- Jæja, þá er enn eitt námskeið með Julio Borba lokið og að vanda tókst það frábærlega. Eins og vanalega tóku margir þátt og margir gæðingar mættu á staðin, má nefna Loka frá Selfossi, Korg frá Ingólfshvoli, Óskar frá Blesastöðum, Kjarnorku frá Kálfholti, Sigur frá Hólabaki, Glóðafeykir frá Halakoti og margir fleiri og verður að segjast eins og er að það eru alger forréttindi að fá að sjá þessa hesta hreyfa sig í "vinnuformi" ef svo mætti að orði komast, að venju var Julio gefandi, hugmyndarikur, hvetjandi og skemmtilegur og alltaf tilbúin til að breyta um aðferð til að ná árángri.