðum og Álfi frá Selfossi, en Hefð var tamin og sýnd á Landsmótinu á Vindheimamelum 2002 og hlaut 8,03 aðeins 4 vetra gömul. Hefð er undan Skrúð frá Framnesi og Vakningu frá Ketilsstöðum, sem er undan Hrafni frá Holtsmúla og Snekkju frá Ketilsstöðum, Vakning er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Á bakvið Skrúð frá Framnesi er m.a Toppur frá Eyjólfsstöðum og og Hrafn frá Holtsmúla. Ættir Álfs frá Selfossi tel ég ekki þörf á að rekja í bili. Álöf er bráðefnileg alhliðahryssa viljug og snörp með vel aðskildar gangtegundir. Áöf  er í eigu Guðbrandar Stígs Ágústssonar og verður í þjálfun næsta vetur og stefnan er að mæta með hana aftur á Landsmót að ári. 

Álöf hækkaði lítillega síðan á Hellu í vor og dómurinn hennar er svohljóðandi.

Sköpulag: 8,0  8,0 ,8,5   8,0  8,0  7,0  8,5  7,0  Samtals  8,00 

Hæfileikar: 8,0  7,5  8,0  7,5  8,5  8,0  7,5 Samtals  7,94

Hægt tölt  8,0  Hægt stökk  7,5     Aðaleinkunn  7,97

 
 landsmt11_068  landsmt11_073
 Myndir: Gangmyllan  landsmt11_069-2