28
Jul 17

Þessi 4 vetra uppáhalds og gæðingshryssa, Hugmynd frá Ketilsstöðum, hlaut frábæran dóm á Hellu í gær, en aðaleinkunn hennar varð 8,32.

Fyrir sköpulag fékk hún 8,02 og hæfileika 8,52. Hún hefur verið sérstök frá fyrsta degi í tamningu og kláraði þessa sýningu auðveldlega. 

Móðir hennar er Álfasteins og Framkvæmdardóttirin Djörfung frá Ketilsstöðum en hún var með 8,23 í aðaleinkunn 4 vetra 2008, þar af 8,69 fyrir hæfileika.

Faðir Hugmyndar er Aðall frá Nýjabæ, sem mér sýnist að vanti einungis 2 afkvæmi til að ná heiðursverðlaunum. 

Til gamans má geta að amma hennar og langamma hlutu báðar heiðursverðlaun fyrir afkvæmi

{gallery}HugmyndHella2017{/gallery}