06
Dec 08

Framtíð frá KetilsstöðumOlil Amble fæddist í Oslo í Noregi 1963, er yngst fimm barna og frá því hún man eftir sér hefur hún haft óendanlegan áhuga á hestum. Þar sem engin í hennar fjölskyldu stundaði hestamennsku var ekkert auðvelt að komast í kynni við hesta enda sárafáir hestar á svæðinu. Smám saman tókst henni að kynnast hestafólki og fékk þá einstöku sinnum að moka, kemba og setjast á bak.

Svo fór reyndar allt að batna þegar nágrannar hennar keyptu íslenskan hest á þriðja vetri sem reiðhest handa börnunum sínum. Börnin réðu ekki við hestinn og fljótlega misstu þau því áhugann. Olil réði heldur ekki við hestinn og henti hann henni af baki hægri vinstri. Áhuginn var hræðslunni yfirsterkari þannig að hún fór bara aftur á bak.

Með tímanum náði hún loks betri tökum á hestinum og fékk upplýsingar um að íslenski hesturinn hafði fleiri gangtegundir en venjulegir hestar. Töltið var eitthvað sem Olil velti mikið fyrir sér og til að læra fékk hún að fara á bak á eðlistöltara og ríða honum á malbikinu og hlusta á taktinn.

Hún lærði síðan hjá reiðkennara á islenskum hestum og hóf að taka þátt í keppnum. "Þegar ég lít til baka var þetta mjög  skemmtilegt tímabil sem ég hefði ekki viljað vera án. Svo fór ég að heyra sögur um Ísland, eyjuna þar sem voru jafnmargir hestar og mannfólk. Þetta hljómaði óneitanlega mjög vel." Olil fékk fljótt atvinnutilboð frá Íslandi og var hún ekki lengi að ákveða sig og sautján ára gömul fór hún til Íslands og ætlaði að dvelja í eitt ár. Eftir á að hyggja fannst Olil hún náttúrlega allt of úng til að fara til Íslands en í Noregi var bara engin menntun í boði í hestamennsku þannig að það var ekki mjög hvetjandi fyrir hana að halda áfram í skóla í heimalandinu.

 

Olil fór að vinna við tamningar og þjálfun á Íslandi, fyrst að Stóra-Hofi og síðar í Ey i Landeyjum. Olil segir að þetta hafi verið ótrúlega skemmtilegt tímabil og fyrr en varði hafi árið á íslandi liðið fór hún heim til Noregs til að halda áfram í skóla. En hún var búinn að kynnast lífinu á Íslandi og gat ekki beðið eftir að snúa aftur svo eftir tæpt hálft ár heima í Noregi snéri hún aftur til Íslands til að vinna við tamningar í Ey í Landeyjum. Þaðan lá leiðin í Skarð í Landssveit og árið 1986 fluttist hún að Stangarholti á Mýrum og bjó þar í tíu ár. Þá var Freyja nýfædd og síðan kom Steinar 1991 og Brynja 1993.

Olil hefur alltaf haft mikinn áhuga á hrossarækt og fyrir vestan eignaðist hún þær hryssur sem hún ræktar út frá. Olil kynntist Jóhannesi Stefánssyni frá Kleifum og eignaðist Muggu frá Kleifum sem er dóttir Hnokka frá Steðja og 1 verðlauna hryssunni Lygnu frá Kleifum.

Mugga er orðin 26 vetra og er enn að eiga folöld. Út af henni á Olil þrjár gráar hryssur sem notaðar eru í ræktunin. Muska, dóttir Frama frá Bakka og Lygnu frá Kleifum og dætur hennar, 1 verðlauna hryssurnar Mylla Kolfinnsdóttir frá Kjarnholtum og Gráhildur Randversdóttir frá Nýjabæ.

"Jóhannes gaf okkur gamla stóðmeri sem var í miklu uppáhaldi hjá honum en hún hét Spurning frá Kleifum. Undan henni fengum við einn hest og eina meri, Grýla Kolfinnsdóttir frá Stangarholti sem er móðir Álfadísar frá Selfossi. Spurning og Mugga eru töluvert skyldar, eru báðar undan dætrum  Loga frá Kletti." Það var engin stefna í sjálfu sér hjá Olil að rækta hross frá Jóhannesi frá Kleifum en hún reyndi að vera opin og rækta undan mörgum merum.

Þegar Olil var loksins búin að velja þær hryssur sem hana langaði til að rækta undan var niðurstaðan þessi. "Mitt ræktunarmarkmið hefur alltaf verið að getað ræktað hross sem henta vel í keppni og helst með hæfileika sem eru afgerandi." Það má segja að þetta markmið hennar hafi skilað sér því t.d Gormur, sonur Musku og Sveins Hervarssonar sem var í B úrslitum í B flokki á landsmótinu í sumar á sínu fyrsta keppnis ári.

Olil byrjaði að keppa í Noregi, tók þátt í ýmsum greinum t.d. fimiæfingum, víðavangshlaupi, hindrunarstökki og þrautakeppni. Síðan fór hún að taka þátt í öllum greinum á íslenskum hestum. Síðasta mótið sem hún tók þátt í áður en hún fór til Íslands var Norðurlandamótið sem haldið var í Svíðþjóð árið 1980 og varð þar m.a norðurlandameistari í samanlögðum greinum. Olil hefur tekið unnið marga frækilega sigra á íslenska hestinum gegnum tíðina og hefur sigrað töltkeppnir, A og B flokka á Fjórðungsmótum og öðrum stórmótum. Hún hefur verið í úrslitum í töltkeppnum og í A og B flokki á Landsmótum. Sigrað töltið á Landsmóti hestamanna og er margfaldur íslandsmeistari, norðurlandameistari og heimsmeistari.