16
Oct 13

Fjórði folinn sem ég ætla að skrifa um og birta myndir af er þriggja vetra sonur Framkvæmdar og Álffinns. Framkvæmd er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, móðir hennar er Hugmynd frá Ketilsstöðum og faðir er Hrafn frá Holtsmúla. Systkini hans að móðurinni til sem hafa hlotið fyrstu verðlaun eru, Minning 8,25, Djörfung 8,23, Flugnir 8,38, Flaumur 8,02 og Frami 8,03. Folinn er vel gerður og bráðmyndarlegur, flottar hreyfingar og fer vel af stað í tamningu.

Sonur Framkvæmdar og Álffinns 3 vetra. Mynd Gangmyllan. Þriggja vetra sonur framkvæmdar og Álffinns. Mynd Gangmyllan. Þriggja vetra sonur Framkvæmdar og Álffinns. Mynd Gangmyllan. Þriggja vetra sonur Framkvæmdar og Álffinns. Mynd Gangmyllan.