Nú eru allar úrtökur fyrir landsmót búnar og hér á bæ er það þannig að það eru heiðursverðlaunahryssurnar sem standa sig best. Undan Álfadísi eru fimm afkvæmi komin með þátttökurétt, Gandálfur á A-flokk, Álffinnur í 7 vetra stóðhestaflokki, Álfhildur í flokki 6 vera hryssna, Álfarinn í 5 vetra flokki stóðhesta og Álfastjarna í 4 vetra flokki hryssna. Tvö afkvæmi Ljónslappar eru í ungmennaflokki, Sprengja og Simbi, svo er Katla í 6 vetra flokki hryssna og Snekkja í 5 vetra flokki hryssna. Framkvæmd er líklegast með mestu breiddina þar sem Frami sonur hennar er búinn að vinna sér tvöfaldan þátttökurétt, í flokki 7 vetra stóðhesta og í B-flokki og Minning systir hans er með þátttökurétt í 250 metra skeiði.
Þannig á það auðvitað að vera í okkar huga, að hryssurnar skili afkvæmum í góðan kynbótadóm og svo í keppni. Simbi sonur Ljónslappar er búinn að vera farsæll í keppni með eiganda sinum Berlindi Rós Bergsdóttir auk þess sem ég var með hann í A-úrslitum í T2 slaktaumatölti í meistaradeildinni í vetur, síðan var hann lánaður norður þar sem Elvar Einarsson sigraði á honum T2 slaktaumatölti í KS deildinni. Tjörvi sigraði stóðhestaflokkinn á ístölti þeirra allara sterkustu á sínum tíma og varð í þriðja sæti í A flokki á FM´07. Ljóni er farinn að gera það gott í keppni í Danmörku með nýja knapanum sínum og tvöfalda heimsmeistaranum Tania Höjvang Jenssen. Hlébarði vann nýverið fimmgang í Sviss með eiganda sinum og knapa Mara Staubli með góða einkunn. Sprengja er efst inn í ungmennaflokk fyrir Sleipnir á LM, knapi Brynja Amble Gísladóttir auk þess sem ég sigraði á henni tölt T3 á Suðurlandsmóti 2013. Katla er margbúin að sigra tölt á vetramótum hjá Sleipni auk þess að sigra unghrossakeppni með Elinu Holst á bakinu, en hún er aðeins sex vetra gömul.
Afkvæmi Álfadísar eru ekki eins keppnisreynd, enda Álfadís þremur árum yngri en Ljónslöpp. Álfur var í A-úrslitum í B-flokki á síðastliðnu Landsmóti, Gandálfur hefur staðið sig vel í keppni fyrir norðan og er að þessu sinni með þátttökurétt í A-flokki á Landsmótinu, knapi Ísólfur Líndal. Álfhildur er aðeins byrjuð í keppni þótt ung sé, en hún sigraði gæðingafimina í Meistaradeildinni 2014 og hlaut 7.50 í einkunn í sinni fyrstu forkeppni í tölti í Meistaradeildinni, aðeins sex vetra gömul.
Framkvæmd hefur skilað Staðreynd sem var farsæl í skeiðkeppnum hér áður, Flugnir sem hefur verið nokkrum sinnum í verðlaunasæti í gæðingaskeiði í Meistaradeildinni, en á nú við bakmeiðsli að stríða, Minningu sem hefur verið mörgum sinnum í verlaunasæti í gæðingaskeiði í meistaradeildinni, sigraði gæðingaskeiðið á opna WR íþróttamóti Sleipnis nú í vor, auk þess að vera búinn að vinna sér inn þátttökurétt í 250m skeiði á LM14. Svo er það síðast en ekki síst Frami, 7 vetra sem er margbúinn að vinna tölt á vetramótum Sleipnis, hann vann líka 4 gang meistaraflokks á opna WR móti Sleipnis í vor og er efstur á stöðulistanum inn á LM í ár með heila 8,83 í B-flokki , knapi er eigandinn Elin Holst. Bergur fékk hann að láni í vetur í meistaradeildinni sem gaf tvö verðlaauna sæti, 2. sæti í T2 slaktaumatölt og 8. sæti í gæðingafimi.
Spennandi og gaman er að skoða þetta og taka saman þar sem í okkar huga eiga að vera bein tengsl úr ræktun í keppni, að hryssurnar skili hrossum sem eru hátt metin í hvorugtveggja.
15 hestar hér hjá okkur hafa hlotið þátttökurétt á Landsmót, 12 úr okkar ræktun og 3 sem eru hér í þjálfun. Í aldursröð er það þannig að Minning er í 250m skeiði, systkinin Simbi og Sprengja eru í ungmennaflokki, Frami er með tvöfaldan þátttökurétt, í B flokki og flokki 7 vetra stóðhesta. Álffinnur er í flokki 7 vetra stóðhesta, Jörmuni í flokki 6 vetra stóðhesta, Álfhildur og Katla í flokki 6 vetra hryssna, Álfarinn í flokki 5 vetra stóðhesta, Snekkja og Tíbrá eru í flokki 5 vetra hryssna og loks Álfastjarna í flokki 4 vetra hryssna. Úr þjálfun fara svo tvær fjögurra vetra hryssur frá Hellubæ, þær Hamingja og Vinátta Álffinnsdóttir og svo Þröstur Natansson frá Efri Gegnishólum sem tekur þátt í flokki 6 vetra stóðhesta. Gaman er frá því að segja að þær Hamingja og Vinátta eru undan Þulu og Vöku frá Hellubæ sem vou í öðru og fjórða sæti í 4 vetra flokki á landsmótinu á sínum tíma.
Myndir: Gangmyllan
Við fórum með Álffinn aftur í dóm á seinni sýninguna í Hafnarfirði þar sem hann hlaut í aðaleinkunn 8,37. Nú erum við búin að búa til myndband af þeirri sýningu, sem við birtum hér á heimasiðunni í dag. Álffinnur er 7 vetra gamall, sonur Álfadísar frá Selfossi og Orra frá Þúfu. Eldri albróðir hans er Sleipnisbikarhafinn Álfur frá Selfossi, a.e. 8,46, og yngri alsystir þeirra er Álfhildur frá Syðri Gegnishólum, a.e. 8,38. Í haust kemur svo til tamningar fjórða og siðasta alsystkinið, rauðskjóttur foli sem heitir Álfgrímur.
Myndir og myndband: Gangmyllan. Smellið hér til að sjá myndband http://youtu.be/QMq2HRKCBMQ
Álfarinn okkar fór í dóm í Hafnarfirði fyrir helgina og hlaut 8,40 íaðaleinkunn. Álfarinn er fimm vetra gamall og er sonur Álfadísar frá Selfossi og Keilis frá Miðsitju, albróðir hans er Álfasteinn frá Selfossi. Álfarinn er fríður og vel byggður, jafnvígur alhliðahestur. Hann er með fimm jafnar og góðar gangtegundir og gaman að vera með 9,0 fyrir hægt stökk og í fyrra var hann einnig med 9,0 fyrir fet, sem er úrvalsgangtegund hjá honum þó hann sé aðeins með 8,5 í þessum dómi. Við höfum mikla trú á hestinum og á þessu ári eigum við von á tólf folöldum undan honum.
Þar sem nafnið hans virðast vefjast mörgum tunga um tönn minni ég aftur að Álfarinn er dregið af Álf og Örn og beygist eins og Þórarinn.
Hér er Álfarinn, um Álfarin frá Álfarni til Álfarins.
Forskoðun í Hafnarfirði 2014 Sköpulag: 8.0 8,0 8,0 8,0 8,5 7,5 8,5 7,5 samtals 8,09
Kostir: 8,5 8,0 8,5 8,5 9,0 9,0 8,5 Hægt tölt 8,5 Hægt stökk 9,0 samtals 8,60 Aðaleinkunn 8,40
Hér er videó sem Hestafréttir tóku af Álfarni í dómi síðastliðinn mánudag.
.
Bergur og Minning frá Ketilsstöðum sigruðu gæðingaskeiðið á Word Ranking móti Sleipnins sem haldið erum þessa helgi. Þau áttu stórgóða keppni, allt gekk eins og smurt og enga veikleika að sjá. Bergur er búinn að undirbúa Minningu vel, hann keppti á henni í meistaradeildinni í vetur en þá klikkaði önnur niðurhægingin og endaði hann í 9. sæti. Núna gekk allt upp og aðaleinkunn var 7,54. Minning er 11 vetra gömul og hlaut 9,5 fyrir skeið í kynbótadómi 5 vetra gömul. Hún er undan heiðursverðlalunahrossunum Framkvæmd frá Ketilsstöðum og Gusti frá Hóli. Undan Minningu er til þrjú tryppi,5, 4, og 3 vetra en síðan leyfðum við okkur að taka hana úr ræktun til að nota hana í keppni. Birti hér nokkrar myndir af Bergi og Minningu, man samt ekki alveg hver tók þær, mig minnir samt að það hafi verið Óðinn Örn Jóhannsson.
Þá er hin árlega ferð með tryppin austur búin en á hverju ári um mánaðamót apríl/maí förum við með veturgömlu tryppin austur á Ketilsstaði. Þau dvelja þar í um tvö ár en svo tökum þau svo aftur heim um haustið þegar þau eru þriggja vetra, til tamningar. Að þessu sinni voru það Bergur og Logi Ólafsson sem fóru og tekur ferðin austur allt í allt um átta tíma.
Þetta er þó nokkur akstur um 580 km ef Öxi er fær, en það er fjallvegur á milli Berufjarðar og Héraðs sem styttir ferðina um 70 km, en annars þarf að keyra fjarðaleiðina, ss um Breiðdalsvík, Stöðvafjörð, Fáskrúðsfjörð, Reyðarfjörð og svo Egilsstaði. Öxi er 19 kílómetrar að lengd og heilmikill bratti eða þar sem mest lætur 18%.
Að þessu sinni voru tryppin 19 þar af 16 í okkar eigu. Tryppin voru eins og venjulega þreytt en samt hress þegar komið var á Ketilsstaði. Set hér inn mynband til að sýna hverning færið var yfir Öxi á föstudagskvöldið, eins gott að vita hvað maður er að fara út í og vera vel græjaður.
Brynja og Berglind tóku þátt í firmakeppni Sleipnis um helgina og unnu sitthvorn flokkinn, ekki slæmt það. Brynja vann ungmennaflokkinn á Sprengju frá Ketilsstöðum og Berglind vann unghrossaflokkinn á Nn fra Ketilsstöðum. Ekki búið að skýra hana enn, en hún er fimm vetra undan Júlíu og Natani frá Ketilsstöðum. Það er auðvitað ekki nógu gott að hún sé ekki með nafn ennþá en stundum erum við lengi að finna nafnið og stundum dettur það inn strax.
Álfarinn var tekinn í myndatöku um daginn, veðrið var frábært og gott færi. Bergur þjálfaði hann á reiðveginum hjá Selfossi og endaði svo á vellinum á Selfossi. Þjálfun gengur vel og er Álfarinn kattliðugur og hreyfingafallegur alhliða hestur með fimm góðar gangtegundir. Álfarinn er fimm vetra, móðir hans er Álfadís frá Selfossi og faðir er Keilir frá Miðsitju. Albróðir Álfarins er Álfasteinn frá Selfossi. Knapi á Álfarni er Bergur Jónsson.
Eftir að meistaradeildin kláraðist hér var tími á að endurgjalda hestlánið. En Elvar á Skörðugili setti undir okkur hesta í skeiðinu svo Simbi fór norður til á taka þátt í slaktaumatöltinu þar. Það fór bara mjög vel, reyndar í gegnum B-úrslit en svo lá leiðin beint í 1. sætið. Elvar og Simbi fóru á kostum í A-úrslitunum. Við fórum norður til að sjá hesta og reiðmenn fyrir norðan og taka Simba með okkur heim í leiðinni. Simbi er í hörkuformi og virtist fara létt með að fara heim sama kvöldið. Næsta dag var sól og blíða og Simbi fékk að fara út í sólbaði, með herbergisfélaga sinum Matthíasi. Þeir brugðu á leik og fögnuðu heimkomunni og endurfundinum.
Læt þessa lýsingu á Simba fylgja en hún er búin að vera í flestum miðlum undanfarna daga." Simbi er frábær töltari, fór jafnt í gegnum öll atriðin, mjúkur, hágengur, sjálfberandi og glæsilegur á slaka taumnum." En fyrir minn smekk er þetta hárnákvæm lýsing á hestinum. Simbi er sonur heiðursverðlaunahryssunnar Ljónslappar frá Ketilsstöðum og Kjarks frá Egilsstaðabæ og er í eigu dóttir Bergs, Berglindar Rósar.
Jæja þá kom að því, Meistaradeildinni lauk á föstudagskvöldið, með síðustu tveim keppnunum sem voru slaktaumatölt og skeið í gegnum höllina. Það var spennandi allt fram á síðustu stundu og aldrei að vita hvað hefði gerst ef ég hefði ekki misst Segul upp rétt fyrir markið í skeiðinu, en það eru og verða alltaf einhver "ef". Staðreyndin er sú að okkur gekk í það heila mjög vel. Óhætt er að segja að það sé mikil bæting frá í fyrra, en þá urðum við neðst og núna enduðum við í þriðja sæti í liðakeppninni og kosin skemmtilegasta liðið af áhorfendum. Ég var kosin fagmannlegasti knapinn, einnig af áhorfendum og endaði í þriðja sæti í einstaklingskeppninni. Liðið landaði tvö gull, tvö silfur og þrjú brons ásamt því að ná 8 skifti verðlaunasæti frá 5 til 9 sæti.
Til gamans má geta að við kepptum 12 sinnum á hestum úr okkar ræktun Ketilsstaðir/Syðri Gegnishólar. Komum því að jafnaði fram tvo hesta í hverri grein, nema í gæðingaskeiði, þá var aðeins eitt hross( reyndar er ég einn af ræktendunum af Elliða frá Fosshofi, þó ég telji hann ekki með). Í skeiðinu vorum við lika bara með eitt hross og einnig í skeiðinu í gegnum reiðhöllini. Af þessum 12 skiptum náðu þessi hross í 8 verðlauna sæti. Við erum mjög sátt með þennan árángur, en auðvitað er mjög gaman þegar hrossin sem maður ræktar stimpla sig inn í keppni en það hefur verið okkar stefna að koma þeim á framfæri í keppni. Þetta er svona prófsteinn fyrir okkur að við séum á réttri leið í ræktun. Við skulum ekki gleyma að í meistaradeildinni í ár var öllu tjaldað enda eina leiðin fyrir menn að komast á blað. Sjaldan hafa sést vígalegri ráslistar, hestar, knapar, áhorfendur, framkvæmdanefnd og dómarar. Ekki að gleyma Thelmu Tómasson og Stöð 2, né Óla Pétri og öðrum starfsmönnum. Hafið þökk fyrir frábæran vetur í alla staði. Svo viljum við auðvitað þakka Bjarna á Þóröddsstöðum, Elvari á Skörðugili, Krissu og Agnari á Jaðri og Hafliða í Ármóti kærlega fyrir hestlánið, það er gott að eiga góða að. Birti hér eitthvað af myndum sem við erum ýmist búin að sníkja og stela hér og þar.
Myndirnar eru frá heimasiðu meistaradeildarinnar, Hestafréttum og Óðni Erni Jóhannssyni.
Framkvæmdir ganga vel, þakið er komið á hesthúsið og búið er að steypa síðustu veggjasteypu. Nú er virkilega hægt að sjá hverning þetta verður og við erum farin að hlakka mikið til að taka herlegheitin í notkun. Í tilefni dagsins var haldið svona smá reisugilli svona til að halda upp á þennan áfanga.
Frábær dagur að mörgu leyti, stákarnir stóðu sig vel í dag, ekki veitti af því það gekk ekki vel hjá mér. En svona er þetta. Það góða er að strákurinn úr Laugarnesinu varð fimmti í skeiði og svo rúllaði hann upp gæðingskeiðinu. Þú ert snillingur Elli og við erum hrikalega stolt af þér. Bergur lenti svo í 9.sæti í gæðingaskeiði, með eitt núll fyrir niðurhægingu og ég var sem sagt út úr kortinu. Ensamt er Gangmyllan komin í 2.sæti í liðakeppninni. Juhu, svolitið öðruvísi staða en í fyrra.
{gallery}MD2014Pace{/gallery}
Nú er meistaradeildin hálfnuð og óhætt er að segja að okkar liði hafi gengið mun betur en í fyrra. Eins og í fyrra hefur verið frábærlega gaman að taka þátt og ekki siður gaman þegar liðið er að æfa og stilla saman strengi. Birti hér slatta af myndum teknar í æfingu, svona rétt til að sýna stemmninguna. Get ekki sagt annað en að við séum með frábært lið, vinnum saman og stemmningin er ávalt góð.
Myndir: Gangmyllan
Þá er fyrstu keppni lokið í meistaradeildinni og þarf svo sem ekki að skrifa miklar fréttir um það, það hefur verið í frétttum undanfarna daga. Allavega, við byrjuðum betur en í fyrra. Ég og Fálmar frá Ketilsstöðum í öðru sæti, Daníel og Hraunar frá Svalbarðseyri með 7,0 í dauða sætinu, 11. námkvæmlega eins og Anna og Vakar í fyrra og svo Bergur og Katla frá Ketilsstöðum í því 18. Katla er ung aðeins á sjötta vetur, var flott og kynnti sig vel, vantaði smá styrk og öryggi til að klára þetta í bili. Það er auðvitað miklill andlegur likamlegur styrkur sem þarf til að klára keppni af þessu tagi. Áhorfendur voru svo sannarlega í stuði, stemmningin svakaleg, svo það var ótrulega gaman að taka þátt í þessu. Svo síðast en ekki síst, mikið af reiðmönnum að dæma sem í mínum skilningi er afar traustvekjandi. Hafið þökk fyrir.
Jæja,Þá janúar hálfnaður og hér er allt gott að frétta. Byggingar ganga vel og alltaf verið að steypa eitthvað. Ansi vinalegt að hafa einn stóran byggingakrana svona alltaf á staðnum, svona til að minna á að eitthvað mikið er að gerast.
Annars ganga útreiðar vel, mikið er gott að hafa reiðhöll núna, þegar allir vegir eru ísilagðir. Ungu hrossin eru komin inn aftur og komin vel af stað eftir fríið og eldri hrossin í góðum gír, enda eins gott, meistaradeildin alveg að fara að byrja.
Síðasti stóðhestur frá okkur til að fara úr landi var hann Gramur okkar frá Syðri Gegnishólum en kaupandi hans er Carolin Winter og svo fóru þær Bóla og Grábrók líka til Þýskalands, en kaupandi þeirra var Töltmyllan í Lindlar.
Gangmyllan verður aftur með lið í meistaradeildinni 2014, enda var mjög gaman að vera með. Knapar liðsins verða flest allir þeir sömu, Bergur Jónsson, Daníel Jónsson og Olil Amble. Anna Valdimarsdóttir sá sér ekki fært að vera með að þessu sinni en í stað hennar kemur Erling Ó Sigurðsson. Ekki er fastákveðið hvaða hestum verða teflt fram, en tíminn verður að leiða það í ljós.