23
Oct 12

Framkvæmd er komin með heiðursverðlaun, hún er með 117 stig og 5 sýnd afkvæmi. Framkvæmd er fimmta hryssan úr okkar ræktun til að ná þeim árangri. Fyrsta hryssan var Hugmynd, móðir Framkvæmdar, en hún náði þeim árangri árið 2000, svo Vakning 2004,  Ljónslöpp 2009, Álfadís 2011 og nú Framkvæmd 2012. Framkvæmd er sem sagt dóttir Hugmyndar frá Ketilsstöðum. Hugmynd var undan Ör frá Ketilsstöðum, sem var með 1.verðlaun fyrir afkvæmi, og Mána frá sama bæ, sem hlaut 1.verðlaun fyrir afkvæmi aðeins 9 vetra gamall.

Faðir Framkvæmdar er Hrafn frá Holtsmúla sem var með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, en hann var sonur Snæfaxa frá Páfastöðum sem  var einungis byggingadæmdur með 7,80 og Jarpar frá Holtsmúla sem var með 1.verðlaun fyrir afkvæmi.

Hrossin sem dæmd eru undan Framkvæmd eru:
Minning með 8,25, 5 vetra gömul, þ.a 9,5 fyrir skeið.
Djörfung 8,23, 4 vetra gömul, þ.a með 9,5 fyrir skeið og vilja.
Flugnir 8,38 sjö vetra gamall, Þ.a 9,5 fyrir vilja og 10 fyrir skeið.
Flaumur med 8,03 sex vetra gamall.
Frami með 8,02 fimm vetra gamall.

Það verður spennandi að lesa samantektina um hana og afkvæmin hennar en við erum nokkuð viss um að minnst verði á vekurðina og viljann sem hún erfir sterkt frá sér. Hér fyrir neðan birti ég myndir af afkvæmum hennar fimm sem telja inn í þennan dóm.

minning skeid djorfung lm08 Flugnir12 5 Flaumur 1 2 Frami 9 Myndir: Axel Jón og Gangmyllan