Í gær fæddist fyrsta folaldið hjá okkur, en það var hún Gráhildur sem átti jarpa hryssu. Faðirinn er Álfarinn frá Syðri Gegnishólum, hann er þriggja vetra og er albróðir Álfasteins frá Selfossi. Álfarinn fyljaði bara þessa einu hryssu í fyrra og var talið að mikil lyfjameðhöndlun móðurinnar meðan á fósturstigi stóð gæti haft áhrif á þroska hans. Nú er málið í vinnslu og eins og er litur þetta vel út og vonumst við eftir að geta haldið undir hann í sumar.
Gráhidur og dóttir hennar sem fæddist 06 05 11. Myndir: Gangmyllan