Álfarinn tók þátt í sinni annari 5 gangs keppni á Reykjavíkur meistaramótinu um helgina. A úrslit og 5. sætið var niðurstaðan með 6,97-7,13 í mjög svo öflugum félagsskap.
{gallery}Alfarinn fra Sydri Gegnisholum{/gallery}
Elin og Frami stöðu sig frábærlega á Reykjavíkurmeistaramótínu, unnu 4 gangs tvíkeppnina, 3 sæti í tölti og 5 sæti í 4 gangi.
{gallery}Elin Frami Reykjavikurmeistaramot 2018{/gallery}
Svona er að fæðast 1. maí á íslandi. Seinni myndin er tekin níunda maí. Folaldið er undan Heilladís frá Selfossi AE 8,32, elstu dóttur Álfadísar, faðirinn er Konsert frá Hofi AE 8,72.
{gallery}Heilladis foal 2018{/gallery}
Við erum mjög ánægt með Katla hnakkinn okkar frá Hilbar í Þýskalandi. Hann er unninn í samvinnu Gangmyllunnar og Júlio Borba.
Við erum núna að vinna í öðrum hnakki með Júlio Borba sem við erum mjög spennt fyrir. Eftir nokkrar vikur fáum við nokkra Katla hnakka í sölu en þeir seldust upp á fáum vikum.
{gallery}Gangmyllan Katla saddle{/gallery}
Borba námskeiði var að ljúka hjá okkur, það var mikil ánægja með það eins og ávallt áður.
{gallery}Borba clinic may 2018{/gallery}
Meðan grasið er rétt að byrja að spretta á íslandi þá er komið sumar annars staðar í Evrópu. Þessi mynd er af Urban Muller og Kolfinni frá Ketilsstöðum sem er albróðir Natans frá Ketilsstöðum. Þeir eru undan Væntingu frá Ketilsstöðum og Kolfinni frá Kjarnholtum. Kolfinnur er notaður til útreiða í Reithof Neckertal í Swiss.
{gallery}Kolfinnur fra Ketilsstodum{/gallery}
Ég mátti til að deila þessari mynd, mikil gleði og hamingja á henni. Heidi Benson ríður hér Strokki frá Syðri-Gegnishólum sem er undan Grýlu frá Stangarholti og Orra frá Þúfu í Landeyjum. Gaman í sólinni í Kaliforníu.
{gallery}strokkur i kaliforniu{/gallery}
Það er fleira gert en að ríða út hjá Gangmyllunni.
{gallery}much to do at gangmyllan{/gallery}
Stelpunum gekk vel á síðustu vetrarleikunum, Brynja og Ásdís unnu í opnum flokki og flokki ungmenna. Í opna flokkinum í tölti lentu Brynja og Rauðka í öðru sæti en Elin og Hugrökk í sjötta sæti. Ásdís reið Koltinnu frá Varmalæk í ungmennaflokki og Ayla reið Fróða í annað sætið í þeim flokki.
{gallery}Vetrarleikar 2018{/gallery}
Stelpunum gekk vel á sunnudaginn, Ayla reið Fróða í fyrsta sætið í ungmennaflokki og Ásdís varð sjöunda á Sölku. Elin og Hugrökk urðu í öðru sæti í tölti opnum flokki, Brynja og Rauðka í þriðja sæti og Sara á Heiðrúnu í því áttunda.
{gallery}Vetrarleikar aftur{/gallery}
Við erum bæði stolt og ánægð með að Júlio Borba var tilbúinn að keppa í Gæðingafimi í Meistaradeildinni í gærkvöld fyrir Gangmylluna.
Ég held að það sé alveg á hreinu að hann fór langt útfyrir sinn þægindahring og sýndi mikið hugrekki með þátttöku sinni.
Júlio tókst vel til og við teljum að hann hafi sýnt okkur inn í framtíðina, hvert við erum að þróast.
Sýning Borba í forkeppninni ásamt stuttu viðtali í lokin.
Viðtal við liðið eftir keppnina en liðsmenn sem vantar eru Elvar Einarsson og Ævar Örn Guðjónsson.
Stúlkunum gekk vel á Vetrarmótinu um síðustu helgi en þær kepptu í opnum flokki í tölti. Brynja vann, Elin var í öðru sæti og Sara í því þriðja.
Ayla keppti í ungmennaflokki og lenti í öðru sæti en Ásdís í fimmta sæti.
{gallery}Vetrarmot12018{/gallery}
Úrslitin hjá okkur í 4 gangi í Meistaradeildinni 2018 voru þau að Elin og Frami deildu 3. sætinu en lentu í því 4. Olil og Goði voru í 13. sæti en Bergur og Glampi í 22. sæti. Lið Gangmyllunnar er í 4. sæti eftir fyrstu keppnina.
{gallery}MD2018Fourgait{/gallery}
Meistaradeildin hefst 1. febrúar í ár með fjórgangi í Spretts höllinni.
Myndskeiðið hér er frá í fyrra af sigurvegurunum í fjórgangi, Bergi Jónssyni og Kötlu frá Ketilsstöðum.
Síðustu tvö hrossin sem voru seld frá okkur í ár og fyrst til að fara frá okkur á nýju ári. Þessi tvö góðu hross fóru frá okkur í dag, Seyðir frá Syðri-Gegnishólum og Karitas frá Ketilsstöðum. Við óskum þeim alls hins besta og hlökkum til að fylgja þeim eftir í framtíðinni.
{gallery}LastSold2017{/gallery}
{gallery}Christmas2017{/gallery}
Við verðum að deila þessari mynd, hún segir meira en mörg orð. Strokkur frá Syðri-Gegnishólum með Heidi Benson í Californiu.
{gallery}HeidiStrokkur2017{/gallery}
Nú er reiðhöllin orðin klár fyrir nýtt ár.
{gallery}RidingHallDec2017{/gallery}
Á myndinni sem er frá sl. laugardagskvöldi erum við Álffinnur að taka þátt í alþjóðlegri hestasýningu í Svíþjóð á Friends Arena leikvanginum.
{gallery}AlffinnurFriendsArena2017{/gallery}
Hér er mynd af næstum öllum knöpum í tölt sýningunni á Friends Arena í Svíþjóð í síðustu viku. Allir klæddir upp sem eldfjöll en á myndina vantar Vigni Jónasson en gallinn has var þarna.
{gallery}ToltshowFriendsArena2017{/gallery}