10
May 13

Á sýningunni Ræktun 2013 á Ingólfshvoli var Álfadís heiðruð og gerð að heiðurshryssu suðurlands. Bættist hún þar við í röðinni á frábærum ræktunnarhryssum á suðurlandi, sem heiðraðar hafa verið fyrir frábæran árángur í ræktun á þessari samkomu. Undan Álfadísi hafa komið sex hross sem eru fulldæmd öll með há 1 verðlaun. Tveir syni hennar hafa uppfyllt skilyrði til heiðursverðlaunar fyrir afkvæmi, Álfasteinn gat ekki tekið við sínum heiðursverðlaunum þar sem hann er ekki á landinu, en Álfur tók við sinum verðlaunum á LM í fyrra eins og flestir vita.

Undan Álfadísi er nú í tamningu hér hjá okkur Álfarinn albróðir Álfasteins, hann er fjögurra vetra og svo eru alsystkinin undan Orra í þjálfun líka, Álfhildur fimm vetra og svo Álffinnur sem er sex vetra.

Berglind tv, Álfadís, Sæsdóttir og Brynja Álfadís með afkomendum Ísólfur á Gandálfi, Jakob á Álffinni og Olil á Álfhildi Ísólfur Lindal á Gandálfi frá Selfossi

Jakob Sigurðsson á Álffinni frá Syðri Gegnishólum Olil Amble á Álfhildi frá Syðri Gegnishólum Bergur Jónsson á Ljóna frá Ketilsstöðum Ævar Örn Guðjónsson á Veigi frá Eystri-Hól

Elin Holst á Ísbrá frá Ketilsstöðum Álfadísarsýning  

Myndir: Vigdís Gunnarsdóttir í Lækjamóti