• Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
    Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
  • Freyja and Elin
    Freyja and Elin
  • Karen Rós, Álfadís and Olil
    Karen Rós, Álfadís and Olil
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Sandra and Sirkus frá Syðri Gegnishólum
    Sandra and Sirkus frá Syðri Gegnishólum
  • Olil and Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
  • Bergur and Ljóni frá Ketilsstöðum
    Bergur and Ljóni frá Ketilsstöðum
  • Olil and Védís frá Hellubæ
    Olil and Védís frá Hellubæ
  • Olil and Gramur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Gramur frá Syðri Gegnishólum
  • Tígur, son of Ljónslöpp and Álffinnur born 2010
    Tígur, son of Ljónslöpp and Álffinnur born 2010
  • Brynja and Vakar frá Ketilsstöðum
    Brynja and Vakar frá Ketilsstöðum
  • Beauty in the mist
    Beauty in the mist
  • Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
    Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
  • Álfadís
    Álfadís
  • Freyja and Gormur frá Selfossi
    Freyja and Gormur frá Selfossi
  • Katla og Bergur
    Katla og Bergur
  • Breeders of the year 2010
    Breeders of the year 2010
  • Ófeig, Grábrá and Christina
    Ófeig, Grábrá and Christina
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
    Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
  • Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum
    Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum
  • Mothercare
    Mothercare
  • Álfadís, Grýla and Heilladís
    Álfadís, Grýla and Heilladís
  • Friends
    Friends
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Bergur and Álfasteinn frá Selfossi
    Bergur and Álfasteinn frá Selfossi
  • Jón Bergsson
    Jón Bergsson
  • Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
    Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
  • Álffinnur frá Syðri Gegnishólum
    Álffinnur frá Syðri Gegnishólum
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Djörfung frá Ketilsstöðum
    Djörfung frá Ketilsstöðum
  • Breeders of the year 2012
    Breeders of the year 2012
  • Tesla frá Ketilsstöðum born 2010
    Tesla frá Ketilsstöðum born 2010
  • Brynja and Berglind
    Brynja and Berglind
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Karen Rós
    Karen Rós
  • Lokkur frá Syðri Gegnishólum
    Lokkur frá Syðri Gegnishólum
  • Álfasteinn and Hetta
    Álfasteinn and Hetta
  • Breeders of the year 2010
    Breeders of the year 2010
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Brynja and Vakar in Piaff
    Brynja and Vakar in Piaff
  • Christina the owner and Olil the breeder
    Christina the owner and Olil the breeder
  • Sólrún
    Sólrún
  • Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
  • Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
    Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Jónatan frá Syðri Gegnishólum
    Jónatan frá Syðri Gegnishólum
  • Wintertime
    Wintertime
  • Freyja and Muggur
    Freyja and Muggur
  • Bergur and Lilja Dís LM 2011
    Bergur and Lilja Dís LM 2011
  • Birthday present
    Birthday present
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Álfur frá Selfossi
    Álfur frá Selfossi
  • Bergur and Ægir frá Ketilsstöðum
    Bergur and Ægir frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Elin and Hugur frá Ketilsstöðum
    Elin and Hugur frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Natan frá Ketilsstöðum
    Natan frá Ketilsstöðum
  • Olil and Tíbrá frá Ketilsstöðum
    Olil and Tíbrá frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Freyja and Gormur frá Selfossi
    Freyja and Gormur frá Selfossi
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Spes and Tesla frá Ketilsstöðum
    Spes and Tesla frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Jóhannes Stefánsson
    Jóhannes Stefánsson
  • Hátign and Drift
    Hátign and Drift
  • Álfadís mare of honor 2013
    Álfadís mare of honor 2013
  • Bergur and Bylgja frá Ketilsstöðum
    Bergur and Bylgja frá Ketilsstöðum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
    Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
  • Berglind and Simbi frá Ketilsstöðum
    Berglind and Simbi frá Ketilsstöðum
  • Elin og Frami 2016
    Elin og Frami 2016
  • Berglind and Brynja
    Berglind and Brynja
  • Álfur frá Selfossi
    Álfur frá Selfossi
  • Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
    Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
  • Kira and Brynja
    Kira and Brynja
  • Dennis and Álfasteinn frá Selfossi
    Dennis and Álfasteinn frá Selfossi
  • Álfadís mare of honor 2013
    Álfadís mare of honor 2013
  • Vigdís Finnbogadóttir
    Vigdís Finnbogadóttir
  • Olil and Heilladís
    Olil and Heilladís
  • Bergur and Hugur frá Ketilsstöðum
    Bergur and Hugur frá Ketilsstöðum
  • The queen :) Katla
    The queen :) Katla
  • Olil and Heilladís frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Heilladís frá Syðri Gegnishólum
  • Sunset at Syðri Gegnishólar
    Sunset at Syðri Gegnishólar
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Freyja and Muggur
    Freyja and Muggur
  • Julio Borba
    Julio Borba
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Álfadís and Álfaklettur 2013
    Álfadís and Álfaklettur 2013
  • Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
  • Tesla frá Ketilsstöðum
    Tesla frá Ketilsstöðum
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Olil and Sprengja frá Ketilsstöðum
    Olil and Sprengja frá Ketilsstöðum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Lokkur frá Syðri Gegnishólum
    Lokkur frá Syðri Gegnishólum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Bergur and Gandálfur frá Selfossi
    Bergur and Gandálfur frá Selfossi
  • Spurning frá Syðri Gegnishólum
    Spurning frá Syðri Gegnishólum
  • Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
    Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
  • Kira and Kraflar
    Kira and Kraflar
07
Mar 17

Manni verður mikið úr verki þegar dagur er tekinn snemma.

{gallery}EarlyMorningWork7march2017{/gallery}

02
Mar 17

Olil var með námskeið hjá Ylva Hagander, Fors gård. Þangað mætti m.a Tígur frá Ketilsstöðum, Mr Butt, sem við erum nýbúin að selja til Svíþjóðar, eigandi er Cecilia Göransson. Móðir Tígurs er Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og faðir er Álffinnur frá Syðri Gegnishólum.:

)Við Ylva skemmtum okkur konunglega.:)

{gallery}TigurNamskeidMars2017{/gallery}

27
Feb 17

Þegar við vorum að þjálfa í dag, tókum við allt í einu eftir því að rúmlega helmingur hrossanna í höllinni voru frá Hellubæ og að Vaka sá mikli gæðingur er móðir þeirra allra. Það var auðvitað ekkert hægt annað en að mynda þau. Lengst til vinstri er Váli á sjötta vetur undan Kiljan frá Steinnesi, svo Vinátta á fimmta, undan Ljóna frá Ketilsstöðum og sú yngsta er nn. á fjórða,undan Brimni frá Ketilsstöðum. Vaka var botnlaus gæðingur og er að ég best veit með hæsta hæfileikadóm sem 4ra vetra klárhryssa hefur fengið, samtals 8,48 þ.a 9,5 fyrir brokk, stökk og hægt stökk og 9,0 fyrir tölt, fegurð í reið og vilja. Vaka er undan Golu Gáskadóttir frá Hellubæ og Feyki frá Hafsteinsstöðum. Fjögur afkvæmi Vöku hafa hlotið 1. verðlaun. Við erum svo ljónheppin að eiga eina úrvals klárhryssu undan henni hér í okkar ræktun og er hún, Védís, m.a með 9,5 fyrir hægt stökk eins og móðir sín og bróðir, Vestri frá Hellubæ. Verðmætur eginleiki í dag þegar erfitt er að finna hesta með gott stökk.

{gallery}VakasOffsprings27Feb2017{/gallery}

23
Feb 17


Tvö ár eru liðin siðan þessi auglysing frá okkur af Bergi og Kötlu var sett á vegginn í Sprettshöllinni. Þau unnu Gæðingafimi Meistaradeildarinnar með yfirburðum í kvöld á sama stað. 

{gallery}MDFimi23Feb2017{/gallery}

 

12
Feb 17

Fyrsta vetrarmót Sleipnis var haldið í gær og i opnum flokki sigraði Brynja á Goða frá Ketilsstöðum 7 vetra, hann er undan Væntingu frá Ketilsstöðum og Álffinni frá Syðri Gegnishólum. Freyja var í þriðja sæti á Bylgju frá Ketilsstöðum 11 vetra, en hún er undan Vakningu frá Ketilsstöðum og Álfasteini frá Selfossi.

{gallery}Wintergames111Feb2017{/gallery}

 

11
Feb 17

Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru síðastliðið fimmtudagskvöld í fyrstu keppni Meistaradeildarinnar á þessu ári. Fyrsta keppnisgreinin var 4 gangur og var útkoman frábær fyrir okkar lið, Elin og Frami voru í fyrsta sæti, Bergur og Katla í öðru sæti og nýliðinn okkar hún Freyja á Álfastjörnu hafnaði í fimmta sæti.
Við fengum að auki liðaplattann sem gefinn er liðinu með besta árangurinn í 4 gangi.

{gallery}Meistaradeidlin 9.feb.2017{/gallery}

19
Jan 17

Þessi ungi og mjög svo efnilegi stóðhestur er seldur og farinn úr landi. Hann er nú staðsettur hjá nýjum eigendum sínum Söndru og Roger Scherrer á Reithof Neckertal í Swiss. Hann fór í 1. verðlaun aðeins 4 vetra gamall og í vor, þá 5 vetra, hlaut hann hæst 8,38.
Móðir hanns er Vænting frá Ketilsstöðum og faðir er Álfur frá Selfossi. Við vonum að hann reynist eins vel og hann lofar.

Við óskum Söndru of stefni alls hins besta í framtíðinni.

{gallery}Stefnir 19. januar 2017{/gallery}

09
Dec 16

Þetta er Gormur frá Selfossi, hann er á 17. vetur, staðsettur á Gotlandi í Svíþjóð. Þjálfari hans og eigandi er Sara Lundberg sem hefur unnið hjá okkur í nokkur ár. Gormur er fyrsta Sveins-Hervars afkvæmið sem við ræktuðum en það gerðum við áður en hann fór í 1 verðlaun. Gormur hlaut 8,22 í kynbótadómi 6 vetra gamall, sýndur sem geldingur og 8 vetra gamall var hann í úrslitum í B flokki á Landsmóti. Siðan hefur Sveinn Hervar gefið okkur marga frábæra klárhesta eins og Framtíð, Spes, Frama, Fálmar og albróðir Gorms, Gram. Enn erum við að halda undir þennan frábæra hest og næsta sumar eigum við von á tveimur afkvæmum hans, undan systurnar Álfadísi og Aðaldísi.

{gallery}Gormur from Selfoss{/gallery}

06
Dec 16

Var að taka til í myndum í dag og rakst á þessar skemmtilegu gömlu myndir.

Þær voru teknar á Landsmótinu 1990 á Vindheimamelum þar sem við Bergur riðum okkur inn í úrslit í A flokki á nákvæmlega sömu einkunninni,  8,70. I úrslitunum höfðu Bergur og Hugmynd frá Ketilsstöðum betur og enduðu í sjötta sæti, en við Sörli frá Skjólbrekku urðum í því sjöunda. 26 ár eru liðin síðan þá. 

{gallery}Gamlar myndir 5.des 2016{/gallery}

06
Dec 16

Huldumær frá Syðri Gegnishólum er fjórða hæst dæmda 4. vetra hryssa landsins 2016.

Fyrir sköpulag fékk hún 8,01 og hæfileika 8,48 þ.a. 9,0 fyrir tölt, fegurð í reið og vílji og 9,5 fyrir fet. Aðaleinkunn var 8,29.

Móðir er Álfadís frá Selfossi og faðir Sær frá Bakkakoti.
Við eigum von á folaldi undan Huldumær og Frama frá Ketilsstöðum á þessu ári en svo er planið að taka hana aftur inn til frekarri þjálfunnar.

{gallery}Huldumaer 10.jan 2017{/gallery}

26
Nov 16

Á alþjóðlegri hestasýningu í Svíþjóð, sterkri keppni þar sem fjór- og fimm gangarar kepptu saman, enduðum við Álffinnur í öðru sæti og valin sem besta fimmgangs parið. Einn dómarinn var með okkur í 1. sæti og hæsta einkunnin okkar var 9,0 fyrir skeið. Kærar þakkir fyrir að hafa verið boðið að ríða fyrir Íslands hönd, þetta var hrikalega gaman og frábær endir á keppnisárinu 2016, Ketilsstaðir / Syðri Gegnishólar.

 {gallery}Sweden international horse show- novermber 2016{/gallery}

05
Nov 16

Á þessu ári komu 18 hross frá okkar ræktun til dóms, öll þeirra utan eins hlutu fyrstu verðlaun. Nákvæmlega helmingur hrossana, níu stykki eru klárhross, með 5,0 fyrir skeið . Til gamans má geta að níu þessarra 18 hrossa eru undan bæði hryssum og hestum ræktuðum af okkur.

16 þeirra voru sýnd á Íslandi og 2 í Þýskalandi. Af hrossum sýndum á Íslandi unnu 9 sér inn þátttökurétt á Landsmótinu en 7 þeirra voru endursýnd þar.
Þessi sjö hross voru endursýnd á Landsmótinu og náðu fjögur þeirra að vera meðal 10 efstu. Álfarinn hlaut 8,63 og varð í sjöunda sæti í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta, Álfastjarna 8,43 í áttunda sæti í 6 vera flokki hryssna, Álfgrímur með 8,46 í sjötta sæti í flokki fimm vetra stóðhesta og Huldumær 8,29 í fjórða sæti í flokki 4 vetra hryssna.
Víð sýndum fjórar fjögurra vetra hryssur á árinu og allar hlutu þær 1.verðlaun sem okkur finnst frekar flottur árangur.
Einnig finnst okkur vel við hæfi að minnast á einstakan árangur Álfadísar frá Selfossi sem náði þeim afrekum að eiga afkvæmi í öllum fjórum aldursflokkum kynbótahrossa á Landsmótinu. Þau voru öll í topp tíu í sínum flokkum og tvö þeirra eru klárhross. Auk þess var sonur hennar Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum sýndur til 1.verðlauna fyrir afkvæmi á Landsmótinu og hlaut hann annað sætið.
Annað sem var mjög sérstakt er að 24% kynbótahrossanna á Landsmótinu áttu ættir sínar að rekja til hennar sem líklega er einsdæmi og þætti líklega mikið þó um stóðhest væri að ræða. En einungis sextán ár eru liðin frá því að hún var sjálf stjarna á Landsmótinu í Reykjavík 2000, fjögurra vetra gömul.
Sonur hennar Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum sem er okkar hæst dæmda hross í ár fór vel af stað sem kynbótahestur, þar sem hans elsta og eina afkvæmi fætt 2012, Lygna hlaut 8,02 í aðaleinkunn.
Meðaleinkunn 18 hrossa fyrir sköpulag er 8,21. Fyrir hæfileika er 8,30 og aðaleinkunn 8,27. Meðalaldur þeirra eru 5,5 ár. 17 af 18 hrossum yfir átta, sem þýðir að við erum með 94,4% hrossa í fyrstu verðlaun.

Hrossin sem sýnd voru á þessu ári eru:

Álfarinn frá Syðri Gegnishólum 7 vetra 8,65
Katla frá Ketilsstöðum 8 vetra 8,52
Stúdent frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,47
Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum 5 vetra 8,46
Álfastjarna frá Syðri Gegnishólum 6 vetra 8,43
Fákur frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,41
Stefnir frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,38
Huldumær frá Syðri Gegnishólum 4 vetra 8,29
Tígur frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,23
Goði frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,23
Glampi frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,22
Pegasus frá Ketilsstöðum 7 vetra 8,15
Meginn frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,11
Framsýn frá Ketilsstöðum 4 vetra 8,10
Spurning frá Syðri Gegnishólum 4 vetra 8,08
Tesla frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,04
Lygna frá Syðri Gegnishólum 4 vetra 8,02
Heillastjarna frá Syðri Gegnishólum 5 vetra 7,98

{gallery}Breeding evaluation 2016{/gallery}

16
Sep 15

Á þessu ári náðist það markmið sem við settum okkur þegar afkvæmi Álffinns staðfestu von og trú okkar um hversu fljót til, öflug og efnileg þau eru. Markmiðið var að sýna 15 afkvæmi hans til fullnaðardóms í kynbótadómi og ná með því tilsettum lágmörkum til 1. verðlauna fyrir afkvæmi, en Álffinnur er aðeins 8 vetra gamall.
15 afkvæmi eru sýnd, tvö í fyrra og þrettán ný í ár. Þar af er ein hryssa, Vinátta frá Hellubæ, sem fór í 1. verðlaun í fyrra 4 vetra með 8,04, var endursýnd í ár, 5 vetra gömul og hlaut í aðaleinkunn 8,29. Ég er ekki viss um það hvor dómurinn telst gildur í útreikningum, hvor telst hærri í kynbótamatinu, en í okkar útreikningum tökum við mið af 5 vetra dómnum hennar. Þannig að samkvæmt okkar útreikningum er gildandi einn dómur síðan í fyrra en það var 4 vetra klárhesturinn Goði frá Ketilsstöðum sem hlaut í aðaleinkunn 8,08, fyrir sköpulag 8,02, hæfileika 8,12 þ.a. 9,0 fyrir tölt og vilja.

14 dómar frá því í ár, ss. eitt hross endusýnt og 13 nýjir dómar frá því í ár. Þrjú hross hafa verið endursýnd á árínu, fyrst Stúdent frá Ketilsstöðum 5 vetra, sem var sýndur á aukasýningu í Spretti með einkuninna 8,36 og svo aftur á FM á Stekkhólma þar sem hann hlaut aftur 8,36 og sigraði 5 vetra flokkinn og var hæst dæmdi stóðhestur mótsins. Hin tvo hrossin sem voru endursýnd á þessu ári voru Bjóla frá Ketilsstöðum, 4 vetra, en hún byrjaði með 7,91 og og hækkaði í 7,99 og Ari frá Efri-Gegnishólum ,5 vetra, en hann var sýndur sem klárhestur í Spretti og endaði i 7,82 eftir frekar misheppnaða sýningu en síðan var hann þjálfaður áfrám, skeiðið var sótt og endaði í 8,18 þar sem hlutirnir gengu eins og við var búist.

Af þessum 15 hæstu sýningum afkvæmanna eru gildandi sjö 5 vetra sýningar og átta 4 vetra sýningar, en níu afkvæmanna hafa verið sýnd með góðum árangri fjögurra vetra gömul, það lægsta með 7,82 en það er Ásbrá frá Ketilsstöðum sem var sýnd sem klárhryssa í þetta sinn, með 9,0 fyrir hægt tölt og 8,5 fyrir tölt, vilja og fegurð.

Fjögur voru sýnd sem klárhross, fimm rétt hreyfðu einkunn á skeiði frá 5,5 til 6,5 og sex hlutu einkunn á skeiði frá 7,5 til 8,5.

Meðaleinkunn 15 sýndra afkvæma fyrir sköpulag er  8,13

                                                               Fyrir hæfileika      8,01

Og samtals aðaleinkunn fyrir 15 sýnd afkvæmi er      8,06

Hryssurnar sem eru mæður afkvæmanna eru allt frá heiðursverðlauna hryssum í lágt dæmdar og ósýndar hryssur sem hafa lítið sem ekkert gefið af sér, ss. þverskurður af íslenskum ræktunarhryssum. Okkar lýsing á afkvæmum Álffinns í megindráttum er að þau eru jákvæð, öflug og með góðan fótaburð. Viljinn hefur verið framúrskarandi, kjörkuð, orkumikil og spennulaus. 

Álffinnur er sonur heiðursverðlauna hrossanna Orra frá Þúfu og Álfadísar frá Selfossi, annar í röð fjögurra alsystkina sem öll hafa hlotið úrvalsdóma fjögurra vetra gömul. þ.e. 1. verðlaun. Það er Álfur frá Selfossi, 4 vetra 8,26, fyrsti dómur ( 8,06) Álffinnur frá Syðri Gegnishólum 4 vetra 8,24 ( fyrsti dómur 8,04) Álfhildur frá Syðri Gegnishólum 4 vetra 8,14 (fyrsti dómur 7,98) og Álfgrímur 8,11, en hann var bara sýndur einu sinni á þessu ári þar sem ekkert Landsmót var í ár.

Visst má telja að endanlega er búið að sýna elstu þrjú alsystkinin en þeirra hæsti dómur er Álfur 8,46, Álffinnur 8,37, Álfhildur 8,52, Álfgrímur stendur í 8,11 fjögurra vetra gamall og markmiðið er auðvitað að hann komi fram aftur í dóm á næstu ári.

Elsta alsystkinið, Álfur frá Selfossi hlaut 1.verðlaun fyrir afkvæmi 9 vetra gamall og og heiðursverðlaun 10 vetra, þannig að þessi góða útkoma Álffinns er engan veginn að koma okkur á óvart, hann er bara búinn að standa undir væntingum okkar. Væntingarnar byggjast á því að hér er orðið svo mikið öryggi í ættlínum hestsins.

Eitt af okkar markmiðum í ræktun er að rækta hross sem byrja ofar í stiganum ef svo má að orði komast, að þau séu eðlis sterkari andlega og líkamlega strax fjögurra vetra gömul. Okkar leið til þess að ná því markmiði er að stefna á og leggja áherslu á að nota í megindráttum stóðhesta og hryssur til ræktunar sem koma til dóms snemma, helst 4 vetra og alls ekki seinna en 5 vetra, því það segir svo mikið til um eðlisgetu. Svo ung hross koma ekki til dóms til afkasta nema að vera eðlissterk, allra mikilvægast er öflugur bolur, bak og lend og að í geðslaginu sé jákvæðni og vinnugleði.

Öll held ég að við séum með sama markmiðið þegar hrossin eru eldri og fullþroskuð, einfaldlega að hrossið sé á einhverjum punkti gæðingur, t.d. sigurvegari í keppni 8-10 vetra gamall. 

 Spurningin er, er þetta heimsmet? Okkur að vitandi er Álffinnur fyrsti hestur til að ná 1. verðlaunum fyrir afkvæmi 8 vetra gamall, allavega samkæmt núverandi reglum þessara verðlauna. En hefur það gerst að hestur hafi náð þeim með gömlu reglunum?

Afkvæmin sem um er að ræða er:

Stúdent frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinkunn 8,36. Fyrir sköpulag fékk hann 8,17 og  hæfileika 8,49 þ.a 8,5 fyrir tölt,brokk stökk, fegurð í reið,fet og hægt tölt og 9,0 fyrir vilja. Vínátta frá Hellubæ 5 vetra  8, 29 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag fékk hún 8,18 og hæfileika 8,35, Þ.a 8,5 fyrir tölt, stökk, vilji, fegurð í reið, fet og 8,0 fyrir brokk og skeið. Fákur frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinkunn 8,25. Fyrir sköpulag fékk hann 8,41 og hæfileika 8,15 þ.a 8,5 fyrir tölt, vilja, fegurð í reið og 8,0 skeið og hægt tölt. Finnur frá Ármóti 4 vetra, aðaleinkunn 8,21. Fyrir sköpulag fékk hann 8,68 og hæfileika 7,90 þ.a 8,0 fyrir tölt, stökk og hægt tölt og 8,5 fyrir vilja og fet. Fyrir skeið fékk hann 7,5. Ari frá Efri Gegnishólum 5 vetra, aðaleinkunn er 8,18. Fyrir sköpulag fékk hann 8,04 og hæfileika 8,28 Þ.a 8,5 fyrir tölt, stökk, vilji fegurð í reið, fet og 8,0 fyrir brokk hægt tölt og stökk. Fyrir skeið fékk hann 7,5. Arna frá Ármóti 4 vetra. Aðaleinkunn er 8,13. Fyrir sköpulag fékk hún 8,38 og hæfileika 8,0 þ.a 8,5 fyrir tölt,vilja, fegurð í reið, hægt tölt og 8,0 fyrir brokk og stökk.  Tigur frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinkunn 8,10. Fyrir sköpulag fékk hann 8,39 og hæfileika 7,90 þ.a 8,5 fyrir tölt,vilji fegurð í reið, fet og 8,0 fyrir brokk, stökk og hægt tölt. Goði frá Ketilsstöðum 4 vetra 2014, aðaleinkunn 8,08. Fyris sköpulag fékk hann 8,02 og hæfileika 8,12 þ.a 9,0 fyrir tölt og vilja og 8,5 fyrir brokk, stökk, fegurð í reið og fet. Glampi frá Ketilsstöðum 4 vetra, aðaleinkunn 8,02. Fyrir sköpulag fékk hann 8,18 og hæfileika 7,91 þ.a 9,0 fyrir fet og 8,5 fyrir tölt, brokk, vilji og fegurð í reið og hægt tölt. Bjóla frá Ketilsstöðum 4 vetra, aðaleinkunn 7,99. Fyrir sköpulag fékk hún 8,18 og 7,86 fyrir hæfileika þ.a 8,5 fyrir vilja og 8,0 fyrir tölt, stökk, fegurð í reið og hægt tölt. Tesla frá Ketilsstöðum 5 vetra aðaleinkunn 7, 97. Sköpulag 7,80 og hæfileikar 8,08 þ.a 9,0 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið og hægt tölt og 8,5 fyrir vilja. Skirnir frá Kverná 4 vetra, aðaleinkunn 7,95.  Sköpulag 7,78, fyrir hæfileika fékk hann 8,08, þ.a 8,5 fyrir tölt, vilja og fet og 8,0 fyri brokk og fegurð í reið. Bjarmi frá Bæ 4 vetra, aðaleinkunn 7,90. Sköpulag 8,28 og hæfileika 7,65 þ.a 8,0 fyrir tölt, stökk, vili og fegurð í reið. Ásbrá frá Ketilsstöðum 4 vetra, aðaleinkunn 7,81. Sköpulag 7,85 og hæfileikar 7,78 þ.a 9,0 fyrir hægt tölt og 8,5 fyrir tölt, vilji fegurð í reið fet. Hörn frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinunn 7,68. Sköpulag 7,76 og hæfileika 7,62, þ.a 8,0 fyrir tölt, stökk, vilji, fegurð í reið og hægt tölt.

13
Apr 15

Ég fann þessa fínu mynd af Alina og Seline frá Swiss með Júlíönu frá Ketilsstöðum. Þær voru klæddar jökkum með merki Gangmyllunnar. 
Myndin er tekin síðastliðið sumar. Júlíana er nú í Swiss hjá eiganda sínum Alina. Móðir Júlíönu er Júlía frá Ketilsstöðum og faðir Natan frá Ketilsstöðum.

{gallery}Juliana2015{/gallery}

01
Jan 15

2014 hefur verið gott ár og margt af því sem við höfum ætlað okkur að gera, hefur gengið upp. Á kynbótabrautinni og keppnisbrautinni hefur flest gengið að óskum og held ég að það sé hægt að fullyrða að þetta hafi verið okkar besta ár hingað til.

Á kynbótabrautinni hlutu 17 af 18 hrossum 1. verðlaun, þó svo að helmingur þeirra hafi verið sýnd sem klárhross. Óhætt er að segja að mörg hrossanna séu með glæsilega dóma, níu hrossanna hafa hlotið á bilinu frá 9,0 til 10, 0 fyrir tölt og er meðaleinkunn allra sýndra hrossa m.a  8,7 fyrir tölt, 8,4 fyrir brokk, 8,9 fyrir vilja og geðslag og 8,6 fyrir fegurð í reið. Meðaleinkunn skeiðs þeirra hrossa sem sýnd voru með skeiði er 8,0, en aðeins einn hestur hlaut 9,0 fyrir skeið á þessu ári, en það var Jörmuni.

Álfhildur 6 vetra fékk 10,0 fyrir tölt og þrjár hryssur hlutu 9,5 fyrir hægt tölt, en það voru þær Álfhildur og Katla 6 vetra og Álfastjarna 4 vetra. Frami og Tíbrá hlutu þá 9.0 fyrir hægt tölt. Einnig hlutu átta hross 9.0 fyrir tölt, það voru þau  Álffinnur og Frami 7 vetra , Katla 6 vetra, Tíbrá, Snekkja og  Bóla 5 vetra og Álfastjarna og Goði 4 vetra.

Ein 10,0 náðist fyrir vilja, en það var Álfhildur sem hlaut hana og litla systir hennar Álfastjarna fékk 9,5. Síðan náðust 8 x 9,0 fyrir vilja, en það voru þau Álffinnur og Frami 7 vetra, Katla og Sylgja 6 vetra, Tíbrá og Bóla 5 vetra og Goði 4 vetra.

9,5 hlaut Álfhildur fyrir fegurð í reið og þau Álfarinn, Frami, Katla, Tíbrá, Álfastjarna og Sylgja hlutu þar 9,0.

2 x 9,5 náðist fyrir fet, en það var Frami 7 vetra og Álfastjarna 4 vetra , síðan fékk Jörmuni 9,0 fyrir fet.

Einnig náðist 9,0 fyrir hægt stökk þrisvar sinnum en það voru þau Katla, Álfarinn og Sylgja.

Álffinnur byrjaði vel sem ræktunarhestur, tvö af hans fyrstu afkvæmum komu til dóms 4 vetra, þau Goði og Vinátta og hlutu þau bæði fyrstu verðlaun. Goði fékk m.a. 9 fyrir tölt og vilja og Vinátta 8,5 fyrir tölt, 9 fyrir stökk og 9.5 fyrir fet.

Til gamans má geta að heiðursverðlaunahryssurnar Álfadís og Ljónslöpp stóðu sig vel á árinu og áttu 5 og 4 avkvæmi sem tóku þátt í Landsmótinu, ýmist í kynbóta eða gæðingakeppni.

Á Landsmótinu áttum við svo þrjú kynbótahross í topp tíu, Álfhildur var efst í 6 vetra flokki hryssna, Snekkja í 4. sæti í 5 vetra flokki hryssna og Álfastjarna var í 7. sæti  flokki 4 vetra hryssna.

 

Á keppnisvellinum áttum við líka okkar besta ár, en hross úr okkar ræktun náðu átta sinnum að vera í topp 10 í Meistaradeildinni á þessu ári og finnst mér það persónulega alveg frábær árangur þar sem bestu knapar og hross landsins komu saman og styrkleiki mótaraðarinnar gífurlegur.

Þar náðist m.a. sigur í Gæðingafimi með hæstu einkunn frá upphafi en það var Álfhildur og svo náðist silfur í fjórgangi á Fálmari og silfur í T2 slaktaumatölti á Frama.

Simbi sigraði T2 slaktaumatöltið í KS deildinni fyrir norðan en þar var knapi Elvar Einarsson.

Vetrarmótaröð Sleipnis í opnum flokki ss. meistaraflokk vann Elin á Kötlu og Frama, með gull í tölti á öllum þremur mótunum.

Á opna WR íþrottamóti Sleipnis vann Bergur gæðingaskeið í meistaraflokki á Miningu, Elin fjórganginn í meistaraflokki á Frama, ég varð í öðru sæti í tölti meistaraflokks á Sprengju, Bergur í örðu sæti i Fimmgangi meistaraflokks á Strokk og Brynja og Spes í öðru sæti í fjórgangi í ungmennaflokki.

Elin og Frami enduðu í annað sæti í B flokki Sleipnis og unnu landsmótsúrtökuna með feikna einkunn og settu landsmóts sigurvegarann þar með fyrir aftan sig á því móti, þó svo að hlutirnir hafi ekki gengið upp á landsmótinu var þetta gríðarlega lofandi frammistaða. Einnig sigraði Brynja ungmennaflokk Sleipnis á sama móti og báðar umferðir á úrtökunni fyrir LM á Sprengju.

Á landsmótinu áttum við tvo fulltrúa í úrslitum en Brynja og Sprengja fóru beint í A-úrslit og náðu þar fimmta sæti í ungmennaflokki og Ísólfur Líndal og Gandálfur í B-úrslitum í A flokki.

Á Íslandsmótinu komust Elin og Frami í þriðja sæti í fjórgangi meistaraflokks.

Síðan unnum við þrjú gull á Suðurlandsmótinu, tvö þeirra í meistaraflokki, Fálmar vann fjórganginn og Frami slaktaumatöltið. Sylgja vann síðan opna flokkinn í fjórgangi í sinni fystu keppni.

Hross frá okkur voru líka að keppa erlendis með góðum árangri en hæst ber sigur Möru Staubli og Hlébarða í fimmgangi og þriðja sæti í slaktaumatölti á svissneska meistaramótinu og síðan annað sæti í fimmgangi og B-úrslit í slaktaumatölti á Miðevrópska meistaramótinu.

Markmiðið á þessu ári var að fá hærri kynbótadóma og gera hrossin sýnileg á keppnisvellinum og erum við mjög sátt við að það hafi gengið eftir. Markmiðið fyrir næsta ár er að halda þessari stefnu og ná ennþá meiri nýtingu, með því meina ég að sem mest af fæddum hrossum á búinu nái að uppfylla takmark ræktunarstefnu búsins að hljóta góðan kynbótadóm og skila sér í keppni með góðum árangri.

 Álfhildur frá Syðri Gegnishólum 6 vetra, undan Álfadísi frá Selfossi og Orra frá Þúfu. Aðaleinkunn 8, 52. Snekkja frá Ketilsstöðum 5 vetra, undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og Alvari frá Syðri Gegnishólum. Aðaleinkunn 8,42. Álfastjarna frá Syðri Gegnishólum 4 vetra undan Álfadísi frá Selfossi og Dug frá Þúfu. Aðaleinkunn 8,23. Álffinnur frá Syðri Gegnishólum byrjaði vel sem kýnbótahestur er tvö afkvæmi hans úr elsta árgangi fengu 1. verðlaun aðeins 4 vetra gömul. Móðir hans er Álfadís frá Selfossi og faðir hans er Orri frá Þúfu. Álfhildur frá Syðri Gegnishólum 6 vetra sigraði m.a gæðingafimina 7,78/8,77 í Meistaradeildinni. Móðir er Álfadís frá Selfossi og faðir er Orri frá Þúfu.Frami frá Ketilsstöðum 6 vetra, varð annar í T2 slaktaumatölti í Meistaradeildinni 8,43/8,54. Móðir hans er Framkvæmd frá Ketilsstöðum og faðir hans er Sveinn Hervar frá Þúfu.  Fálmar frá Ketilsstöðum 7 vetra varð í annað sæti í 4 gangi meistaradeildarinnar 7,30/ 7,97. Móðir er Þerna frá Ketilsstöðum og faðir er Sveinn Hervar frá Þúfu. Simbi frá Ketilsstöðum 13 vetra sigraði m.a slaktaumatölti í KS deildinni 6,87/7,50//,83, knapi var Elvar Einarsson. Móðir hans er Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og faðir hans er Kjarkur frá Ebilsstaðabæ.  Minning frá Ketilsstöðum sigraði Gæðingaskeiði á opna WR móti Sleipnis 7,54. Minning er undan Framkvæmd frá Ketilsstöðum og Gusti frá Hólí. thumb Frami Elin á pallinn á Íslandsmótinu, en hún og Frami enduðu í þriðja sæti í 4 gangi 7,30/7,57.  Sprengja frá Ketilsstöðum og Brynja urðu í 5 sæti 8,62 í ungmennaflokki á Landsmótinu. Móðir hennar er Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og faðir er Gígjar frá Auðsholtshjáleigu. Gandálfur frá Selfoossi 10 vetra og Ísólfur Lindal Þórisson riðu í B úrslit í A flokki á Landsmótinu, í millilriðlinum fékk hann 8,52. Gandálfur er undan Álfadísi frá Selfossi of Gusti frá Hóli. Fálmar frá Ketilsstöðum 7 vetra, sigraði m.a 4 gang meistaraflokk á Suðurlandsmótinu 7,47/7,57. Móðir hans er Þerna frá Ketilsstöðum og faðir hans er Sveinn Hervar frá Þúfu. Sylgja frá Ketilsstöðum sigraði opna flokkinn í 4 gangi á Suðurlandsmótinu 6,97/7,33. Móðir hennar er Spes frá Ketilsstöðum og faðir er Natan frá Ketilsstöðum. Frami frá Ketilsstöðum 7 vetra, sigraði T2 slaktaumatöltið meistaraflokk á Suðurlandsmótinu 7,30/7,92. Móðir hans er Framkvæmd frá Ketilsstöðum og faðir er Sveinn Hervar frá Þúfu. Mara Staubli og Hlébarði frá Ketilsstöðum, m.a svissneskir meistarar í 5 gangi 6,87/7,36.

15
Sep 14
Nú eru allar kynbótasýningar búnar á þessu ári og við hæfi að fara yfir árangur ræktunarbúsins okkar, Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar í kynbótasýningum á þessu ári 2014.
Á þessu ári komu 18 hross frá okkar ræktun til dóms, öll þeirra utan eins hlutu fyrstu verðlaun. 
14 þessara hrossa voru sýnd á Íslandi og 4 í Þýskalandi. Af hrossum sýndum á Íslandi unnu 9 sér inn þáttökurétt á Landsmótinu en 7 þeirra voru endursýnd þar.
Af þessum sjö hrossum náðu þrjú þeirra að vera meðal 10 efsu, en það voru Álfhildur 8,52 og hlaut hún efsta sætið í 6 vetra flokki hryssna, Snekkja 8,41 í fjórða sæti í 5 vera flokki hryssna og Álfastjarna með 8,23 og sjöunda sæti í flokki 4 vetra hryssna.
Af hrossum sýndum í Þýskalandi náðu einnig tvö hross lágmarki til þáttöku á Landsmóti en þessi fjögur hross voru öll áður sýnd á Íslandi í svipuðum tölum og þau hlutu nú.
Á síðsumarssýningu á Gaddstaðaflötum endursýndum við tvö hross sem hækkuðu sig bæði töluvert mikið, en í vor gekk ekki sem skyldi með þau.
 Einungis voru sýnd tvö fjögurra vetra hross á árinu, langt undir okkar vonum. Hlutirnir breyttust á síðastu stundu og best er að læra af reynslunni eitt skipti fyrir öll og vera ekkert að tjá sig oftar um tilvonandi afköst þeirra. Hversu efnileg sem þau virðist vera er ekkert í hendi í þeim efnum.
Hrossin sem sýnd voru á þessu ári eru:
Álfhildur frá Syðri Gegnishólum 6 vetra 8,52
Snekkja frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,42
Álfarinn frá Syðri Gegnishólum 5 vetra 8,40
Álffinnur frá Syðri Gegnishólum 7 vetra 8,37
Frami frá Ketilsstöðum 7 vetra 8,35
Katla frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,33
Jörmuni frá Syðri Gegnishólum 6 vetra 8,32
Tibrá frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,25
Álfastjarna frá Syðri Gegnishólum 4 vetra 8,23
Hvellhetta frá Ketilsstöðum 7 vetra 8,20
Fróði frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,15
Drift frá Ketilsstöðum 8 vetra 8,15
Bóla frá Syðri Gegnishólum 5 vetra 8,10
Goði frá Ketilsstöðum 4 vetra 8,08
Grábrók frá Syðri Gegnishólum 5 vetra 8,07
Sylgja frá Ketilsstöðum 6 vetra 8,05
Júliana frá Ketilsstöðum 5 vetra 8,04
Synd frá Ketilsstöðum 7 vetra 7,90
Aðaleinkunn 18 hrossa eru 8,22 og meðalaldur þeirra eru 5,7 ár. 17 af 18 hrossum yfir átta, sem þýðir að við erum með 94,4% hrossa í fyrstu verðlaun. Til gamans má geta að ellefu þessara hrossa eru undan bæði hryssum og hestum ræktuðum af okkur.

Álfhildur frá Syðri Gegnishólum, aðaleinkunn 8,52 og efsta sætið í flokki 6 vetra hryssna á LM2014. Álfhildur frá Syðri Gegnishólum, 6 vetra. Sköpulag 8,28, hæfileika 8,68 þ.a 10 0 fyrir tölt og vilja og 9,5 fyrir hægt tölt og fegurð í reið. 9,0 fyrir brokk og stökk, aðaleinkunn 8,52. Snekkja frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinkunn 8,41. Hun varð í fjórða sæti í flokki fimm vetra hryssna á LM 2014. Snekkja frá Ketilsstöðum, hún hlaut 8,42 í aðaleinkunn í sinn hæðsta dóm. Fyrir sköpulag fékk hún 8,38 og hæfileika 8,44 þ.a 9,0 fyrir tölt og 8,5 fyrir vilja, fegurð í reið og hægt tölt. Álfarinn frá Syðri Gegnishólum, aðaleinkunn 8,40. Fyrir sköpulag fékk hann 8,09 og hæfileika 8,60 þ.a 9,0 fyrir vilja, fegurð í reið og hægt stökk og 8,5 fyrir brokk tölt stökk, fet og hægt tölt. Álffinnur frá Syðri Gegnishólum 7 vetra, aðaleinkunn 8,37. Fyrir sköpulag fékk hann 7,96 og hæfileika 8,63 þ.a 9,0 fyrir tölt og vilja og 8,5 fyrir brokk, skeið, stökk og fegurð í reið. Frami frá Ketilsstöðum 7 vetra, aðaleinkunn 8,35. Hann fékk fyrir sköpulag 8,32 og hæfileika 8,37 þ.a 9,5 fyrir fet og 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk, fegurð í reið, vilja og hægt tölt. Katla frá Ketilsstöðum 6 vetra, aðaleinkunn 8,33. Hún fékk fyrir sköpulag 8,08 og hæfileika 8,49 þ.a 9,5 fyrir hægt tölt og 9,0 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið og vilja. Jörmuni frá Syðri Gegnishólum 6 vetra, aðaleinkunn 8,32. Fyrir sköpulag fékk hann 8,34 og hæfileika 8, 31 þ.a 9,0 fyrir skeið og fet og 8,5 fyrir vilja. Tíbrá frá Ketilsstöðum f vetra, aðaleinkunn 8,25. Hún fékk fyrir sköpulag 8,28 og hæfileika 8,24 þ.a 9,0 fyrir tölt ,brokk, stökk, fegurð í reið, vilja og hægt tölt. Álfastjarna frá Syðri Gegnishólum 4 vetra, í sjöunda sætið í flokki fjögurra vetra hryssna á LM 2014,aðaleinkunn 8,23. Álfastjarna frá Syðri Gegnishólum 4 vetra, aðaleinkunn 8,23. Hún fékk fyrir sköpulag 8,09 og hæfileika 8,32 þ.a 9,5 fyrir fet,. vilja og hægt tölt og 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk og fegurð í reið. Hvellhetta frá Ketilsstöðum 7 vetra, aðaleinkunn 8,20. Fyrir sköpulag fékk hún 8,39 og hæfileika 8,07 þ.a 8,5 fyrir skeið, stökk og vilja og 8,0 fyrir tölt . fegurð í reið. hægt tölt og hægt stökk. Fróði frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinkunn 8,15. Fyrir sköpulag fékk hann 8,09 og hæfileika 8,19 þ.a 8,5 fyrir brokk, skeið og vilja og 8,0 fyrir tölt, stökk, fegurð í reið og hægt tölt. Drift frá Ketilsstöðum 8 vetra, aðaleinkunn 8,15. Fyrir sköpulag fékk hún 7, 96 og hæfileika 8, 27 þ.a 8,5 fyrir brokk, skeið, vilji og fegurð í reið og 8,0 fyrir tölt, stökk, hægt tölt og hægt stökk. Bóla frá Syðri Gegnishólum 5 vetra, aðaleinkunn 8,10. Fyrir sköpulag fékk hún 8,07 og hæfileka 8,11 þ.a 9,0 fyrir tölt og vilja og 8,5 fyri brokk, fegurð í reið, hægt tölt og hægt stökk. Goði frá Ketilsstöðum 4 vetra, aðaleinkunn 8,08. Fyrir sköpulag fékk hann 8,02 og hæfileika 8,11 þ.a 9,0 fyrir tölt og vilja og 8,5 fyrir brokk stökk, fet og fegurð í reið. Grabrók frá Syðri Gegnishólum 5 vetra, aðaleinkunn 8,07. Hún fékk fyrir sköpulag 8,06 og hæfileika 8,o8 þ.a 8,5 fyrir vilja og 8,0 fyrir tölt, brokk, skeið, stökk, fet og fegurð í reið. Sylgja frá Ketilsstöðum 6 vetra, aðaleinkunn 8,05. Hún fékk fyrir sköpulag 7,94 og hæfileika 8,11 þ.a 9,0 fyrir stökk, fegurð í reið, vilja og hægt stökk og 8,5 fyrir tölt,brokk, fet og hægt tölt. Júlíana frá Ketilsstöðum 5 vetra, aðaleinkunn 8,04. Hún fékk fyri sköpulag 7, 72 og hæfileika 8,25 þ.a 8,5 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið og 8,0 fyrir brokk, skeið, stökk, hægt tölt og hægt stökk. Synd frá Ketilsstöðum 7 vetra, aðaleinkunn 7,90. Hún fékk fyrir sköpulag 7,96 og hæfileika 7,85 þ.a 8,5 fyrir tölt, brokk, stökk, fegurð í reið, vilja, hægt tölt og hægt stökk.

07
Sep 14

Síðasta keppni sumarsins fyrir okkur, kom í beinu framhaldi af síðssumssýningunni, en þarsíðsta föstudag var síðasti dagur síðssumarssýningarinnar og jafnframt fyrsti dagur suðurlandsmóts. Ég byrjaði á því að fara með Fálmar í tölt og miðað við að þetta hafi verið hans fyrsta töltkeppni var ég bara mjög ánægð með 7,23 í aðaleinkunn og sæti í B-úrslitum í meistaraflokki. Fór svo með Álffinn í fimmgang þó svo að hann hafi verið langt frá sínu besta og uppskar einkunnina 6,53 sem var þokkalegt miðað við aðstæður, en hann er langt frá því að vera í sportgírnum eftir kynbótasýningar sumarsins. En nú erum við að minnsta kosti komin með punkta til að taka þátt í meistaraflokki þegar lágmarkseinkunn þarf til. Einnig tók ég þátt í fjórgangi í opnum flokki á Sylgju frá Ketilsstöðum, en hún er bara 6 vetra gömul og var að taka þátt í sinni fyrstu keppni, forkeppni 6,97, úrslit 7,33 og 1.sætið, flott byrjun það. Síðan reið ég á Fálmari í fjórgangi meistaraflokki, forkeppni 7,47, úrslit 7,57 og 1.sætið, til gamans má geta að Fálmar og Spes móðir Sylgju eru alsystkini undan Þernu frá Ketilsstöðum og Sveini Hervari frá Þúfu. Elin ákvað að riða Frama bara í T2 að þessu sinni eftir frábært gengi á Íslandsmóti, þar sem hún og Frami enduðu í 3.sæti í fjórgangi. Enda Frami ungur, aðeins 7 vetra gamall og þegar búinn að keppa mikið á þessu ári. Mjúkur endir á keppnisárinu hjá Elinu og Frama, enda slakataumatöltið mjög svo hestvæn keppni, þau stóðu sig með prýði, forkeppni 7,30 úrslit 7,92 og 1.sætið. Okkur finnst að takmarkið okkar fyrir þetta ár hafi tekist, en það er að gera okkar ræktun meira sýnilega á keppnisvellinum.

IMG 6526  IMG 5818  IMG 6590

24
Aug 14

Þegar síðsumarsýning er afstaðin getum við ekki verið annað en ánægð. Við fórum með 2 hross í kynbótadóm, endursýningu, þau Sylgju og Goða frá Ketilsstöðum og hlutu þau bæði fyrstu verðlaun. Sylgja er 6 vetra klárhryssa undan Spes frá Ketilsstöðum og Natan frá sama bæ, hún hlaut í aðaleinkunn 8,05, þar á meðal 9 fyrir stökk, vilja, fegurð og hægt stökk. Sylgja er því 10. hrossið af 10 sem hlýtur 1.verðlaun, undan Natan árið 2014, ekki slæmt á hjá Natani og alveg hrikalegt að vera búin að missa hann, svona langt fyrir aldur fram. Móðir Sylgju er Spes frá Ketilsstöðum sem er með 8,20 í aðaleinkunn, klárhryssa með 9,0 fyrir flest öll atriði nema 9,5 fyrir hægt stökk og stökk. Sylgja er hennar elsta afkvæmi og fyrst til að koma í kynbótadóm.
Við erum lika mjög ánægð með að Goði, 4 vetra, sem var sýndur í bjartsýniskasti hér í vor og hlaut 7.71, hækkaði sig helling og endaði með 8,08 í aðaleinkunn, hlaut m.a  9 fyrir bæði tölt og vilja .Við teljum að hér sé mikið klárhestefni á ferð, myndarlegur, geðgóður, duglegur og hreyfingafallegur foli. Faðir Goða er Álffinnur frá Syðri Gegnishólum. Skemmtileg byrjun hjá Álffinni, kominn með tvö afkvæmi í 1.verðlaun úr fyrsta árgangi og sérstakt að bæði afkvæmin eru sýnd sem klárhross. Til gamans má geta að Natan og Goði eiga sömu móður, Vænting frá Ketilsstöðum.

Vænting, móðir Goða er undan Hugmynd frá Ketilsstöðum og af þessu kyni eru nánast eingöngu vökur hross, með enga smá dóma fyrir skeið, flest frá 8,5 og upp í tvær tíur fyrir skeið, en sjálf er Vænting með 8.5 fyrir skeið. Þótt Álffinnur sé flugvakur, er hann auðvitað með tvö alsystkini sem eru sýnd sem klárhross, þau Álfur og Álfhildur, þar liggur kannski skýringin. Ef við skoðum þetta nána eru t.d. Frami frá Ketilsstöðum og Goði undan systrum, þeim Framkvæmd og Væntingu, Hugmyndardætrum. Framkvæmd undan Hrafn frá Holtsmúla og Vænting undan Toppi frá Eyjólfsstöðum, Hrafnssyni. Svo eru feður þeirra Frama og Goða, Sveinn Hervar og Álffinnur báðir undan Orra og Sveinn Hervar mikilll klárhestafaðir. Þannig að þeir Frami og Goði eru heilmikið skyldir, enda eru þeir töluvert líkir líka. Frami undan klárhesti og Goði undan alhliðahesti með a.m.k. tvö klárhesta alsystkini.

IMG 5839 IMG 5897

15
Jul 14

Á nýafstöðnu Landsmóti hlaut hryssan okkar Álfhildur frá Syðri Gegnishólum 8, 68 fyrir hæfileika í kynbótadómi og í kjölfarið af því kom upp umræða um hvort að þetta var ekki klárhryssu hæfileikamet. Stuttu síðar kom svo í ljós að nokkur af frægustu klárhrossum landsins hafi verið töluvert hærri. Fór ég að hugsa það eftir á að það væri nú gaman að sjá hvaða einkunnir þessi hross hefðu eiginlega fengið, klárhross með um 8,70-80 fyrir hæfileika. Þegar ég skoðaði svo dóm eins þeirra fannst mér hann ekki endilega vera hærri þó svo að aðaleinkunn hæfileika segði annað. Eftir umhugsun komst ég að því að vægisbreytingin sem tók gildi að við höldum,  2010 hafði veruleg áhrif þar á, þ.a.e.s. hæfileikadómur hrossa dæmd fyrir þann tíma er reiknaður út á öðrum forsendum.

Hér leyfi ég mér til gamans að reikna út hæfileikadóm nokkurra þeirra afburða klárhrossa á sama væginu, það er að segja hvað hrossin sem hlutu sinn dóm fyrir 2010 hefðu fengið með útreikningi nýja vægisins og svo hvað klárhrossin sem hlutu sinn dóm 2010 eða seinna hefðu hlotið í hæfileika- og aðaleinkunn fyrir vægisbreytingar.
Hrossin sem fyrir valinu urðu eru hross sem ég man að hafi fengið afburða dóm fyrir hæfileika og er þetta því ekki tæmandi listi. Líklega hef ég gleymt mörgum hrossum sem vel hefðu getað verið á þessum lista. En þetta er gert til að sýna hverning áhrif vægisbreytingin hefur, hvort sem hún er til batnaðar eða ekki. Enda hef ég enga skoðun á þvi, fyrir mér eru þetta bara staðreyndir og eitthvað sem er vert að skilja. Réttast væri kannski samt einungis að bera saman dóma reiknaða út á sama væginu þegar talað er um hæfileika met.

Eldjárn frá Tjaldhólum                         Gildandi einkunn er: Sköpulag  8,09    Hæfileikar  8,85   Aðaleinkunn 8,55     Með nýja væginu: Sköpulag  8,09 Hæfileikar  8,69   Aðaleinkunn 8,45 
6 vetra í dómi (2006) 

Hekla frá Heiði                                    Gildandi einkunn er: Sköpulag  8,02    Hæfileikar  8,78   Aðaleinkunn 8,48     Með nýja væginu: Sköpulag  8,02 Hæfileikar  8,53   Aðaleinkunn 8,33 
6 vetra í dómi (2002)
 

Hnota frá Garðabæ                            Gildandi einkunn er: Sköpulag  8,14    Hæfileikar  8,80   Aðaleinkunn 8,54     Með nýja væginu: Sköpulag  8,14 Hæfileikar  8,68   Aðaleinkunn 8,47 
12 vetra í dómi (2007) 

Álfur frá Selfossi                               Gildandi einkunn er:  Sköpulag  8,11   Hæfileikar  8,69   Aðaleinkunn 8,46     Með nýja væginu: Sköpulag  8,11 Hæfileikar  8,55   Aðaleinkunn 8,38 
6 vetra í dómi (2008) 

List frá Vakurstöðum                         Gildandi einkunn er:  Sköpulag  8,05   Hæfileikar  8,69   Aðaleinkunn 8,44     Með nýja væginu: Sköpulag  8,05 Hæfileikar  8,55   Aðaleinkunn 8,35 
8 vetra í dómi (2006)

Fura frá Hellu                                     Með gamla væginu:  Sköpulag  8,46   Hæfileikar  8,73   Aðaleinkunn 8,62     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,46 Hæfileikar  8,58   Aðaleinkunn 8,53
6 vetra í dómi (2013) 

Kappi frá Kommu                                Með gamla væginu:  Sköpulag  8,51   Hæfileikar  8,62   Aðaleinkunn 8,58     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,51 Hæfileikar  8,51   Aðaleinkunn 8,51
6 vetra í dómi (2010)

Hreyfill frá Vorsabæ II                        Með gamla væginu:  Sköpulag  8,50   Hæfileikar  8,68   Aðaleinkunn 8,61     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,50 Hæfileikar  8,56   Aðaleinkunn 8,54
6 vetra í dómi (2014)

Sökkull frá Dalbæ                                 Með gamla væginu:  Sköpulag  8,07  Hæfileikar  8,74   Aðaleinkunn  8,47     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,07 Hæfileikar  8,58   Aðaleinkunn 8,38  
5 vetra í dóm (2014) 

Álfhildur frá Syðri Gegnishólum         Með gamla væginu:  Sköpulag  8,28   Hæfileikar  8,89   Aðaleinkunn 8,65     Gildandi einkunn:  Sköpulag  8,28 Hæfileikar  8,68   Aðaleinkunn 8,52
6 vetra í dómi (2014)

 

Þessir útreikningar eru samkvæmt okkar skilningi réttir, vel má vera að einhverjar villur séu þó svo að við höfum tvívegis yfirfarið. 

 

 

10
Jul 14

Þá er Landsmóti 2014 lokið og verður að segja að allt í allt gekk það mjög vel hjá okkur þó að maður hefði óskað eftir betri útkomu fyrir graðhestana okkar. Eins og áður hefur komið fram tóku 14 hesta héðan þátt, Brynja og Sprengja stóðu sig mjög vel og enduðu í 5. sæti í ungmennaflokki en Berglind og Simba vantaði örfáar kommur til að komast í milliriðil.
Elin og Frami voru einni kommu frá að komast í milliriðil, snemma inn á og ein á vellinum, það var mínus fyrir þau. Minning og Bergur bættu tímann sinn í 250 metra skeiði verulega, fóru á 23,11 og enduðu í sjöunda sætinu.

Álfhildur var fyrsta kynbótahrossið í dóm hjá okkur, átti stjörnusýningu og uppskar 10,0 fyrir tölt og hækkaði sig úr 8,38 í 8,48. Í yfirlitssýningunni hélt velgengnin svo áfram og önnur 10 bættist við, en hún var fyrir vilja og geðslag. Aðaleinkunnin hækkaði úr 8,48 í 8,52 og efsta sætið í 6 vetra flokki hryssna, óhætt er að segja að það hafi verið umfram væntingar.
Katla kom inn á mótið með 8,21 í aðaleinkunn, hún hækkaði aðaleinkunn í 8,33 en það dugði samt ekki til verðlaunasætis í flokki sex vetra hryssna.
Snekkja systir hennar kom inn á mót með 8,42, dómurinn á henni breyttist verulega og aðaleinkunn varð 8,41 og fjórða sæti í flokki fimm vetra hryssna. Tíbrá hækkaði, kom inn á mót með 8,19 og endaði með 8,25, fimm vetra klárhryssa með 9,0 fyrir nánasr öll atriði.
Hamingja frá Hellubæ fékk 8,54 í aðaleinkunn og það er hvorki meira né minna en heimsmet í fjögurra flokki hryssna og efsta sætið.  Til gamans má geta að ég sýndi Þulu frá Hellubæ, móðir Hamingju á LM´02. Þula hlaut 8,26 í aðaleinkunn og hlaut m.a 9,0 fyrir tölt sem var svaka flott á fjögurra vetra tryppi á þeim tíma og annað sætið í þeim flokki á eftir Sömbu frá Miðsitju.
Vinátta frá Hellubæ lækkaði lítillega og endaði í 7,98 í fjögurra vetra flokki.
Álfastjarna var einnig í fjögurra vetra flokki, kom inn á mót með 8,16 og endaði í 7. sæti í fjögurra vetra flokki með 8,23. Hún fékk m.a 9,5 fyrir hægt tölt, fet og vilja og geðslag og svo 9,0 fyir tölt, stökk og fegurð í reið, ekki slæmt það fyrir fjögurra vetra tryppi.

Firmakeppni 14 6 Álfhildur á LM14 Elka Snekkja IMG 3596 IMG 5068-002 IMG 5229 IMG 5116 IMG 5064 IMG 5059

Select language by flag

Til Sölu

Hilbar Katla hnakkur

We have 148 guests and no members online