30
May 17

Þessi mynd var tekin á fallegu kvöldi í síðustu viku. Merin á myndinni er Heilladís frá Syðri-Gegnihólum undan Álfadís frá Selfossi og Suðra frá Holtsmúla. Hún er með fyrstu verðlaun aðaleinkunn 8,32. Hún er fimmgangs og hlaut 8,46 fyrir hæfileika, þar af 9,0 fyrir hægt tölt og fegurð í reið. Með henni á myndinnii er yngsta afkvæmið, hestur fæddur í ár undan Krák frá Blesastöðum.

{gallery}Heilladis foal 2017{/gallery}