07
Aug 13

Sylgja er fimm vetra klárhryssa undan Spes og Natani frá Ketilsstöðum . Spes er undan Þernu frá Ketilsstöðum, sem hefur gefið úvalsklárhross oftast en einnig eru til nokkur alhliðahross undan henni. Systkini Spesar að  móðurinni til sem hafa hlotið fyrstu verðlaun eru, Þjónn, Krafla, Kraflar og svo Fálmar sem er albróðir Spesar. Fleiri af afkvæmum hennar eru með 9,5 fyrir gangtegundir. Faðir Spesar er Sveinn Hervar frá Þúfu  sem er með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og hefur gefið keppnishross i bunkum , að mestu klárhross. Faðir Sylgju er Natan frá Ketilsstöðum, sem dó fyrir aldur framm en undan honum hafa komið snillings hestar eins og Narri frá Vestri Leirárgörðum og Þröstur frá Efri Gegnishólum. Natan er undan Væntingu frá Ketilsstöðum, sem er einnig móðir Stemningar  og faðir hans er Kolfinnur frá Kjarnholtum.

Spes móðir Sylgju hlaut 8,09 í aðaleinkunn fimm vetra gömul og er fyndið að bera saman dóma mæðgnanna en þær eru t,d báðar með 7, 89 fyrir sköpulag og þótt ekki séu allar tölur eins eru þær allar í takti, enda er Sylgja eins og snýtt út úr nös móður sinnar og þar sem munar á er frekar um að ræða utanaðkomandi áhrif. Breyting á vægi í útreikningi gerir bilið á milli mæðgnanna meira. Spes fór siðan í sinn hæsta dóm 6 vetra gömul 8,20 m.a, 4x 9,0 og 2 x 9,5 í hæfileikadóm. Sylgja er elsta afkvæmi móðir sinnar og hefur borið gælunafnið Gorma, vegna þess hvað hún hreyfði sig með miklum og fjaðrandi hreyfingum sem folald og tryppi. Til gamans má geta að Sylgja heitir í höfuðið á langömmu sinni sem átti aðeins Þernu, áður en hún var seld til Þyskalands og hafa engar fréttir borist af henni siðan. Ellen Thamdrup tamdi hana á sinum tima og ber henni mikið gott orð og á henni mátti lesa á millli línanna að hún væri ekki endilega sammála þvi að hún væri seld úr ræktun, sem auðvitað varð að gera stundum til að láta dæmið ganga upp.

Dómurinn hennar Sylgju hljóðar svona: Sköpulag: 8,0  8,0  8,0  8,0  8,0  8,0  7,5  7,0  Samtals 7,89

Kostir: 8,5  8,5  5,0  8,5  8,5 9,0  8,0  Samtals 7,97  Hægt tölt 9,0  Hægt stökk 9,0  Aðaleinkunn  7,94

Miðssumarsyning hella 2013 042 Miðssumarsyning hella 2013 060 Miðssumarsyning hella 2013 048

Sylgja frá Ketilsstöðum, knapi Elin Holst. Myndir: Gangmyllan.