26
Jul 11
 

Brimnir er sonur Vakningar frá Ketilsstöðum og Álfasteins frá Selfossi, og er síðasti 6 vetra hesturinn sem ég á eftir að kynna sem við sýndum á Landsmótinu. Moðir Brimnis, Vakning og er hún  undan Snekkju  frá Ketilsstöðum sem einnig er móðir Ljónslappar og eru þær systur báðar með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, en faðir Vakningar er Hrafn frá Holtsmúla. Faðir Brimnis Álfasteinn, tel ég ekki þörf á að kynna í bili. 

Brimnir fór fyrst í kýnbótadóm fjögurra vetra gamall og hlaut hann 8,28 fyrir sköpulag, 8,37 fyrir hæfileika og 8,33 í aðaleinkunn, ansi flóttur dómur á fjögurra vetra fola, enda með þeim hæðst dæmdu það árið.

Svo var hann syndur aftur fimm vetra og þá gékk það ljómandi vel líka, biggingardómurinn stóð í stað og hæfileikarnir hækkuðu í 8,56 og aðaleinunn varð 8,45.  Hann var hæðsti fimm vetra hesturinn  í fyrra, bara flott þó við vitum auðvitað að margir hestar komu alls ekki í dóm í fyrra vegna pestarinnar.

Svo fórum við með hann í dóm í vor í Hafnarfirði og þar stóð hann í stað að öðru leyti en því að hann lækkaði um hálfan fyrir fet og aðaleinkunn fó því úr 8,45 í 8,43.

Svo kom Landsmótið og við sýndum hann þar og þá varð hann svo miklu sýðri, eða það sögðu kynbótadómararnir og hann lækkaði um hálfan fyrir stökk, skeið, vilja og það með hæfileikana úr 8,53 í 8,33 og aðaleinkunn úr 8,43 í 8,31 og Brimnir bara orðin síðri enn hann var fjögurra vetra gamall.

Það er ekki hægt að segja að hann hafi verið veikur, búinn að vera stálsleginn all sitt líf og alltaf að bæta sig, enda stóð hann sig frábærlega í dómi og á ræktunnarbú syningunni. Skeiðaði eins og brennt svín hægri, vinstri, við hliðina á öðrum hestum, úr sogátt, með einni hendi á taum, í gafall og ég veit ekki hvað. Það klikkaði ekki einn sprettur, hvort sem það var í dóm eða syningu, enda er hann flugvakur og á mjög auðveld með það.

Brimnir er gæðingur og albestu gantegundirnar hans eru tölt og skeið, sem eru afburðar gangtegundir.

Brimnir verður þjálfaður næsta vetur með 7 vetra flokk á Landsmóti í huga, einnig er stefnan að stilla honum upp í keppni, hvað markmiðið verður, kemur í ljós en það verður a.m.k tölt óg skeið greinar.

                     brimnir_ma11_051 Í dómi  landsmt11_099    Í dóm á LM
 brimnir_ma11_095_2-1            landsmt11_786Í ræktunnarbússyningu
 brimnir_ma11_095_4  landsmt11_539        Allt á fullu, gafall á skeiði
 brimnir_ma11_095_3  landsmt11_167