19
Mar 11

Þá er komið að honum Gram, hann er á fimmta vetur, undan Musku frá Stangarholti og Sveini Hervari frá Þúfu. Muska var undan Frama frá Bakka sem er undan Söndru frá Bakka s.s. sammæðra t.d. Baldri frá Bakka en faðir Frama var Léttir frá Sauðárkróki. Móðir Musku er Mugga frá Kleifum en hún er enn til hérna hjá okkur og hefur gefið af sér marga góða gripi, faðir Muggu var Hnokki frá Steðja. Sveinn-Hervar er sonur Orra frá Þúfu og er hann einn af okkar uppáhaldshestum enda hefur hann gefið okkur marga góða hesta og eru m.a tvær dætur hans í ræktunina hér hjá okkur. Albróðir Grams er Gormur en hann var í úrslitum í B-flokki á siðasta landsmóti og er með 8,22 í kynbótadóm.

Gramur varð ekki sýndur í kynbótadómi í fyrra vegna pestarinnar en stefnt er með hann í dóm í vor. Gramur er stór og vel gerður klárhestur, hann er fótaburðarhestur, allar gangtegundirnar jafnar og goðar. Geðslagið er blítt  og viljinn góður, hann er eflaust mjög gótt efni í mikinn keppnishest. Þær Hlín, Hefð og Minning  kasta allar hans afkvæmum í vor.

Bara svona rétt til að láta vita, þá er Gramur laus til leigu í sumar.

gramur_18_03_11_2
 gramur_18_03_11_3
 gramur_18_03_11_6
 gramur_18_03_11_4
 gramur_18_03_11_5

                Myndir: Gangmyllan