• Olil and Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
  • Sandra and Sirkus frá Syðri Gegnishólum
    Sandra and Sirkus frá Syðri Gegnishólum
  • Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum
    Álfgrímur frá Syðri Gegnishólum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Lokkur frá Syðri Gegnishólum
    Lokkur frá Syðri Gegnishólum
  • Birthday present
    Birthday present
  • Álfasteinn and Hetta
    Álfasteinn and Hetta
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Jóhannes Stefánsson
    Jóhannes Stefánsson
  • Tesla frá Ketilsstöðum born 2010
    Tesla frá Ketilsstöðum born 2010
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
    Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
  • Christina the owner and Olil the breeder
    Christina the owner and Olil the breeder
  • Spurning frá Syðri Gegnishólum
    Spurning frá Syðri Gegnishólum
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Bergur and Gandálfur frá Selfossi
    Bergur and Gandálfur frá Selfossi
  • Bergur and Lilja Dís LM 2011
    Bergur and Lilja Dís LM 2011
  • Bergur and Ægir frá Ketilsstöðum
    Bergur and Ægir frá Ketilsstöðum
  • Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
    Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
  • Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
  • Olil and Heilladís frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Heilladís frá Syðri Gegnishólum
  • Freyja and Gormur frá Selfossi
    Freyja and Gormur frá Selfossi
  • Elin and Hugur frá Ketilsstöðum
    Elin and Hugur frá Ketilsstöðum
  • Álfadís and Álfaklettur 2013
    Álfadís and Álfaklettur 2013
  • Breeders of the year 2010
    Breeders of the year 2010
  • Katla og Bergur
    Katla og Bergur
  • Bergur and Álfasteinn frá Selfossi
    Bergur and Álfasteinn frá Selfossi
  • Spes and Tesla frá Ketilsstöðum
    Spes and Tesla frá Ketilsstöðum
  • Berglind and Brynja
    Berglind and Brynja
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Álfadís
    Álfadís
  • Jónatan frá Syðri Gegnishólum
    Jónatan frá Syðri Gegnishólum
  • Julio Borba
    Julio Borba
  • Bergur and Hugur frá Ketilsstöðum
    Bergur and Hugur frá Ketilsstöðum
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Álfur frá Selfossi
    Álfur frá Selfossi
  • Karen Rós
    Karen Rós
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Karen Rós, Álfadís and Olil
    Karen Rós, Álfadís and Olil
  • Vigdís Finnbogadóttir
    Vigdís Finnbogadóttir
  • Álfadís, Grýla and Heilladís
    Álfadís, Grýla and Heilladís
  • Berglind and Simbi frá Ketilsstöðum
    Berglind and Simbi frá Ketilsstöðum
  • Freyja and Elin
    Freyja and Elin
  • Brynja and Vakar in Piaff
    Brynja and Vakar in Piaff
  • Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
    Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
  • Tesla frá Ketilsstöðum
    Tesla frá Ketilsstöðum
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Freyja and Muggur
    Freyja and Muggur
  • Olil and Sprengja frá Ketilsstöðum
    Olil and Sprengja frá Ketilsstöðum
  • Djörfung frá Ketilsstöðum
    Djörfung frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
    Bergur and Aðaldís frá Syðri Gegnishólum
  • Bergur and Bylgja frá Ketilsstöðum
    Bergur and Bylgja frá Ketilsstöðum
  • Kira and Kraflar
    Kira and Kraflar
  • Breeders of the year 2012
    Breeders of the year 2012
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
    Offsprings of Álfur at Landsmót 2012
  • Freyja and Muggur
    Freyja and Muggur
  • Natan frá Ketilsstöðum
    Natan frá Ketilsstöðum
  • The queen :) Katla
    The queen :) Katla
  • Elin og Frami 2016
    Elin og Frami 2016
  • Álffinnur frá Syðri Gegnishólum
    Álffinnur frá Syðri Gegnishólum
  • Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
    Haukur and Hetta frá Ketilsstöðum
  • Bergur and Ljóni frá Ketilsstöðum
    Bergur and Ljóni frá Ketilsstöðum
  • Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
    Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar
  • Brynja and Vakar frá Ketilsstöðum
    Brynja and Vakar frá Ketilsstöðum
  • Álfur frá Selfossi
    Álfur frá Selfossi
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Álfadís mare of honor 2013
    Álfadís mare of honor 2013
  • Borba Clinic
    Borba Clinic
  • Olil and Védís frá Hellubæ
    Olil and Védís frá Hellubæ
  • Olil and Gramur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Gramur frá Syðri Gegnishólum
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Olil and Tíbrá frá Ketilsstöðum
    Olil and Tíbrá frá Ketilsstöðum
  • Wintertime
    Wintertime
  • Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
    Olil and Álfhildur frá Syðri Gegnishólum
  • Sunset at Syðri Gegnishólar
    Sunset at Syðri Gegnishólar
  • Hátign and Drift
    Hátign and Drift
  • Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
    Olil and Kraflar frá Ketilsstöðum
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Syðri Gegnishólar
    Syðri Gegnishólar
  • Tígur, son of Ljónslöpp and Álffinnur born 2010
    Tígur, son of Ljónslöpp and Álffinnur born 2010
  • Beauty in the mist
    Beauty in the mist
  • Freyja and Gormur frá Selfossi
    Freyja and Gormur frá Selfossi
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Breeders of the year 2010
    Breeders of the year 2010
  • Olil and Heilladís
    Olil and Heilladís
  • Dennis and Álfasteinn frá Selfossi
    Dennis and Álfasteinn frá Selfossi
  • Sólrún
    Sólrún
  • Ketilsstaðir
    Ketilsstaðir
  • Brynja and Berglind
    Brynja and Berglind
  • Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
    Álfarinn frá Syðri Gegnishólum
  • Mothercare
    Mothercare
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Bergur and Olil
    Bergur and Olil
  • Lokkur frá Syðri Gegnishólum
    Lokkur frá Syðri Gegnishólum
  • Kira and Brynja
    Kira and Brynja
  • Jón Bergsson
    Jón Bergsson
  • Álfadís mare of honor 2013
    Álfadís mare of honor 2013
  • Ófeig, Grábrá and Christina
    Ófeig, Grábrá and Christina
  • Friends
    Friends
13
Jan 10

Jæja nú eu allir mættir til starfa bæði hestar og menn sem ætla að vera  hjá okkur í vetur, siðustu hestarnir komu heim úr sundi í gær og síðasti starfsmaðurinn kom í dag.

Tryppin á fjórða vetri eru orðin reiðfær og  eldri hestarnir eru komnir af stað í þjálfun. Nokkrir þeirra voru í sundi  í Áskoti hjá Jakobi og Arnheiði, við förum reglulega með hestanna í sund til þeirra. Þeir voru í mestallan desember  en við sóttum þá svo strax eftir áramót. Það er gaman að taka við hestunum úr sundinu, fallega útlítandi, frískir og tilbúnir fyrir veturinn. Við höfum farið með hestanna reglulega í sund síðan starfsemin byrjaði hjá þeim Jakobi og Arnheiði, stundum vikulega og stundum í tíu eða tuttugu daga samfleytt.  Það hefur reynst okkur vel sem viðbótar þjálfun.

Í þetta sinn voru það þeir Vestri frá Hellubæ, Samber frá Ásbrú, Tjörvi, Kraflar, Vakar, Hvati og Austri frá Ketilsstöðum,sem voru í sundi og tókum við nokkrar myndir þegar við sóttum þá.                                                                            

 sund10_001

 sund10_005 
 sund10_002   

 sund10_004

 sund10_003                           sund10_006
             sund10_007  sund10_008

 

 

 

06
Jan 10

Ferðin langa endaði á viku fríi i Portugal, en þá höfðum við ákveðið að þiggja heimboð Julio Borba en hann bauð okkur i heimsókn á einn af fimm búgörðum fjölskyldunnar, sem heitir Bastarda og er stutt frá landamærunum Spánn/Portugal.

Á þessari jörð hafa þau ekki fasta búsetu, en uppeldið er þar og einhverjar stóðmerar.

Húsin voru með spænskan stíl og íbúðarhúsið stort og ótrúlega kósý, þarna var dekrað við okkur þrjá daga, strákarnir fóru i veiðiferð og við Freyja fórum i skoðunnarferð i litla þorpinu sem var rétt hjá en þar var fólkið svo smá vaksið að við Freyja vorum eins og risar.

Svo fórum við til Lissabon og daginn á eftir kom Julio og sótti okkur og svo fórum við á flottan stað þar sem yfir stóð úrtaka fyrir landsliðið þeirra, sem var að mörgu leyti mjög áhugavært skoða og vakti það upp margar hugsanir um að hvort við gætum ekki notfært okkur þetta eitthvað á Íslandi, en það langar mig til að skrifa meira um seinna við tækifæri. 

 Síðustu dagarnir voru notaðir til að skoða Lissabon og versla og flugum svo heim um Amsterdam þann 22 des, rétt passlega til að fara í jólagírinn.

 bastarda_des_2    Borba stoðið.
 bastarda_des    Hagarnir á Bastarda.

 bastarda_des_5    Bergur, Carlos, Hafliði og Sebastiao að fara að veiða.

 

 

 

 

05
Jan 10

Þegar ég kom til Santa Barbara komu Ásta og Will að sækja mig og fóru með mig heim til sín á Flying C Ranch í Roblar, Santa Ynez í Californiu þar sem ég var með þriggja daga námskeið. Þetta er í þriðja sinn sem ég kem til þeirra, en þau eru búin að byggja  fallegt íbúðahús með innanaðgengt yfir í hesthúsið, falleg og hentug lausn. Þar er hringgerði með þak og veggi ,keppnishringvöllur og frábær útiaðstaða fyrir hestana.

Fyrir mig er það mjög sérstakt að koma til Bandaríkjanna, allt annar heimur, allt sem maður snýst í og sinnir daglega skiptir engu máli í þessum heimi, Ísland  og íslenski hesturinn, hvað er það? Það er keyrt með mann eitthvað út í sveit og inn um stórt amerískt hlið þá kemur maður aftur inn í annan heim og þá er hann nú farinn að vera eitthvað sem maður kannast betur við. Því þar tekur á móti manni höfðingar eins og Dynjandi  frá Dalvik, Kaliber frá Lækjabotnum,Bragi frá Hólum, Húni frá Húnavöllum, Þór frá Prestbakka, Flygill frá Mosfellsbæ og svo mætti lengi telja. Svo það var alveg ljóst að menn voru bara ágætlega ríðandi og Ísland og íslenska hestinum til mikills sóma. Það er ekkert smá sem fólkið er tilbúið að leggja á sig til að komast á námskeið eða mót, klukkutímar í flugi, dagar í akstri, vel útbúið, hvort sem það er fatnaður, reiðtygi og ökutæki, mætir það með góða skapið tilbúið til að læra og gantast.

það er alveg ljóst að það sem er einkenni íslenska hestsins, að hann er duglegur,sterkur, stoltur og glaður, laðar hann líka að sér,eða eins og máltækið, líkur sækir líkan heim.

Það er mikil vinna að vera reiðkennari, því fylgja oft löng ferðalög og langir vinnudagar og oft er verið að spyrja mig að því hverning ég get haldið þessu út en það er einmitt þetta sem gefur manni kraftinn, að sjá og finna mikinn áhuga og gleði og samstaða hvort sem það er i Ameriku eða á Vestfjörðum.

Frá Will og Ástu fór ég svo eftir þrjá daga og flaug frá Santa Barbara til Salt Lake City og þaðan til Parisar, en Salt Lake City-Paris eru tiu og hálfur timi á flugi og mér sem finnst þriggja tima Danmerkur flug langt!!!

Frá Pris flaug ég til Lissabon í Portugal en þangað komu saman Bergur, Freyja Hilmarsdóttir og Hafliði Halldórsson en þangað vorum við komin til að þiggja heimboð Julio Borba, reiðkennarans okkar og eyddum við þrem dögum á búgarði hans og fjölskykdunnar hans, Bastarda, sem er mjög nálægt landamærunum Portugal/Spánn en þeirri heimsókn ætla ég að segja nánar frá í næstu frétt. 

        flying_ranch_des09_8Flying  C Ranch.
 flying_ranch_des09_4
 

Read more: California.

04
Jan 10

Í byrjun desember lagði ég af stað í lengsta ferðalag sem ég hef farið í. Ég byrjaði á að fara til Boston og flaug þaðan til Atlanta þar var ég sótt og við fórum til Madison í Georgiu þar sem Katrin Sheehan býr. Þar hélt ég þriggja daga námskeið á Creekside Ranch, sem er stór og myndarleg jörð sem Katrin er að byggja upp.

Þar er stórt og fallegt hesthús með íbúð,nýgerðri reiðhöll með mjög áhugaverðu og að ég held góðu gólfi og mikið  af vel girtu landi með góðu skjóli fyrir hrossin.

Það var svolitið sérstakt að þar voru fleri þjóðverjar en bandarikjamenn en Katrin sjálf er þjóðverji að upplagi og svo var gaman að hitta þar Barbara Frische sem er að ég held þekktasti kynbótadómari þjóðverja, en hún er flutt til Bandarikjanna með fjölskyldu sinni til að vinna við ræktunnarmál bandarikjamanna.

Einnig var Frauke Shensel að vinna þarna en hún og Katrin eru i samvinnu við þjálfun kýnbótahrossanna og markmiðið að Frauke sýni fyrir hana kynbótahrossin næsta vor. 

Þarna voru lika fræg hross og svo þekktasti liklegast Óskar frá Litladal sem er reiðhestur Katrinar og í miklu uppáhaldi.

Þetta var i fyrsta sinn sem ég kom til hennar og gaman að sjá hvað hægt er að gera ef áhugi og dugnaður er fyrir hendi.

Frá Creeside Rach fór ég siðan til Will og Ástu Covert á Flying Ranch í Roblar í Californiu en þá flaug ég frá Atlanta til Salt Lake Sity og þaðan til Santa Barbara í California. En ég segi frá dvölinni þar  í næstu frétt.

 

 

creekside_ranch09 

 

Á myndinni frá vinstri er Charlotte  Block, Milena Frische, ég ,Katrin sem heldur i Óskar frá Litla Dal, Barbara Frische og Frauke Schensel.

02
Dec 09

Jæja, nú kom að þvi þann 30/11 var votheysturnin felldur. Eftir ótal vangaveltur var hann látinn fara, enda að okkar mati mikið óprýði á bænum. Mér fannst hann gefa verksmiðjulegt útlit og ekki lengur nein not fyrir hann.

En á mánudaginn skyldi það gerast, Bragi og Haukur í Efri Gegnishólum mættu með gröfuna og þá er eins gott að vera ekki fyrir.

Það var grafið frá honum í þá áttina sem hann átti að falla og pikkað í hann og veiktur alveg niðri. Svo var reynt að toga hann niður með vírtóti. Það gékk nú ekki betur enn að vírin slitnaði og turninn stóð eins og alltaf. Þá var pikkað enn meira í hann og svo  var ýtt víð honum þar til hann gaf eftir.

Wow!  Það var vígaleg sjón, en ég búin að vera grimm á þvi að vera viðstödd því ég ætlaði að mynda og var mjög stressuð yfir þvi að myndavélin yrði rafmagnslaus eða ég myndi hreinlega ekki ná að staðsetja mig rétt til að ná sem bestum myndum. En ég þurfti ekki að hafa áhyggjur, það gekk eins og í sögu og ég náði þvílikri myndasyrpu sem mjög flott er að skoða í heild sinni. En hér læt ég fylgja mjög stutta útgáfu.

 fall_turnsins_30_001
 fall_turnsins_30_006
 fall_turnsins_30_007
 fall_turnsins_30_010
 fall_turnsins_30_012
 fall_turnsins_30_013
 fall_turnsins_30_015
 fall_turnsins_30_019

 

18
Nov 09

Þá er það ákveðið, Álffinnur verður í girðingu í Flagbjarnarholti í Landssveit næsta sumar. Álffinnur er brúnskjóttur tveggja vetra undan Álfadísi frá Selfossi og Orra frá Þúfu, sem gerir hann að albróðir Álfs fra Selfossi. Í sumar var hann notaður hér hjá okkur og eru 22 hryssur fylfullar eftir hann, það var ofboðsleg aðsókn i hann en mjög fáir sem komust að þar sem víð notuðum hann nánast eingöngu sjálf. Er ekki tilbúin til að setja verð á folatollin strax, en eitt er visst að aðsóknin er mikil þannig að han verður dýr miðað við ótamin fola.Verðið, verður komið fyrir fyrsta mai. Fyrir þá sem vilja panta undir hann  og/eða þegar hafa pantað  fyrir sumarið 2010, bið ég panta og/eða staðfesta pöntun sína með því að senda mér mail á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..  hrin9047

 

hrin8983

11
Nov 09

Nú er nýafstaðið námskeið með Julio Borba hér í Syðri Gegnishólum. Að vanda tókst það mjög vel, stemningin góð og allir ánægðir. Þetta er fjórða árið sem hann kemur til okkar að kenna, fyrst kom hann tvisvar á ári, en nú höfum við heldur betur slegið í og þetta ár kemur hann trisvar í haust líka. Það er alveg ótrúlegt hversu mikið skemmtilegra er að þjálfa og kenna þegar maður fær reglulega kennslu. Markmiðið verður alltaf svo skýrt. Gaman er að læra margar leiðir að nálgast markmiðinu, læra nýjar aðferðir og finna hvað þær gera fyrir hest og knapa. Það hefur m.a verið markmiðið mitt að hafa sem flesta reiðkennara á námskeiðunum, til þess að hún skili sér út í reiðmennskuna.

 bergur_okt09_001_7          bergur_okt09_001_11Bergur og Hvati
 borba_okt09_014              Svana         borba_okt09_019Mara og Samber               
        borba_okt09_031"Royal" heimsókn.

        Freyja og Styrkur   freyja_okt09_037_2   

 borba_okt09_035  ss_okt09_028_4               Súsý
 

Read more: Námskeið með Julio Borba okt.09

10
Nov 09

Nú eru að verða liðinn þrjú ár siðan við fluttum hingað i Syðri Gegnishóla og erum við að verða búin að búa þannig um að okkur að okkur er farið að liða reglulega vel hérna.

Það er meira en að segja það  að kaupa jörð sem hefur verið rekinn með kúabúskap og breyta  henni  þannig að hún henti til hrossabúskapar. 

Vélarskemmu var breytt i hesthús og búið er að innrétta bráðarbyrgðar hesthús i fjósinu, en til stendur með tið og tima að byggja annað hesthús og tengibyggingu að reiðhöllinni þannig að  innanaðgengt verður þángað.

Seinnipartin í sumar var byrjað að mála allar byggingarnar og segja má að bærinn hafi breyst,  þar sem skipt var um lit og breytt út frá hefðbundnum liti á sveitabæjum.

Sem stendur er verið að fylla jarðveg að ibúðarhúsinu og ganga frá öllu þvi tilheyrandi, næsta verk á dagsskrá verður eftir ótal vangaveltur að fella votheysturninn.

En það er alveg ótrúlegt hvað eru komnar margar uppástúngur um hvað mætti nýta hann i. Koniaksstofa,gistiaðstaða, útsynissturn, vita, auglysingaturn og svo framvegis. En okkur finnst samt liklegt að þegar kemur að þvi að við eigum efni að þvi að innrétta hann erum við svo gömul að við komumst ekki þángað upp..........                                                                                                                          

 mla_fjs09_008  mla_fjs_09_004
 mla_fjs09_001  mla_fjs09_002
 mla_fjs09_004  mla_fjs_09_003

Það gékk á ymsu, kannski eru málarar bara i sama

áhætuflokki og tamningamenn. En þrátt fyrir einu óhappi

fór Bjarni létt með þetta. Svona er útkoman....

20
Oct 09

Sæmkvæmt nýjasta kynbótamatinu er Ljónslöpp komin með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, en hún er þriðja hryssan frá Ketilsstöðum til að ná þeim og erum við mjög ánægð með það. Fyrst var Hugmynd undan Ör og Mána frá Ketilsstöðum og svo Vakning hálfsystir Ljónslappar undan Hrafni frá Holtsmúla. Ljónslöpp er 16 vetra gömul undan Snekkju frá Ketilsstöðum og Oddi frá Selfossi og er hún sem komið er búin að eiga átta afkvæmi. Sex  þeirra eru tamin, fimm sýnd, tvö með fyrstu verðlaun og þrjú með rétt tæplega átta. Sá sem siðastur var syndur var Hlébarði 4v undan Aron frá Strandarhöfða en hann fékk 7 94. Næst kemur til tamningar undan Ljónslöpp,  brún hryssa undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu, hún er þriggja vetra og mjög efnileg að sjá

 ljonslopp1

 Ljónslöpp var sýnd á LM 2000 i

Reykjavík og hlaut þar sinn  hæðsta

dóm,8,28.

 ljonsi  Ljóni 5 v, sonur Ljónslappar og Álfasteins frá Selfossi, sýndur 2009, aðaleink.8,26.
 hlbari_009  Hlébarði 4v sonur Ljónslappar og Arons frá Strandarhöfða sýndur 2009,aðaleink 7,94.
12
Oct 09

Í síðustu viku kom Freyja í heimsókn, en hún flutti til Noregs fyrir einu og hálfu ári síðan.

Þar hefur hún stundað tamningar og þjálfun á Tromöya sem er hjá Arndal í Suður- Noregi.

Hún er líka farin að kenna á ýmsum stöðum í Noregi,

 auk þess að hún hafi líka farið til Þýskalands nokkrum sinnum. 

Þar sem Freyja hefur verið án keppnishests siðan hún fór út,

er farið verulega að klæja í keppnis"taugarnar".

 Við ákváðum að kippa því í liðinn og senda Gorm til hennar,

 svoleiðis að hún geti farið að taka þátt í mótum í Noregi.

Auk þess að vera með flottan kynbótadóm var Gormur í úrslitum í B-flokki á síðasta landsmóti.

 Þessar myndir voru teknar af Freyju og Gorm við þjálfun, þegar hún var í heimsókn.

 gormur_og_freyja_009Ljósm: Gangmyllan.
 gormur_og_freyja_011-1
 gormur_og_freyja_001
 gormur_og_freyja_002

 

 

02
Oct 09

Vorum að koma frá Ketilsstöðum, en þar erum við með töluvært af hrossum.

Ketilsstaðir eru í Fljótsdalshéraði, um 7 km fyrir innan Egilsstaði

og er stór og mikil jörð u.þ.b 3000 hektarar á stærð.

Mikið er af fjallendi, skógi vaxin hlið, mikið af ræktuðu landi,

þó aðeins hluti er nýttur til heyskapar í dag.

 Landið liggur niður að og meðfram Lagarfljóti og Grímsá.

 það er ótrúlega gott og gaman að þjálfa hesta á hæfilega hörðu og

fjaðrandi grasbökkum Grímsár. 

Þegar tryppin eru veturgömul förum við með þau austur að

Ketilsstöðum og alast þau þar upp til tamningaaldurs,

en hryssurnar eru hér hjá okkur í Syðri Gegnishólum. 

 

 

 ausurlandhaust_09_024              ausurlandhaust_09_025Ketilsstaðir.
 ausurlandhaust_09_013  ausurlandhaust_09_015Guðmundur þorleifsson er alltaf með þegar eitthvað þarf að gera og aðstðaði Steinari og Berglindi að sækja tryppin.
 ausurlandhaust_09_005

 ausurlandhaust_09_030Álfadís hefur séð um að koma skjótta litinn að i Ketilsstaða-

stóðinu.

 ausurlandhaust_09_010  ausurlandhaust_09_002Grimmhildur hennar Freyju undan Gráhildi og Leikni.
 ausurlandhaust_09_019

 ausurlandhaust_09_022Freyja og "norska fjölskyldan hennar" i heimsokn.

Nils, Vivian, Nils André og Anders.

 

 

 

 Hreinsi notaði tækifærið og héld smá "sjów"  
   
   
21
Sep 09

18 til 20 september var Julio Borba með námskeið hér hjá okkur sem var mjög vel lukkað.

 Julio er frá Portugal var um langt skeið reiðmaður hjá portugalska hirðreiðskólann

en hætti þar fyrir nokkrum árum og snéri sér alfarið að reiðkennslu.

 Fyrst i Sviþjóð en svo fór han að kenna um allan heim.

Hér á Íslandi er hann búinn að kenna i á fjórða ár, okkur til mikillar ánægju. 

 Á námskeiðin eru alltaf  8 manns, með klukkutima i senn

og i þetta skipti vorum við i þrjá daga.

Julio hefur riðið út frá blautu barnsbeini enda af hestafólki komin

og föðurbróðir hans er hans stóri lærimeistari.

Eins og alltaf tókst honum vel upp enda fer aldrei á milli mála

hvert er takmarkið og er hverning eigi að nálgast það.

Línurnar eru mjög skýrar, hann hefur ótal aðferðir að nálgast takmarkið,

gefur hugmyndir er hvetjandi og skemmtilegur.

Slagorðin eru "energy through lightness" og "keep it simple" og það stendur hann fyllilega við.

 julio_og_quartso       Julio og Qartso                borbanmskei_sept09_021Julio Borba
borbanmskei_sept09_026  kjui_sept09_7            Julio og Kjuði
     borbanmskei_sept09_020  kjui_sept09             Hulda og Kjuði
 frg09_3               Þórdís Erla             kaldalns_sept09_3Svana og Kaldalóns

Read more: Námskeið með Julio Borba sept´09.

05
Sep 09

Fyrir nokkru kom í sjónvarpsfréttum að hreindýrskálfur hafi gert sig heimakominn

 í hrossastóði  fyrir austan, en það er stóðið okkar á Ketilsstöðum.

 Gangmyllan sendi sinn mann á svæðinu Ellen Thamdrup til að kanna málið og taka myndir.

Ekki er annað að sjá á myndunum en að hrossin séu sátt við nýja meðlimin i stóðinu

og að kálfurinn líti á þau sem fjölskylduna sína.

Ég var að vonast til þess að kálfurinn (hún) fengi að vera áfram en mér skilst

 að það sé búið að ákveða að hún verði flutt i húsdýragarðinn.

 dscf9018  dscf9041
 dscf8990  dscf8991-1
                                                                                                                                                                                  

04
Sep 09

Þegar þessi orð eru skrifuð er búið að sýna til fullnaðardóms tiu tryppi undan Álfasteini.

 Þau eru fjögurra og fimm vetra gömul og er meðaleinkunn þeirra 8,00 fyrir byggingu,

 8,07 fyrir hæfileika sem gerir  aðaleinkunn  8,05.

Fimm eru fjögurra vetra og fimm eru fimm vetra. Sex þeirra eru með 8,0 og yfir,

 hæðst þeirra er Brimnir frá Ketilsstöðum undan heiðursverðlaunahryssunni Vakningu,

með 8,33. Þrjú eru með 7,90 og yfir og aðeins einn undir og

 það er Almar frá Ketilsstöðum undan Orku frá Gautavik, 4 v. með 7,67.

Tryppin sem komið hafa til tamningar hjá okkur hafa flest verið skemmtileg,

 kjörkuð  með flottar hreyfingar.

Í haust frumtemjum við sex tryppi undan Álfasteini sem fara á fjórða vetur,

undan Snilld, Hefð og Vakningu frá Ketilsstöðum, Lilju frá Litla Kambi

og systurnar Þulu og Vöku frá Hellubæ. 

Verður mjög spennandi að sjá hvernig útkoman verður.

Eins og flestir vita var Álfasteinn seldur til Danmerkur

og þvi ekki til afnota lengur hér á landi en ef útkoman heldur áfram að vera

 svona jákvæð er aldrei að vita nema litli albróðir verði í hrikalega góðum málum.

Læt fylgja nokkrar myndir af Hafdísi frá Hólum en hún er fjögurra vetra gömul

 i eigu Vildísar Óskar Harðardóttur og Steindórs Guðmundssonar á Hólum en hún

var efsta hryssan i sínum flokki á síðsumarssýningunni

á Hellu með 7,90 í aðaleinkunn. 

 

 2009-09-03_sis_hella09_002  Svona áttu að standa. Bergur að stilla upp og Steindór fylgist með að allt fari rétt fram.
   hafds09Hafdís frá Hólum.
 2009-09-03_sis_hella09_001  Verið að dæma réttleika.......

02
Sep 09

Í sumar erum við búin að þjálfa og undirbúa okkur fyrir síðsumarsýninguna á Hellu.

Nokkur hross voru ekki tilbúin til syningar í vor

og nokkur slösuðu sig og voru því ekki sýnd.

Einnig endursyndum við nokkur hross sem við töldum gátu hækkað sig.

Nokkur hross fengu í sjálfusér ágætis dóma en þegar á heildinni er litið

 voru þetta ein stór vonbrigði,

ekkert varð eins og við vonuðumst til. Vegna hvers hef ég ekki hugmynd um,

en svona er þetta bara.

 sis_hella09_003  sis_hella09_001
 sis_hella09_010Hlébarði frá Ketilsstöðum, 4 v. samt. 7,94. 8,0 fyrir allt nema 6,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir fet.  sis_hella09_009
 Mergur frá Selfossi,4v. samt. 7.97. 8,5 fyrir allt, nema 5,0 fyrir skeið og 9,0 fyrir vilja.  
 sis_hella09_012  sis_hella09_013
  Heilladís frá Selfossi, 4v samtals 7,63. Þ.a  7,5 fyrir tölt og 8,0 fyrir fegurð i reið.  
   
 

Read more: Siðsumarssyning á Hellu

17
Aug 09

Eftir langt hlé látum við loksins verða að því að heyra frá okkur, en við fórum á heimsmeistaramótið og fór dágóður tími í það. Mótið var frábært og svisslendingum til mikils sóma, það var hugsað fyrir öllu. Enda var Roger Sherrer, framkvæmdarstjóri mótsins, búinn að verja miklum tíma í að skoða framkvæmdir stórmóta alveg niður i smáatriði. Þegar við vorum á HM í Hollandi fyrir tveimur árum sá ég oftar en einu sinni til hans þar sem hann var að snudda einhversstaðar bakvið að velta fyrir sér hinu og þessu. Svo vill til að ég hef verið við kennslu i Brunnadern siðan 2001, þannig að ég er búin að fylgjast með þessu ferli frá upphafi til enda. Frá því að hugmyndin um að halda heimsmeistaramót einhverntíma í framtiðinni varð til, umsóknin, barningurinn, spennan og eftirfylgnin sem þarf til að svona nokkuð verði að veruleika. Þarna var gott að vera keppandi, áhorfandi og starfsmaður. Frábært upphitunar- og þjálfunarsvæði, hver og einn hestur var með sér gerði og auðvelt fyrir knapa að komast í mat fyrir keppendur og starfsmenn án þess ad þurfa að fara inn á áhorfendasvæðið og bíða i löngum röðum.
Mannlífið var fjörlegt, mikið af hestavörubúðum, litlum matsölustöðum og sjoppum, ball á svæðinu á hverju kvöldi, sem mér skilst að hafi verið mjög skemmtileg og sum hver ógleymanleg.
Stúkurnar voru stórar og nóg af sætum handa öllum. Þak var yfir hluta af annari stúkunni fyrir þá sem keyptu sér svoleiðis miða og í þetta sinn var það góð fjárfesting þar sem helliringdi í tvo daga og þá tölum við um hellirigningu. Sólin skein þess utan og þó að það teljist vera gott veður er það ekki lengi að breytast i martröð fyrir viðkvæma íslenska kroppa sem eru hvorki vanir sól né hita að jafnaði.

hm09_001

Read more: Loksins fréttir

30
Jul 09

Tamningafólkið hjá okkur í sumar eru Eir Kvernstuen og Sara Berg, báðar frá Noregi. Eir er við nám í Noregi eins og stendur, er að byrja á fjórða og síðasta ári i sjúkraþjálfun. Eir hefur starfað hjá okkur samtals í á áttuda ár, eins og er kemur hún til okkar til að vinna i sumarfríinu sínu en hún er var því miður að hætta hjá okkur.

Sara Berg er líkt og Eir Hólaskólagengin og hefur starfað í mörg ár á íslandi, mest á Skeiðum, Blesastöðum, Hlemmiskeiði og Efra Langholti. Það vita allir hversu mikilvægt er að hafa gott fólk í vinnu og teljum við okkur vera vel sett með þessar stelpur. Um leið viljum við nota tækifærið að þakka Elinu Holst frá Noregi og Möru Staubli frá Sviss  fyrir gott starf í vetur og vor.

                    Eir Kvernstuen                                     Sara Berg

hlbari_083hlbari_071          

 

 

                  

 

 

                 

Read more: Tamningar ganga vel

21
Jul 09
Hlébarði frá Ketilsstöðum er 4 vetra gamall. fæddur 22 september. Han er undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og Aron frá Strandarhöfða. Hann er stór hreyfingamikill og frábælega geðgóður alhliðahestur. Það hefur aldrei verið talið heppilegt að hryssur kasti seint á árinu, en Ljónslöpp náði einhvernveginn alltaf að draga það, alveg sama hvað var passað upp á hana, halda á folaldagangmáli, og Sleppa úr ári. T.d er Tjörvi og Ljóni fæddir i oktober, hún virtist vera innstillt á að kasta um haustin. Þannig að þegar Bergur var mættur með hryssuna undir hest i byrjun október leist nú ekki öllum vel á það. Halda hryssu i byrjun otóber með nyfætt folald með sér. Eitt vitnið að þessari athöfn leit á folalðið þar sem það hljóp á eftir hryssuna og sagði, " þvi skerið þið ekki folaldið strax, þetta verður aldrei annað en aumingi." Hef aldrei getað gleymt þessum orðum, en hesturinn mælist 145cm á stöng tæplega 4 ára gamall, læt nokkrar myndir fljóta með og dæmi hver fyrir sig.........
 hlbari_040  
   hlbari_010
 hlbari_044  

Read more: Efnilegur foli

19
Jul 09

Hér er ymislegt að gerast, við erum að þjálfa og temja alla geldinganna okkar, þeir eru allir i mjög svo góðum holdum eftir útigönguna i vetur, en eru allir að koma til. Erum einnig að þjálfa nokkrar hryssur og nokkra stóðhesta sem markmiðið er að fara með i kynbótadóm i haust, sum verða endursynd en önnur i fyrsta sinn. Verið er að þjálfa Gandálf, enda mistum víð af hátt i tvo mánuði af þjálfunartimanum i vertur og vor vegna múkks,en sem betur fer hefur það ekkiverið að hrjá hann i sumar.  Tókum þessar myndir hér um daginn.......

 gandlfur_jli09_027
 gandlfur_jli09_046
 gandlfur_jli09_010
 
 
 

Read more: Sumarstarfið

12
Jul 09

Ég sá út um gluggan að sonur Álfadísar og Keilis, sem sagt albróðir Álfasteins, var að leika sér. Hann var bara með flotta sýningu, en þegar ég var mætt á staðinn var hann að verða búinn. Ég náði samt þessum myndum af honum.........

Nafnið er ekki komið enn, en það eru komnar margar góðar uppástungur, þannig að hann verður örugglega skírður rétt bráðum. 

 lfads09_3  lfads
 lfads_7  kynbtahross09_052

Select language by flag

Til Sölu

Hilbar Katla hnakkur

We have 94 guests and no members online