Í fyrra nótt fæddist fyrsta folaldið í ár, en það var hún Snilld sem átti það, brúnstjörnóttur hestur undan Álffinni. Rétt í þessu átti Silfurtá sitt fyrsta folald en það er brúnstjörnóttur hestur með hvita afturhófa og faðir þess er Hugur. Ekki viðrar vel á litlu greyin, en ótrúlegt er hversu dugleg þau eru að bjarga sér. Hér fyrir neðan eru nokkar myndir af fyrsta folaldinu.
Myndir: Gangmyllan
Nú er nýafstaðið iþróttamót á Selfossi og Ása tók þátt á Hvata í fimmgangi,
Berglind keppti á Simba í fjórgangi og tölti unglinga og ég tók þátt í fjórgangi og tölti á Kraflari.
Bergur skráði sig á Vakari en varð að hætta við því hann múkkaðist svo illa.
Við konunar stóðum okkur bara vel, Ása varð í niunda sæti í fimmgangi,
Berglind í þriðja sæti tölti og ég vann tölt , fjórgang og tvíkeppni. Veðrið var gott og allt gekk vel.
Þetta var mikill léttir fyrir mig þar sem alskonar óheppni og veikindi hafa orðið til þess að við
höfum lítið sem ekkert mætt í keppni hingað til.
En nú gekk þetta upp, Kraflar stálslegin og virkilega gaman að geta loksins náð árángri.
Berglind tölt 6,43 úrslit 6,39
Ása 5 gangur 6,27 úrslit 6,31
Olil 4 gangur 7,23 úrslit 7,77
Olil tölt 7,50 úrslit 8,06
Olil og Kraflar | Berglind og Simbi |
Ása og Hvati | |
Myndir: Gangmyllan
Nú er nýafstaðin kynbótasýning á Selfossi og er það í fyrsta sinn sem hún er haldin þar. Mjög vel var staðið að þessari sýningu og er það alveg ljóst að Brávellir eru með allt sem þarf til að halda slíka sýningu. Vellirnir voru góðir, gott upphitunnarsvæði, stutt ámilli valla og reiðhallar þar sem byggingadómur fór fram, sem er afar þægilegt. Það var alltaf heitt á könnunni, starfsfólkið allt hið liprasta og eiga Sleipnismenn þakkir skilið fyrir þetta.
Við sjám það fyrir okkur að svona verður þetta í framtiðinni, sýningar á fleirum stöðum svo fólk þurfi að fara sem styðst og hestarinir sem eiga eð koma til syningar þurfa ekki að vera upp á kerrum klukkutímunum saman, heldur er auðvelt fyrir fólk að skjótast á milli með hestana sína. Óskin er að á næsta ári fái Sleipnismenn betri dagsettningu á sína sýningu og hlýtur að vera hægt að keyra nokkrar sýningar samhliða þannig að engin staður sem ætlar bara að halda eina sýningu það árið þurfi að hafa sína sýningu svo snemma. Auðvitað er það ljóst að fjöldin verður ekki sá sami og ef sýningin hefði verið seinna og líklega heldur ekkert aðdráttarafl að sýningin sé notuð til samræmingu dómara.
Við sýndum tvo hesta til fullnaðar dóms og lækkuðu þeir báðir frá því í fyrra þannig að það var svo sem ekkert til að státa sig af, Þeir lækkuðu báðir í byggingu um hálfan í fótagerð.
Hugur fór úr 8,2 9 í 8,18 í aðaleinkunn sem fólst í að hann lækkaði um hálfan í fótagerð og fet og heilan í brokk en hækkaði um hálfan í skeiði og er nú komin með 9,0 fyrir skeið. Hann varð full beittur í dómi og brókkið varð óöruggt fyrir vikið, hann brokkaði svo miklu betur í yfirlitinu, en fékk bara hálfan í hækkun, synd þvi hann er með mjög gott brokk.
Gándálfur missti níuna sína fyrir vilja og geð og er okkur það lífsins ómuglegt að skilja það, eða þá bara skilja eitthvað í vilja dóm yfir höfuð.
Tökum dæmi:
5 vetra gamall fékk han fyrir hæfileika : 8,31 sem hljóðaði þannig:
Tölt: 8.0 Brokk: 8,5 skeið 8,0 Stökk 8,5 Vilji:9,0 Fegurð í reið: 8,0 Fet:8,0 Hægt tölt: 7,o 0g hægt stökk: 7,5
7 vetra gamall fær hann:
Tölt 8,5 Brokk:9,0 Skeið: 8,5 Stökk: 8,5 Vilji: 8,5 Fegurð í reið: 8,5 Fet: 7,5 Hægt tölt:8,5 og Hægt stökk: 7,5
Samantekið hækkar hann um hálfan fyrir tölt,brokk, skeið, fegurð í reið, lækkar um hálfan fyrir fet og hækkar um einn og hálfan fyrir hægt tölt, og þegar hæfileikarnir snarhækka þá lækkar hann fyrir vilja og geð?? Nóta ben sem útskyring á vilja á báðum stöðum stendur ásækni og Þjálni??
Við vitum að viljadómur er ekki bara tölfræði en come on, viljum við hafa þetta svona??
Við hendum þessu fram í umræðuna, við erum ýmsu vön og tökum þessu eins og öðru en umræðan er hóll og löngu komin timi til að við skilgreinum viljan betur almennt því vilji og geðslag er mikivægasti þátturinn af öllum, alger forsenda fyrir því að aðrir hæfileikar fá að njóta sín.
Hér eru myndir af nokkrum af ungu folunum sem eru í uppeldi austur á Ketilsstöðum.
Tókum slatta af myndum sem gaman er að skoða, en til eru ansi margir spennandi folar.
Þegar við fórum austur með veturgömlu folana, tókum við með okkur nokkra hesta til baka. Einn þeirra var sonur Álfadísar og Keilis, albróðir Álfasteins. Hann er orðin tveggja vetra gamall og bleikblesóttur á lit, sem ætti að vera ægætis innlegg fyrir þá sem finnst nóg vera komið af skjóttu.
Þetta árið verður ekki selt undir hann, þar sem við notum hann sjálf á okkar merar í ár, en á næstu ári verður hægt að halda undir hann.
Við tókum nokkrar myndir af honum heima á Ketilsstöðum og birtum þær hér fyrir neðan.
Uppástungur um nafn á hann eru vel þegnar............
Myndir: Gangmyllan |
Siðastliðna helgi fórum við austur í Ketilsstaði með veturgamla fola, þeir hafa gengið undir fram að þessu, en nú var komin timi til að taka þá frá.
Þetta er heilmikið ferðalag um sjö tima akstur ef vel er haldið áfram, en afturámóti er mjög gott að ala upp hross þar, mikið og fjölbreytt land. Ungfolarnir alast að hluta til upp í fjalllendi, eru á töluverðri hreyfingu og verða stæltir og fallegir.
Við tökum m.a þessar myndir um helgina.
9 apríl var ungfolasýning í Ölfushöllini og er gaman að segja frá því að hestar ættaðir frá okkur stóðu sig vel. Lukku Láki undan Álfi var efstur í tveggja vetra flokknum og Natanssonurinn Veigar frá Sauðholti 2 var þriðji í þriggja vetra flokknum. Áhorfendur völdu siðan vinsælustu folanna of urðu þessir tveir fyrir valinu. Þeir komu síðan fram á stóðhestaveislunni um kvöldið og voru frábærlega flottir báðir tveir. Því miður var hvorki myndavélin eða viðeóvélin með í för, en Jakob og Addý vinir okkar var ekki lengi að redda því, þau komu með folann sinn nokrum dögum seinna, svona tók hann sig út í höllinni hjá okkur.
Var að fá senda mynd frá Swiss, en það eru systurnar Seline og Alina Bleichenbacher sem sendu okkur hana en hún er af hestunum þeirra Nagg og Skugga. Þeir eru úr okkar ræktun, móðir þeirra er Mugga frá Kleifum en faðir Naggs þess rauðtvístjörnótta er Stigandi frá Sauðárkróki og Skuggi er undan Fleng frá Böðmóðsstöðum. Þær eru báðar hæðstánægðar með hestana sína, ríða námskeið og eru farnar að taka þátt í keppni með góðum árangri. Það er gott og gaman að frétta af hestum sem maður hefur ræktað og selt.
Síðastliðin sunnudag tók Flugnir þátt í sinni fyrstu keppni þegar Bergur keppti á hann í gæðingaskeiðinu í meistaradeildinni. Þeir stóðu sig með ágætum lentu í 7 sæti með einkunnina 6,88. Ekki slæmt það miðað við hest á 6 vetur innanum þá bestu.
Myndin sem fylgir með tók Páll Imsland á Orrasyningunni, en þar kom Flugnir fram sem afkvæmi Andvara frá Ey, en móðir hans er Framkvæmd frá Ketilsstöðum, en hún er dottir Hugmyndar frá sama bæ og Hrafns frá Holtsmúla. Það tók nokkur afkvæmi að finne taktinn hjá henni en siðastliðinn ár hefur hún verið að raða inn afkvæmum í flóttan dóm. Fremst ber að nefna skeiðið og vilja en þar hafa þau skorað hæðst, eftirninnilegust mörgum er örugglega Djörfung en hún hlaut 8, 69 fyrir hæfileika aðeins 4 vetra gömul, þar af 9,5 fyrir skeið og vilja.
Seinnipart fimmtudags fór Bergur norður með tvo hesta til að sýna á stóðhestaveislunni á Sauðárkróki sem haldið var í reiðhöllini þar. Sýningin var á föstudagskvöldið og vorum við búin að semja við Þórð Þorgeirss að aðstoða okkur. Bergur sýndi Gandálf og Þórður sýndi Brimni.
Að sögn Bergs var þetta skemmtileg sýning og mikil breidd í hestakosti. Hér fyrir neðan birtum við nokkrar myndir sem voru teknar af þeim félögum, en sýningin hjá þeim tókst með ágætum.
Myndir: Gangmyllan |
Birtum nokkrar myndir sem við fundum á facebook, en þær eru af Hettu frá Ketilsstöðum sem er sjö vetra í vor, en ekki vitum við hvað hún var gömul þegar þessar myndir voru teknar. Hetta sem er undan Álfasteini frá Selfossi og Hlín frá Ketilsstöðum var seld sem trippi til Danmerkur og voru kaupendur hennar sömu aðilar og keyptu Álfastein, Marianne og Micael Skatka.
Hetta fór í dóm í fyrra og hlaut 7,96 í aðaleinkunn. Ekki er annað að sjá á myndunum en að hér sé mjög efnileg hryssa á ferð. Til gamans má geta þess að við eigum alsystir hennar á fjórða vetur, gullfallega og efnilega dökkjarpa hryssu sem heitir Hvellhetta.
Myndirar hér fyrir neðan voru teknar fyrir nokkrum vikum síðan, en þær eru af Jónatan sem er á fjórða vetur. Hann er sonur Musku frá Stangarholti og Natans frá Ketilsstöðum. Natan er undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Væntingu frá Ketilsstöðum sem er undan Hugmynd frá sama bæ og Topp frá Eyjólfsstöðum. Musku er ég búin að minnast á mörgum sinnum áður, síðast fyrir nokkrum dögum þegar ég skrifði um Gram en hann er líka sonur Musku.
Jónatan er fótahár og efnilegur alhliðahestur með mikið og skemmtilegt skref.
Gandálf þarf kannski ekki að kynna neitt sérstaklega, er þegar búin að skrifa um hann og rekja ættir hans, en hann er þriðji sonur Álfadísar og er sonur Gusts frá Hóli. Stefnt er með hann í dóm í vor, þó hann sé þegar orðinn vel dæmdur eða með 8, 39 í aðaleinkunn. Hann er léttbigður með stórar hreifingarog verður bara betri eftir því sem hann vöðvast og þroskast hann bætir sig jafnt og þétt og er orðinn mjög rúmur á gangi, lundin er einstaklega hlý og ljúf. Við sjáum fyrir okkur að gaman verður að stilla honum upp í gæðingakeppni í framtiðinni. Tókum nokkrar myndir af honum hér um daginn í góða veðrinu svona rétt til að minna á hann.
Eftir landsmót verður Gandálfur á vegum Hrossaræktarsambands Eyfirðinga og Þingeyinga og er umsjónarmaður hans Zophonías Jónmundsson með sima 8926905/ This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ......eða hryssa.is
Myndir: Gangmyllan
Hesturinn hér fyrir neðan heitir Strokkur, er á fjórða vetur og er undan Grýlu frá Stangarholti og Orra frá Þúfu. Hann er þar með litli bróðir Álfadísar og og náskyldur Álffinni því, mæður þeirra eru mæðgur og svo eiga þeir sama föður. Grýla er dóttir Kolfinns frá Kjarnholtum og í móðurlegg á hún ættir sínar að rekja til Sauðafellsskjónu sem var systir Pálmaskjónu sem mörg góð Kirkjubæjarhross eru út af, eins og Vængur, Bróðir og Terna. Vængur var með allra flottustu klárhestum síns tima og að minu mati hefðu hans gæði alveg staðið timans tönn. Bróðir, bróðir hans var ekki eins magnaður en góður samt og var farsæll keppnishestur í áraraðir hjá bræðrunum Davíð og Sigurði Matthíassonum. Terna er móðir m.a Töfra frá Kjartansstöðum.
Strokkur er fótahár , hreyfingagóður og viljugur en ekki erum við enn viss um að hann sé alhliðahestur, en það kemur í ljós á næstunni.
Hér koma nokkrar myndir af Vestra frá Hellubæ, en hann er á sjötta vetur undan Suðra frá Holtsmúla og Vöku frá Hellubæ. Suðri er undan Skálm frá Köldukinn og Orra frá Þúfu og á bakvíð Skálm er m.a Hrafn frá Holtsmúla.
Vaka er dóttir Golu frá Hellubæ og Gáska frá Hofsstöðum og Kulur frá Eyrarbakka er líka þarna á bak við.
Vaka kom fram á LM 2004 og fékk 8,24 í aðaleinkunn og hlaut 8,48 fyrir hæfileika, m.a 9,5 fyrir brokk, hægt stökk og stökk og 9,0 fyrir tölt , fegurð í reið og vilja aðeins fjögurra vetra gömul og geri aðrir betur. Vestri er elsta afkvæmi Vöku og fjögurra vetra gamall fékk hann 8,04 í aðaleinkunn m.a 9,5 fyrir hægt stökk, eins og báðir foredrar hans eru með.Hann er undan tveim frábærum klárhestum og mögnuð ætt sem stendur að honum þannig að hér ætti að vera um mjög áhugaverðan undaneldishest að ræða. Vestri er fallegur, villjugur, flugléttur klárhestur og er mjög efnilegur fjórgangari.
Vestri er laus til leigu í sumar.
Myndir: Gangmyllan
Þá er komið að því að kynna þriðja Sveins -Hervarssoninn okkar, en það er hann Fálmar. Hann er á fjórða vetur og móðir hans er Þerna. Ættir Þernu er ég nýbuin að rekja þegar ég skrifaði um Hátign en hún er sammæðra Fálmari. Þerna er undan Stig frá Kjartansstöðum og Sylgju en hún var seld til Þýskalands eftir að hún var búin að eiga aðeins þetta eina folald. Langaamma Sylgju var Ljónslöpp 1817 sem hægt er að rekja ættir allar Ketilsstaðahrossa til. Faðir Fálmars er sem áður segir Sveinn-Hervar frá Þúfu, sem er undan Orra frá Þúfu. Alsystir Fálmars er Spes frá Ketilsstöðum, en hún er í ræktun hjá okkur. Hún er klárhryssa með 8,20 í aðaleinkunn þ.a 8,41 fyrir hæfileika 9,0 fyrir flest öll atriði nema 9,5 fyrir hægt stökk og stökk. Fálmar er geðgóður , viljugur og hreyfingamikill klárhestur sem eflaust er efni í mikinn keppnishest.
Fálmar er laus til leigu í sumar.
Myndir: Gangmyllan |
Þá er komið að honum Gram, hann er á fimmta vetur, undan Musku frá Stangarholti og Sveini Hervari frá Þúfu. Muska var undan Frama frá Bakka sem er undan Söndru frá Bakka s.s. sammæðra t.d. Baldri frá Bakka en faðir Frama var Léttir frá Sauðárkróki. Móðir Musku er Mugga frá Kleifum en hún er enn til hérna hjá okkur og hefur gefið af sér marga góða gripi, faðir Muggu var Hnokki frá Steðja. Sveinn-Hervar er sonur Orra frá Þúfu og er hann einn af okkar uppáhaldshestum enda hefur hann gefið okkur marga góða hesta og eru m.a tvær dætur hans í ræktunina hér hjá okkur. Albróðir Grams er Gormur en hann var í úrslitum í B-flokki á siðasta landsmóti og er með 8,22 í kynbótadóm.
Gramur varð ekki sýndur í kynbótadómi í fyrra vegna pestarinnar en stefnt er með hann í dóm í vor. Gramur er stór og vel gerður klárhestur, hann er fótaburðarhestur, allar gangtegundirnar jafnar og goðar. Geðslagið er blítt og viljinn góður, hann er eflaust mjög gótt efni í mikinn keppnishest. Þær Hlín, Hefð og Minning kasta allar hans afkvæmum í vor.
Bara svona rétt til að láta vita, þá er Gramur laus til leigu í sumar.
Myndir: Gangmyllan
Hér koma fyrstu myndirnar af Frama en hann er á fjórða vetur, undan Framkvæmd og Sveini Hervari frá Þúfu. Framkvæmd er undan Hugmynd og Hrafni frá Holtsmúla. Hugmynd var siðan undan Mána og Ör frá Ketilsstöðum og Sveinn Hervar er sonur Orra frá Þúfu.Frami er bolléttur og léttbyggður og mjög efnilegur alhliðahestur.
Frami og Elin Holst |