22
Aug 13

Síðastliðna helgi var haldið suðurlandsmót yngri flokka og tóku dætur okkar þær Brynja og Berglind þátt ásamt Brynju Kristinsdóttir sem hefur verið hér hjá okkur í sumar. Þær stóðu sig með stakri prýði og riðu allar A-úrslit. Brynja varð í fjórða sæti í fjórgang ungmenna á Vakari frá Ketilsstöðum, Berglind varð önnur í tölti ungmenna á Simba frá Ketilsstöðum og Brynja Kristins vann fjórgang unglinga og reið sig inn í A-úrslit í tölti á Tryggva Geir frá Steinnesi, síðan reið hún sig inn í A-úslit í tölti og fjórgangi á Reisn frá Ketilsstöðum en reið síðan töltið á henni og lenti í 6.sæti. Brynja K. reið einnig Blúndu frá Akrakoti í fimmgangi og varð önnur þar og varð fjórða í gæðingaskeiði.

IMG 7730 IMG 7627 IMG 7190 IMG 7113 IMG 7428 IMG 7552 FB

Mynd 1 og 2, Brynja og Vakar. Mynd 3 og 4 Berglind og Simbi. Mynd 5, Brynja Kristinsdóttir og Tryggvi Geir frá Steinnesi. Mynd 6, Brynja K. og Reisn frá Ketilsstöðum og mynd 7, Brynja K á Blúndu frá Akrakoti.

Myndir: Gangmyllan