19
Jul 12

Nú ætla ég að halda áfram að skrifa um hrossin sem við sýndum á landsmótinu og þá langar mig að byrja á Muggu frá Syðri Gegnishólum, sem við vorum með í fimm vetra flokki en hún hlaut 8,18 í aðaleinkunn, þ.a 7,93 fyrir sköpulag og 8, 35 fyrir hæfileika og var í 10. sæti í flokki fimm vetra hryssna.

Móðir Muggu er Mugga frá Kleifum sem er undan Lygnu frá Kleifum og Hnokka frá Steðja. Lygna var klárhryssa með 8,02 í aðaleinkunn, dóttir Loga frá Kletti. Hnokki frá Steðja var með 7,88 í alaleinkunn þ.a 8,5 fyrir skeið og 8,07 fyrir hæfileika.

Mugga átti 15 afkvæmi og það siðasta þegar hún var 26 vetra gömul, en Mugga er hennar næst siðasta afkvæmi. Þegar Mugga var 24 vetra var hún búin að eiga 13 folöld og hafði verið geld í tvö ár og fannst okkur miklar likur til þess að nú væri hún hætt í folaldseignum og langaði mig til þess að hún fengi að eiga nokkur ár í ellinni á Ketilsstöðum. Í einni ferðinni austur sá ég Ljóna og fannst mér hann ansi laglegur þannig að mér datt til hugar að það myndi ekkert saka að hún eyddi fríinu inni hjá honum og árið eftir kom Mugga. Þegar hún fæddist var ég sannfærð um að þetta væri hennar siðasta folald og að hún yrði grá eins og gamla en það fór nú öðruvisi. Gamla Mugga var með 7, 56 í aðaleinkunn og er með 102 í kynbótamati og Mugga er hennar fyrsta og eina fyrstu verðlauna afkvæmi. Þetta hljómar nú ekki vel en dætur hennar tvær hafa staðið sig mun betur og hafa raðað afkvæmum sínum í fyrstu verðlaun og út af gömlu eru Noregs, Íslands og Landsmótsmeistarar.

Faðir Muggu er Ljóni frá Ketilsstöðum sem er með 8,47 í aðaleinkunn, en Mugga er fyrsta afkvæmi hans sem kemur til dóms. Faðir Ljóna er Álfasteinn frá Selfossi, hann er með 8,54 í aðaleinkunn, en hann náði skilyrðum til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi, aðeins tíu vetra gamall. Álfasteinn er undan Álfadísi frá Selfossi sem fékk 8,31 i aðaleinkunn fjögurra vetra gömul og er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Faðir Álfasteins er Keilir frá Miðsitju sem er með 8,63 í aðaleinkunn og er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Mugga er nú í girðingu hjá Glóðafeyki frá Halakoti.

Landsmót 2012 436 MuggaLandsmót 2012 458 3 MuggaLandsmót 2012 458 7 MuggaLandsmót 2012 458 Mugga LM12 3 Mugga LM12 4 Mugga LM12 7 Mugga LM12 11 Mugga LM12 26 Mugga LM12 27 Mugga LM12 17

Mugga frá Syðri Gegnishólum  Myndir: Gangmyllan