23
Jul 11
 

Greipur frá Lönguhlíð er í eigu Gunnhildar Garðarsdóttur og Hallfreðar Elíssonar og eru þau jafnframt ræktendur hans. Fyrir þá sem ekki vita er Langahlíð austur á Fljótsdalshéraði og er nágrannajörð við Ketilsstaði.

Fimm vetra gamall kom Greipur í þjálfun hingað til okkar, þá frumtaminn og hefur hann verið hjá okkur síðan.

Bergur sýndi hann í kynbótadóm fimm vetra gamlan og hlaut hann 8,23 fyrir sköpulag, 8,20 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,21.

Síðan var hann sýndur aftur í vor og hækkaði úr 8,23 í 8,28 fyrir byggingu og hæfileikarnir fóru úr 8,20 í 8,33. Aðaleikunnin fór því úr 8,21 í 8,33.

Svo mættum við með hann á Landsmót og þar var hann jarðaður, eða er það ekki ágætis leið til að lýsa því þegar hestur lækkar um tæp 30 stig í aðaleinkunn. Auðvitað var hesturinn ekki eins góður og í forskoðun, það er alveg ljóst, en þessi agreiðsla var algerlega óþörf. Ég ælta að leyfa mér að henda því fram að hefði verið notaður sami dómsskali og notaður var við dómsstörf á ýmsum öðrum hrossum á mótinu, hefði Greipur líklega sloppið nokkuð vel. 

Greipur er undan Glódísi frá Stóra Sanfelli 2 og Keili frá Miðsitju, en Keilir er eins og flestir vita undan Kröflu frá Miðsitju og Ófeig frá Flugumýri. Bakvið Glódísi frá Stóra Sandfelli 2 eru Stjarni frá Bjóluhjáleigu og Glói frá Ketilsstöðum sem var eitt af þremur alsystkinum undan Ljönslöpp og Lýsingi frá Voðmúlasstöðum sem Ketilsstaðaæktunin byggist á. Hrafn frá Holtsmúla og Neisti frá Skollagróf eru líka bakvið hana og svo a.m.k 1 athyglisverð hryssa sem hét Elísa frá Stóra Sandfelli sem var dóttir Sörla frá Sauðarkróki en hún var með 8,08 í aðaleinkunn og 8,65 fyrir hæfileika, þ.a 9,0 fyrir tölt, skeið og vilja.

Glódís móðir Greips hefur eignast 13 afkvæmi, 7 þeirra hafa hlotið kynbótadóm og er aðaleinkunn þeirra 8,01, þ.a hafa 4 þeirra hlotið 1.verðlaun. 

Hæst dæmda systkinið er Sædís, með 8,33 fyrir sköpulag, 8,47 fyrir hæfileika og 8,41 í aðaleinkunn. Þ.a 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk. vilja og hægt tölt og 9,5 fyrir fegurð í reið.

 Greipur er vel skapaður, rúmur, fallega hágengur og viljugur alhliðahestur.

 

Birti ég hér hæðsta dóm Greips sem hann hlaut í Hafnarfirði í vor:

Sköpulag: 8  8  8,5  8,5  8 8,5  9  7  Samtals 8,28

Hæfileika: 8,5  7  9  8  8,5  8,5  8,5  8  Samtals 8,36

Aðaleikunn:  8,33  Hægt tölt 8 Hægt stökk 8

 

 greipur_landsmt11_048            Greipur á LM  greipur_2            I Hafnarfirði
 greipur_7  
          Myndir: Gangmyllan