Í vikunni tókum við Bergur þátt í alþjóðlegri sýningu hrossa í Svíþjóð. Við vorum með í liðakeppninni, Bergur á Ómi frá Úlfljótsvatni í fjórgangi hafnaði í þriðja sæti og Olil á Álffinni frá Syðri-Gegnishólum vann fimmganginn. Í liðakeppninni lentum við í þriðja sæti, Danmörk vann, Svíþjóð var í öðru sæti og Þýskaland í því fjórða. Þetta var reglulega skemmtileg keppni, vel skipulögð, flottir keppendur, mjög góð braut og frábærir áhorfendur. Við þökkum fyrir okkur en hér má sjá myndir frá mótinu á Sænska alþjóðlega hestasýninga vefnum.liða
Járningarnar gengu vel á þriggja vetra tryppunum, byrjaði vel en þörf á stuðningi í lokin. Þau læra hratt en þolinmæði er ekki þeirra sterkasti eiginleiki á þessum aldri.
{gallery}Jarningar3v2017{/gallery}
Þessi mynd af Álfhildi er tekin á Landsmóti 2014 þar sem hún vann flokk sex vetra hryssa. Hún er nú fylfull við Spaða frá Stuðlum. Hann er undan heiðursverðlauna hryssunni Þernu frá Arnarhóli og Barða frá Laugarbökkum. Spaði hlaut 8,29 í aðaleinkunn í sumar aðeins fjögurra vetra gamall.
{gallery}AlfhildurSpadi{/gallery}
Það var gaman að heilsa upp á þessa drottningu í dag, Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum og yndislega dóttir hennar undan Frama frá Ketilsstöðum.
{gallery}AlfhildurAndFilly2017{/gallery}
Þau eru ansi lík feðginin á meðfylgjandi myndum. Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og dóttir hans Alfa fra Havnås fædd 2017. Móðir er Sæl frá Blesastöðum 1A.
Álfaklettur er fæddur 2013 undan Álfadís frá Selfossi og Stála frá Kjarri. Aðaleinkunn Álfakletts er 8,30 með 8,48 fyrir byggingu, þar af 9,0 fyrir samræmi og höfuðog 8,5 fyrir háls herðar og bóga, hófa og réttleika. Hæfileika einkunn er 8,17 þar af 8,5 fyrir tölt, fet, stökk og vilja/geðslag, 8,0 fyrir skeið, hægt stökk, hægt tölt og fegurð í reið. Við berum væntingar til þessa fola.
{gallery}AlfakletturBreeding2017{/gallery}
Albræðurnir Sólon og Símon frá Ketilsstöðum að njóta veðurblíðunnar í Syðri-Gegnisholum. Móðir þeirra er Snilld frá Ketilsstöðum og faðir Álffinnur frá Syðri-Gegnisholum.
{gallery}SimonSolon2017{/gallery}
{gallery}StallionsNov2017{/gallery}
Frumtamningar ganga mjög vel hér á bæ, þessi til hægri heitir Garpur og er 15 vetra geldingur undan Vikingi frá Voðmúlastöðum, hinir eru í feluleik. Stelpurnar standa sig frábærlega og gleyma aldrei hjálminum.
{gallery}TrainersHavingFun2017{/gallery}
Spennandi, tryppin á leið í hesthús til tamningar.
{gallery}YoungHorsesTrained2017{/gallery}
Við erum stolt og þakklát fyrir að hafa náð markmiðum okkar einu sinni enn og að vera tilnefnd sem Ræktunnarbú ársins 2017 annars vegar og Keppnishesta ræktunnarbú ársins 2017 hins vegar.
Við viljum nota tækifærið að óska öllum hinum tilnefndu ræktunnarbúum ársins innilega til hamingju.
{gallery}Uppskera2017{/gallery}
Það var gaman að sjá málverk af þessari frábæru hryssu, vel unnið.
{gallery}AlfadisPainting{/gallery}
Ég sá þessa fallegu mynd af Esther Kapinga á Dreka frá Syðri-Gegnishólum. Móðir er Draumadís frá Selfossi og faðir Brimnir frá Ketilsstöðum.
Myndin er tekin fyrir vestan, rétt hjá Hvanneyri þar sem Esther er í námi.
{gallery}EstherDreki2017{/gallery}
Bergur átti frábært ár, bæði á keppnisbrautinni og á kynbótasýningum. Hann hefur hlotið tilnefningu til kjörs um íþróttaknapi ársins og kynbótaknapi ársins.
{gallery}BergursYear2017{/gallery}
Sjáið augnhárin
{gallery}Eyelash2017{/gallery}
Þessi ungi stóðhestur er tveggja vetra og í dag yngsti sonur Álfadísar frá Selfossi. Faðir er Arion frá Eystra-Fróðholti.
Hann er stór og vel byggður, við höldum að hann sé fimmgangs. Í sumar var hans fyrsta með merum svo næsta sumar væntum við að minnsta kosti tíu afkvæma en enn á eftir að sóna einhverjar.
{gallery}AlfadisYoungestSon2017{/gallery}
Síðasta en trúlega ekki sísta folaldið í ár fæddist 21. ágúst, móðir er Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum og faðir Frami frá Ketilsstöðum. Það er hryssa.
{gallery}AlfhildurFoal2017{/gallery}
Í gær voru þessar myndir teknar á fjallinu ofan Ketilsstaða. Þær sýna að hluta það landslag sem hrossin okkar frá Ketilsstöðum/Syðri-Gegnishólum eru alin upp í.
Ketilsstaðir eiga land frá fjalli að Lagarfljóti.
{gallery}HeimsoknAHeradi2017{/gallery}
Heimsókn á Ketilsstaði er ávallt skemmtileg, hér koma nokkrar myndir af hjörðinni.
{gallery}KetilsstadirVisit2017{/gallery}
Margar myndir voru teknar af hjörðinni okkar í sumar af Heidi Benson, smellið á linkinn hér fyrir neðan til að skoða.
Álffinnur er 10 vetra núna og er staðsettur í Svíþjóð, eigendur eru Alfakungen AB. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar þegar hann hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Álffinnur er undan Álfadís frá Selfossi og Orra frá Þúfu.
Ég skoðaði afkvæmin hans í WorldFeng og árangur þeirra eftir tímabilið. Það eru núna skráð 30 dæmd afkvæmi, 21 þeirra hafa hlotið 8,00 og hærra en níu eru með einkunn undir átta, niður í 7,68 sem er lægsta talan.
Í augnablikinu hefur Álffinnur Blup upp á 123. Það verður spennandi að fylgjast með nýjum útreikningunum eftir þetta tímabil. Álffinnur á í dag einungis 129 afkvæmi allt í allt.
Takk Svenja Neu fyrir þessar fínu myndir af Álffinni frá Syðri-Gegnishólum sem voru teknar á síðasta Landsmóti á Hólum 2016.
{gallery}AlffinnurBreeding2017{/gallery}