10
Apr 17

Þriðju og síðustu Vetrarleikar Sleipnis voru haldnir í gær. Í opnum flokki vann Freyja Amble Gíslasdottir á Glampa frá Ketilsstöðum. Í öðru sæti var Brynja Amble Gísladóttir á Goða frá Ketilsstöðum, í sjötta sæti var Elin Holst á Herdísi frá Lönguhlið og í því sjöunda var Esther Kapinga á Fróða frá Ketilsstöðum. Í áhugamannaflokki varð Berglind fjórða á Simba frá Ketilsstöðum. Vinningshafi samanlagt frá Vetrarleikum 2017 í opnum flokki varð Brynja með tvisvar sinnum fyrsta sæti og einu sinni annað sætið. Freyja var í öðru sæti með einu sinni 3. sætið og einu sinni 1. sæti.

{gallery}WinterTolt32017{/gallery}