28
Apr 14

Álfarinn var tekinn í myndatöku um daginn, veðrið var frábært og gott færi. Bergur þjálfaði hann á reiðveginum hjá Selfossi og endaði svo á vellinum á Selfossi. Þjálfun gengur vel og er Álfarinn kattliðugur og hreyfingafallegur alhliða hestur með fimm góðar gangtegundir. Álfarinn er fimm vetra, móðir hans er Álfadís frá Selfossi og faðir er Keilir frá Miðsitju. Albróðir Álfarins er Álfasteinn frá Selfossi. Knapi á Álfarni er Bergur Jónsson.

Álfarinn apríl 2014 1 Álfarinn apríl 2014 2 Álfarinn apríl 2014 3 Álfarinn apríl 2014 4 Álfarinn apríl 2014 5 Álfarinn í þjálun í apríl 14 Álfarinn apríl 2014 7