Í dag fór ég með Álffinn út í girðingu en þar biðu hans um tuttugu hryssur. Hann verður í Flagbjarnarholti í Landssveit hjá Helgu og Valla í allt sumar. Hólfið er passlega stórt, skjólgott og grasgefið. Ég tók þessar myndir þegar hann var að smala hryssunum saman.
Myndir: Gangmyllan