Þetta yndislega mer folald fæddist 8 júni og er undan Huldumær frá Syðri-Gegnishólum og Krókus frá Dalbæ. Huldumær sem er dóttir Álfadisar frá Selfossi og Sæs frá Bakkakoti, hlaut sin hæsta kynbótadóm í fyrra 6 vetra gömul 8,38. Þ.a. 8,5 fyrir brokk, tölt, fegurð í reið, 9,0 fyrir vilja og 9,5 fyrir fet. Krókus hlaut hæst í kynbótadóm 8,62 þ.a 9,5 fyrir vilja og 10,0 fyrir skeið.
{gallery}Huldumaer Krokus offspring 2019{/gallery}
Nú er gaman, þessi er undan Silfurtá frá Syðri-Gegnishólum og Frama frá Ketilsstöðum.
{gallery}Dottir Silfurtaar 2019{/gallery}
Hér koma myndir frá opnu gæðingamóti Sleipnis í gær, fjórir hestar úr okkar ræktun kepptu í B-flokki, þ.a. komust þrir í úrslit og sá þriðji lenti í 12. sæti. Úrslitin fóru þannig að Glampi frá Ketilsstöðum endaði í öðru sæti með 8,58/8,69, Álfgrímur í því þriðja með 8,627/8,686 og Goði frá Ketilsstöðum í sjötta sæti með 8,57/8,414. Bylgja frá Ketilsstöðum hlaut 8,26.
{gallery}Sleipnir gaedingamot 2019{/gallery}
Veðrið svo fallegt að það eru sérstaklega gaman að mynda. Hér er Tíbrá á hlaupum með fjögurra daga gömlum syni sinum, hann virðist geta hreyft sig sá litli.
{gallery}Tibra og sonur 2019{/gallery}
Þetta fallega hestfolald fæddist 3 júni og er undan Tíbrá frá Ketilsstöðum og Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum. Tíbrá er klárhryssa með 8,25 í aðaleinkunn 5 vetra gömul þ.a 9,0 fyrir tölt, stökk, hægt tölt, vilji og fegurð í reið.
{gallery}Tibra med hestfolald 2019{/gallery}
Fallegir dagar þó hitastigið sé ekki hátt.
{gallery}sumardagar juni 2019{/gallery}
Það er fallegt þessa dagana og ekki skemma þessar hryssur fegurðina.
{gallery}sumardagar i juni 2019{/gallery}
Þetta hestfolald fæddist 30. júní og er undan Ör frá Ketilsstöðum og Sveini-Hervari frá Þúfu. Hér er á ferðinni albróðir Gígs frá Ketilsstöðum en Gigur er að okkar mati gífurlega efnilegur klárhestur sem m.a. kom fram í fjögurra vetra flokki á LM í fyrra og hlaut þar 8,18 í aðaleinkunn. Meðan ég skrífa þetta er ég að gera mér grein fyrir því að það eru 20 ár siðan ég notaði Svein-Hervar í fyrsta sinn, var svo heilluð af honum að foladið var fædd áður en ég gerði mér grein fyrir því að hesturinn var ekki einu sinni með 1. verðlaun. Ég sá hann og hringdi í Vigni Siggeirsson, sem þá var knapi hans og spurði hvort ég mætti ekki koma og sjá hann og það var ekkert sjálfsagðara. Mér til mikillar ánægju var mér boðið á bak og þá var ekki aftur snúið. Núna finnst mér ekki komið vor fyrr en a.m.k eitt folald undan Sveini eða hans afkomenda líti hér dagsins ljós.
{gallery}Or og sonur 2019{/gallery}
Fallegur dagur framundan og fallegt að horfa á 4ra vetra hryssurnar éta morgunmatinn sinn
{gallery}Morgunmatur i mai 2019{/gallery}
Við fengum skemmtilega heimsókn frá Ninu Björg Berglindar og Ragnarsdóttur. henni fannst mjög skemmtilegt í stóðinu eins og myndirnar sýna.
{gallery}Nina i heimsokn 2019{/gallery}
Mig langar að birta þessar fallegu myndir af þessari veturgömlu hryssu, Gullborgu og eiganda hennar og ræktenda, Öldu Ólafsdóttur. Gullborg er undan Mynd frá Haukatungu 1 Syðri og Álfgrími frá Syðri-Gegnishólum. Til er þegar genetísk alsystir hennar, Eldborg, sem er farinn að standa sig vel í keppni en hún vann meðal annars slaktauma töltið í Vesturlandsdeildinni í vetur. Alda hefur stækkað þó nokkuð síðan hún kom til mín og pantaði undir Álfgrím vegna þess að henni fannst hann lang flottastur. Þetta virðist hafa verið góð ákvörðun hjá henni, enda svipfallegt og myndarlegt tryppi.
{gallery}Gullborg fra Haukatungu 1 sydri{/gallery}
Þessi hryssa fæddist 24 maí og er undan Védísi frá Hellubæ og Sveini-Hervari frá Þúfu. Védís sem er klárhryssa með CA arfgerð, hlaut 8,06 5 vetra gömul.
Þ.á m. 9,0 fyrir tölt,stökk, vilja, fegurð í reið, hægt tölt og 9,5 fyrir hægt stökk. Sveinn-Hervar er framúrskarandi klárhesta keppnishestafaðir, þannig að vonandi verður þetta eitthvað.
{gallery}Vedisardottir 2019{/gallery}
Nokkrar góðar myndir af Söru Lundberg og Bylgju frá Ketilsstöðum, en þær tóku þátt í Tölti T3 öðrum flokki á opna WR mótínu á Selfossi um siðastliðna helgi. Þar enduðu þær í þriðja sæti með einkunnina 6,33. Vel gert.
{gallery}Sara og Bylgja{/gallery}
Þetta fallega hestfolald fæddist í dag, móðir er Álfadís frá Selfossi og faðir Arður frá Brautarholti.
{gallery}Alfadis og sonur 2019{/gallery}
Hér eru nokkrar myndir af Elinu og Frama frá opna WR mótínu á Selfossi siðastliðin helgi. Þau standa sig alltaf vel og tvö A úrslit í tölti og fjórgangi urðu niðurstaðan að þessu sinni. 4 gangur V1. 7,70/7,83 og Tölt T1 7,87/7,96.
{gallery}Opid WR mot Sleipnis 2019{/gallery}
Hér eru nokkrar myndir af frumraun Álfgríms frá Syðri-Gengisholum í keppni á opna WR móti Sleipnis á Selfossi. Fjórgangur V1 6,87 og Tölt T1 7,30.
{gallery}Fyrsta keppni Alfgrims{/gallery}
Á leið heim eftir viku í Svíþjóð að keppa á Álffinni og búið að ganga á ymsu. Var ferlega óheppin með veðrið öll skiptin sem ég keppti og því miður var völlurinn ferlegur bara, hann réði engann veginn við regnið, leiðinlegt á annars frábærum stað og framkvæmd í alla staði. Skást var veðrið í dag fyrir mitt leyti og stóð Álffinnur sig eins og hetja og vorum við farin að rifja upp gamla takta, takk fyrir mig Sviþjóð, gaman að vera með ykkur
{gallery}Alffinnur Competition 2019{/gallery}
Þetta hest folald fæddist þann 20 maí, móðir hanns er Silfurtá Suðradottir frá Syðri-Gegnishólum og faðir er Frami frá Ketilsstöðum.
{gallery}Silfurta hestfolald 2019{/gallery}
Hér er verið að þjálfa Sædísi fyrir Skeiðkeppni
{gallery}Saedis skeidkeppnisthjalfun 2019{/gallery}
Eyvör frá Lönguhlíð 4 vetra gömul, móðir er Sædís frá Stóra-Sandfelli 2 og faðir er Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum.
{gallery}Eyvor fra Longuhlid{/gallery}